Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 788. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1201  —  788. mál.




Skýrsla



heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um 56. alþjóðaheilbrigðisþingið í Genf 19.–28. maí 2003, fund framkvæmdastjórnar WHO í Genf 29. maí 2003, fund svæðisnefndar WHO í Evrópu í Vín 8.–11. september 2003 og alþjóðaheilbrigðisdaginn 7. apríl 2003.

(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)



ALÞJÓÐAHEILBRIGÐISÞINGIÐ

1. Inngangur.
    Stofnskrá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) var samþykkt 22. júlí 1946 á sérstöku alþjóðlegu heilbrigðismálaþingi. Stofnunin sjálf tók ekki til starfa fyrr en 7. apríl 1948 þegar 26 af 61 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna höfðu staðfest stofnskrána. Aðildarríki WHO eru nú 192.
    Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Genf en auk þess fer stór hluti starfseminnar fram í sex svæðisnefndum og skrifstofum þeirra. Svæðisskrifstofurnar eru í eftirtöldum löndum:
     –      Kongó (Brazzaville).
     –      Bandaríkjunum (Washington).
     –      Egyptalandi (Alexandríu).
     –      Danmörku (Kaupmannahöfn).
     –      Indlandi (Nýju-Delhi).
     –      Filippseyjum (Maníla).
    Alþjóðaheilbrigðisþingið, sem haldið er einu sinni á ári, er sá vettvangur sem tekur helstu ákvarðanir varðandi starfsemi WHO og markar stefnu stofnunarinnar á hverjum tíma. Framkvæmdastjórnin, sem kemur saman tvisvar á ári, er hins vegar framkvæmdanefnd þingsins. Svæðisnefndir WHO koma saman einu sinni á ári, í 1–2 vikur hverju sinni. Þess á milli starfa fastanefndir svæðisskrifstofanna.
    Meginmarkmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er að stuðla að sem bestu heilsufari allra jarðarbúa. Heilbrigði er skilgreint í stofnskrá WHO sem svo að það feli í sér fullkomna líkamlega, andlega og félagslega velferð, ekki einungis að menn séu lausir við sjúkdóma og önnur vanheilindi.
    Helstu viðfangsefni WHO eru:
     –      Leiðsögn í heilbrigðismálum á heimsvísu.
     –      Samvinna við ríkisstjórnir á sviði áætlanagerðar, stjórnunar og mats á framkvæmd aðgerða í heilbrigðismálum.
     –      Þróun og miðlun viðeigandi heilbrigðistækni, upplýsinga og gæðastaðla fyrir heilbrigðisþjónustu.
    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin starfar í nánu samstarfi við aðildarríkin, alþjóðlegar og svæðisbundnar stofnanir og samtök, frjáls félagasamtök og sérhæfðar miðstöðvar á ýmsum sviðum heilbrigðismála. Jafnframt tengist starfsemi WHO viðfangsefnum margra annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna.
    WHO hefur einkum náð árangri á sviði smitsjúkdóma og með lækkun dánartíðni og lengingu lífs, dreifingu lífsnauðsynlegra lyfja og aðgerðum til þess að bæta heilsufarið í borgum heimsins. Verkefnin fram undan eru hins vegar óþrjótandi og má þar m.a. nefna aðgerðir til þess að tryggja heilbrigði allra, hefta útbreiðslu nýrra og eldri sjúkdóma, koma á nánari samvinnu þeirra sem vinna að heilbrigðismálum, bæta umhverfið og stuðla að heilsusamlegri lífsstíl fólks.
    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gegnt forustuhlutverki á sviði heilbrigðismála í heiminum um áratugaskeið. Á síðustu árum hafa hins vegar alþjóðlegar stofnanir eins og Alþjóðabankinn, Heimssjóðurinn í baráttu gegn alnæmi, berklum og malaríu (e. The Global Fund to Fight AIDS, Tuberculosis and Malaria) og svæðisbundnir fjárfestingarbankar orðið æ meira áberandi á heilbrigðissviðinu. Hefur það aðallega komið til af því að fjárhagslegur stuðningur og lánafyrirgreiðsla við einstök lönd hefur í vaxandi mæli tengst ákveðnum aðgerðum í heilbrigðismálum.

