Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 698. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1036  —  698. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um atvinnumál kvenna.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hvað hefur ráðherra gert til úrbóta í atvinnumálum kvenna á landsbyggðinni?
     2.      Hefur ráðherra skoðað sérstaklega stöðuna í atvinnumálum kvenna á láglaunasvæðum?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir sértækum aðgerðum á þessu sviði og ef svo er, hvaða aðgerðum og hvenær má vænta þeirra?