2. Alþjóðaheilbrigðisþingið 2003.
    Að venju var alþjóðaheilbrigðisþingið haldið í Þjóðabandalagshöllinni í Genf dagana 19.–28. maí sl. Þetta var í 56. þingið og var það fjölsótt að venju. Um tvö þúsund fulltrúar sóttu þingið að þessu sinni en 187 af 192 aðildarríkjum WHO sendu fulltrúa sína á þingið, þar af fóru ráðherrar fyrir sendinefndum 136 aðildarríkja.
    Forseti þingsins var kosinn dr. K. M. Hossain frá Bangladess. Varaforsetar voru U.O. Awono frá Kamerún, dr. J. Torres-Goitia C. frá Bólivíu, dr. W Al-Maani frá Jórdaníu, H. Voigtländer frá Þýskalandi og dr. C. Otto frá Palá en þeir sáu um fundarstjórnina í sameinaðri málstofu þingsins. Að auki voru kosnir dr. J. Larivière frá Kanada sem formaður nefndar A og L. Rokovada frá Fídjieyjum sem formaður nefndar B.
    Þingið starfar að hluta í sameinaðri málstofu en meginstarfið fer fram í fyrrnefndum nefndum, nefnd A og nefnd B. Nefnd A fjallar um stöðu heilbrigðismála, áhersluþætti í forvarnastarfi, sérhæfð verkefni stofnunarinnar og áætlanir hennar, svo og fjárlagatillögur tengdar sérstökum verkefnum. Á dagskrá nefndar B eru hins vegar aðallega stjórnunarleg, fjárhagsleg og lögfræðileg málefni. Enn fremur eru á alþjóðaheilbrigðisþinginu haldnir fræðslu- og umræðufundir um einstök efni.
    Sendinefnd Íslands í ár skipuðu eftirfarandi: Davíð Á. Gunnarsson ráðuneytisstjóri sem var formaður sendinefndarinnar, Ragnheiður Haraldsdóttir skrifstofustjóri, Ingimar Einarsson skrifstofustjóri, Sveinn Magnússon skrifstofustjóri, Helgi Már Arthúrsson upplýsingafulltrúi, Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur landlæknisembættisins, Haraldur Briem, sóttvarnalæknir ríkisins, og Ásthildur Knútsdóttir, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins í Genf, en aðrir starfsmenn fastanefndar Íslands í Genf voru sendinefndinni einnig til aðstoðar.
    Dagskrá þingsins að þessu sinni var umfangsmikil. Á dagskránni voru meðal annars kosning nýs framkvæmdastjóra, rammasamningur um tóbaksvarnir, fjárhagsáætlun fyrir tímabilið 2004– 2005, tæknileg málefni með 19 undirflokkum, reglur um samskipti við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna, ríkisstofnanir og frjáls félagasamtök og málefni er vörðuðu stjórnun, fjármál og starfsmannamál.
    Alls voru 35 ályktanir og tvær ákvarðanir samþykktar af þinginu, sbr. fylgiskjal I með yfirliti yfir ályktanir. Samþykkt ályktunar um tóbaksvarnasamninginn þótti söguleg þar sem þetta er fyrsti alþjóðlegi lýðheilsusamningurinn sem gerður hefur verið á vegum WHO.

3. Ræða aðalframkvæmdastjóra.
    Dr. Gro Harlem Brundtland, nú fyrrverandi framkvæmdastjóri WHO, hélt kveðjuræðu sína á alþjóðaheilbrigðisþinginu en hún lét af störfum 21. júlí sl. Í ræðu sinni fór hún yfir áhersluþætti í stjórnartíð sinni og framtíðarsýn en að auki lagði hún fram skýrslu þar sem farið er yfir starfsemi WHO á árunum 1998–2003.
    Dr. Brundtland tók við stöðu aðalframkvæmdastjóra WHO á 50. afmælisári stofnunarinnar. Á þessum tímamótum stóð WHO frammi fyrir aukinni alþjóðavæðingu sem opnaði dyr fyrir þróun og framförum en um leið dyr fyrir nýjum heilsufarshættum. Þetta kallaði á endurskoðun á markmiðum og starfsemi stofnunarinnar sem hefur auðkennt stjórnartíð dr. Brundtland.
     Starfsemi stofnunarinnar hafa verið sett skýr markmið og eru þau:
     *      Að draga úr dánartíðni, sýkingum og fötlunum, þá sérstaklega í þróunarríkjunum.
     *      Að stuðla að heilbrigðum lífsstíl og draga úr umhverfis-, efnahags- og félagslegum áhættuþáttum.
     *      Að þróa heilbrigðisþjónustu sem eykur skilvirkni, bregst við eftirspurn neytenda og er fjárhagslega sanngjörn/réttlát.
     *      Að styðja við uppbyggingu heilbrigðisstofnana, að mynda stuðningsramma fyrir heilbrigðisstefnu og að hvetja til þess að tekið sé tillit til heilbrigðismála við stefnumótun í félags-, efnahags-, umhverfis- og þróunarmálum.
    Þær breytingar sem dr. Brundtland gerði og staðið hafa hvað helst upp úr eru skipulagsbreytingar á innra stjórnkerfi þar sem stofnunin hefur breyst frá því að hafa marglaga skipurit í það að hafa flatara skipurit. Dr. Brundtland hefur enn fremur lagt aukna áhersla á samvinnu við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna, ríkisstofnanir og frjáls félagasamtök og unnið að auknum gæðum og aðgengi að heilbrigðisupplýsingum.
    Í stjórnartíð sinni hefur dr. Brundtland að auki unnið að því að fá stjórnmálaleiðtoga heimsins til að sjá heilbrigðismál í stærra samhengi og fá það viðurkennt að fjárfesting í heilbrigðismálum skili sér í auknu alheimsöryggi, minni fátækt og auknum hagvexti í heiminum.
    Í ræðu sinni á alþjóðaheilbrigðisþinginu sagði dr. Brundtland að HABL (SARS) væri fyrsti nýi faraldur 21. aldarinnar og lagði áherslu á mikilvægi þess að aðildarríki deildu upplýsingum, sérfræðiþekkingu og öðrum úrræðum sem aukið gætu viðbrögð við faröldrum sem þessum. Á þinginu var einnig haldinn tæknilegur fundur um HABL sem var vel sóttur af þinggestum.

4.    Hringborðsumræður ráðherra.
    Í ár tóku 96 ráðherrar eða staðgenglar þeirra þátt í hringborðsumræðunum en umræðurnar eru hugsaðar sem liður í því að virkja ráðherra í starfsemi þingsins. Rætt var um það hvernig hægt væri að tryggja börnum heilnæmt umhverfi en rúmlega fimm milljónir barna undir 14 ára aldri deyja á ári hverju af völdum slysa og sjúkdóma sem hægt er að rekja til umhverfis þeirra. Þess má geta að þetta var einnig þema alþjóðaheilbrigðisdagsins í ár. Formenn hringborðsumræðnanna voru heilbrigðisráðherrar Mósambík, Írlands, Jórdaníu og Indlands en umræðunni var skipt niður í fjóra hópa.
    Ráðherrar ræddu um hlutverk heilbrigðiskerfisins við að tryggja börnum heilnæmt umhverfi, hvernig best væri að bregðast við þessari þörf og hvernig auka mætti alþjóðasamstarf hvað þetta varðar. Margir ráðherrar skýrðu frá starfsemi í heimalandi sínu sem miðar að því að tryggja börnum heilnæmt og hættulaust umhverfi.
    Davíð Á. Gunnarsson talaði fyrir hönd Íslands og lagði áherslu á mikilvægi þess að foreldrar tileinkuðu börnum sínum tíma. Enn fremur lagði hann áherslu á forvarnir og að styrkja þyrfti meðferðarúrlausnir fyrir börn sem verða fyrir slysum eða ofbeldi.

5.    Nýr aðalframkvæmdastjóri.
    Dr. Lee Jong-wook frá Suður-Kóreu var á alþjóðaheilbrigðisþinginu kjörinn framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar til næstu fimm ára. Hann tók til starfa 21. júlí sl. er dr. Gro Harlem Brundtland lét af störfum, en hún gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Dr. Lee er ekki alls ókunnugur starfsemi WHO þar sem hann hefur starfað innan stofnunarinnar sl. 20 ár. Hann hefur m.a. stjórnað berklaverkefni og alþjóðabólusetningar- og ónæmisverkefni stofnunarinnar.
    Með nýjum framkvæmdastjóra er ekki fyllilega ljóst hvar áherslurnar munu liggja en eitt fyrsta verk dr. Lee var að bæta einu nýju svið við starfsemi aðalstöðva WHO í Genf sem hefur verið skipt niður í níu meginsvið seinustu árin. Þetta nýja svið mun sjá um baráttuna gegn alnæmi, berklum og malaríu.
    Eins og forveri sinn gerði dr. Lee miklar breytingar á vali á stjórnendum og skipti meðal annars út öllum yfirmönnum meginsviðanna.

6.    Ísland í framkvæmdastjórn.
    Ísland var kosið í framkvæmdastjórn WHO á alþjóðaheilbrigðisþinginu en 17 ár eru liðin frá því að Ísland gegndi þar síðast stöðu. Auk Íslands voru Frakkland, Tékkland, Kanada, Ekvador, Gínea-Bissá, Nepal, Pakistan, Súdan og Víetnam kosin í framkvæmdastjórn. Ísland mun gegna stöðu í framkvæmdastjórn frá maí 2003 til maí 2006 og er fulltrúi Íslands Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
    Framkvæmdastjórnin fer með æðsta vald í málefnum stofnunarinnar og í henni sitja 32 aðildarríki hverju sinni. Sæti stjórnarinnar skiptast milli svæða á eftirfarandi hátt: Evrópa hefur sjö sæti, Afríka sjö sæti, Norður- og Suður-Ameríka sex sæti, Austur-Miðjarðarhaf fimm sæti, Vestur-Kyrrahaf fjögur sæti og Suðaustur-Asía þrjú sæti.
    Með aðild að framkvæmdastjórninni fær Ísland tækifæri til þess að koma að mikilvægum ákvörðunum um starfsemi og stefnu WHO. Ísland mun í stjórnartíð sinni leggja megináherslu á málefni kvenna, barna og ungmenna sem víða um heim búa við bág kjör. Enn fremur mun Ísland leggja áherslu á eflingu heilsusamlegra lífshátta, svo sem stuðla að aukinni hreyfingu, réttu mataræði og leggja baráttunni gegn ofneyslu áfengis lið. Að endingu hefur Ísland ákveðið að leggja áherslu á málefni fatlaðra og hreyfihamlaðra.

7.     Ályktanir teknar fyrir í nefnd A.
7.1 Rammasamningur fyrir tóbaksvarnir.
    Ályktunin um rammasamning fyrir tóbaksvarnir fékk að lokum einróma stuðning allra aðildarríkja en með honum er áætlað að herja á framboð og eftirspurn eftir tóbaksvörum. Með samningnum skuldbinda aðildarríkin sig til að berjast gegn skaðlegum áhrifum tóbaksreykinga, en talið er að fimm milljónir manna látist árlega í heiminum af völdum tóbaksreykinga. Samningurinn var opnaður til undirskrifta síðastliðinn júní og mun öðlast gildi þegar fjörutíu aðildarríki hafa fullgilt hann. Talið er að þetta ferli muni taka um ár. Nú hafa 92 aðildarríki skrifað undir samninginn og níu ríki fullgilt hann. Þess má geta að Ísland hefur nú þegar skrifað undir með fyrirvara um fullgildingu.
    Margir sendifulltrúar lýstu yfir þakklæti til þeirra sem komu að gerð samningsins en lögðu jafnframt áherslu á að vinnunni væri ekki lokið. Af hálfu íslensku sendinefndarinnar var lögð áhersla á hve Ísland hefur verið öflugt í baráttunni gegn tóbaksreykingum og bent á lagaákvæði frá 1984 sem miðaði gagngert að því að draga úr tóbaksreykingum og hefur vakið athygli margra víða um heim, ekki síst fyrir ákvæði um varúðarmerkingar á tóbakspakkningum.

7.2 Fjárhagsáætlun fyrir tímabilið 2004–2005.
    Erfitt reyndist að ná samkomulagi varðandi fjárhagsáætlunina en að lokum voru þrjár ályktanir samþykktar: a) fjárhagsáætlun fyrir tímabilið 2004–2005 sem hljóðaði upp á að föst framlög aðildarríkjanna yrðu 863.111.890 bandaríkjadalir, b) aðferð við útreikninga á framlögum aðildarríkjanna fyrir tímabilið 2004–2005, og c) aðlögunarferli að nýrri aðferð við útreikninga á framlögum.
    Dr. Brundtland fór fram á að fjárhagsáætlunin fyrir tímabilið 2004–2005 tæki a.m.k. mið af 0% raunvöxtum en ekki 0% nafnvöxtum sem einkennt hafa fjárframlög aðildarríkjanna undanfarin ár. Miklar deilur spruttu upp og var sérstakur vinnuhópur stofnaður til að leysa úr þessum málum. Davíð Á. Gunnarsson tók til máls fyrir hönd Norðurlandanna og studdi að teknir yrðu upp 0% raunvextir við útreikninga fjárframlaga aðildarríkjanna. Enn fremur fóru Norðurlöndin fram á aukna fjárveitingu til starfsemi stofnunarinnar sem snýr að auknu öryggi sjúklinga og heilbrigðum lífsstíl svo og aukna fjárveitingu til þúsaldarmarkmiðanna (e. Millennium Development Goals) sem beinast að heilsu barna og mæðra og kynjajafnrétti (sjá nánari umfjöllun um fjármál hér að aftan).

7.3 Alþjóðaalnæmisáætlun.
    Samþykkt var ályktun um alþjóðaalnæmisáætlun. Áætlunin er byggð á reynslu og þekkingu frá tveggja áratuga baráttu gegn alnæmi. Tilgangur áætlunarinnar er að koma á auknum tengslum á milli fyrirbyggingar og fræðslu um alnæmi annars vegar og meðferðarúrræða og veittrar þjónustu hins vegar. Í umræðu aðildarríkjanna var lögð mikil áhersla á þörfina fyrir þjálfun forvarnafulltrúa, að auka þyrfti heilbrigðisþjónustu fyrir börn og mæður svo og aðgengi að getnaðarvörnum og kynfræðslu. Að lokum var lögð áhersla á að mannréttindi væru höfð að leiðarljósi.
    Finnar töluðu fyrir hönd Norðurlandanna og lögðu áherslu á að þúsaldarmarkmiðunum yrði ekki náð ef ekki yrði lögð meiri áhersla á baráttuna gegn alnæmi.

7.4 Endurskoðun á heilsugæslumarkmiðum Alma-Ata.
    Tuttugu og fimm ár eru liðin frá því að alþjóðaráðstefna um heilsugæslu var haldin í Alma-Ata. Í þessu tilefni var ályktun samþykkt sem kveður á um endurskoðun á skilgreiningum og markmiðum sem sett voru á fyrrnefndri ráðstefnu og að ákvörðun verði tekin um framhaldið. Lögð er sérstök áhersla á að veita fátækum og þeim sem minna mega sín heilsugæslu en í Alma-Ata var lögð áhersla á að heilsugæsla væri hornsteinn að heilbrigði fyrir alla. Sveinn Magnússon talaði fyrir hönd Íslands og sagði að stefnumörkun varðandi uppbyggingu heilsugæslunnar á Íslandi næði aftur til sjöunda áratugarins og að núverandi heilbrigðisáætlun sem nær til ársins 2010 væri mjög í samræmi við áherslur WHO.

7.5 Inflúensa og aðrir árlegir faraldrar.
    Nefnd A samþykkti ályktun um forvarnir og stjórnun á inflúensu og öðrum árlegum faröldrum. Á hverju ári smitast um 3–5 milljónir manna af alvarlegri inflúensu og þar af deyja um 250–500 þúsund manns en hægt er að koma í veg fyrir mörg þessara tilfella með bólusetningu. Ályktunin kveður á um að aðildarríki auðveldi bólusetningu fyrir áhættuhópa og eru þau hvött til að ná því markmiði að a.m.k. 50% aldraðra verði bólusettir árið 2006 og 75% árið 2010. Í umræðunni bentu mörg aðildarríki á að beina þyrfti aukinni athygli að framleiðslu ódýrra bóluefna. Enn fremur var lögð áhersla á að auka viðbúnað landa til að bregðast við inflúensu svo og öðrum smitsjúkdómafaröldrum en inflúensa er ekki einungis kostnaðarsöm fyrir heilbrigðiskerfið heldur einnig fyrir hagkerfi landa.
    Haraldur Briem, sóttvarnalæknir ríkisins, talaði fyrir hönd Íslands og lagði áherslu á að starf WHO væri mjög mikilvægt við skipulagningu á viðbrögðum við nýjum inflúensufaröldrum. Mikil umræða hefur verið um það hversu stutt sé í það að inflúensu A veiran stökkbreyti sér og verði jafnvel ónæm fyrir þeim bóluefnum sem til eru. Þetta hefur gerst nokkrum sinnum áður og lagði Haraldur áherslu á skjót viðbrögð og þörfina á betri og ódýrari bóluefnum.

7.6 Óhefðbundin lyf.
    Ályktun um óhefðbundin lyf var samþykkt eftir smávægilegar textabreytingar. Markmiðið með þessari yfirlýsingu er að viðhalda og varðveita þekkingu á óhefðbundnum lyfjum, en um leið að auka öryggi og kanna áhrif þeirra við notkun.
    Sveinn Magnússon talaði fyrir hönd Íslands og skýrði frá því að heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið væri að útbúa skýrslu sem leggja ætti fyrir Alþingi Íslendinga um notkun óhefðbundinna lyfja á Íslandi samanborið við notkun í nágrannalöndunum.

7.7 Heilbrigði og þroski barna og unglinga.
    Tvær ályktanir voru samþykktar undir undirflokknum heilbrigði og þroski barna og unglinga. Önnur um fækkun dauðatilfella af völdum mislinga og hin um áætlun fyrir heilbrigði og þroska barna og unglinga.
    Haraldur Briem talaði fyrir hönd Íslendinga undir fyrri ályktuninni og lýsti áhyggjum sínum yfir því að ekki væri nægu fjármagni ráðstafað til útrýmingar á mislingum í heiminum í fjárhagsáætlun stofnunarinnar.
    Margir lýstu yfir ánægju sinni yfir heilbrigðis- og þroskaáætluninni fyrir börn og unglinga. Þónokkrir bentu á þörfina á að rannsaka frekar orsakir fyrir áhættuhegðun unglinga, svo sem offitu, reykingar, áfengis- og fíkniefnaneyslu og áhættusama kynhegðun. Enn fremur var sóst eftir því að WHO legði meiri fjármuni til þessa málefnis. Svíar tóku undir þetta en þeir töluðu fyrir hönd Norðurlandanna.

7.8 Efling hjúkrunar- og ljósmæðrafræða.
    Nefnd A tók einnig fyrir undirflokk um eflingu hjúkrunar- og ljósmæðrafræða. Ályktun þess efnis var samþykkt fyrir tveimur árum en nú var lögð fram framvinduskýrsla. Með ályktuninni er viðurkennt að til þess að efla heilbrigðisþjónustu aðildarríkjanna þarf að styðja við starfsstéttir ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga. Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur landlæknisembættisins, talaði fyrir hönd Íslands og sagði að þörf væri á aukinni skuldbindingu og stuðningi við þessar starfsstéttir.

7.9 Endurskoðun á alþjóðaheilbrigðisreglugerðum.
    Í undirflokknum um endurskoðun á alþjóðaheilbrigðisreglugerðum voru samþykktar tvær ályktanir. Sú fyrri var um HABL (SARS) þar sem lýst var yfir virðingu og þakklæti til heilbrigðisstarfsfólks fyrir störf þess og fórnir. Dr. Carlo Urbani, fyrrverandi starfsmanni WHO, var sérstaklega minnst fyrir framlag sitt. Hann var einn af þeim fyrstu sem greindu HABL en hann lést við rannsóknir sínar á sjúkdómnum. Ályktunin leggur áherslu á aukið upplýsingaflæði og kallar á aukið alþjóðasamstarf til þess að hemja útbreiðslu smitsjúkdóma.
    Seinni ályktunin kvað á um endurskoðun á alþjóðaheilbrigðisreglugerðum, sérstaklega í ljósi HABL-faraldursins. Lögð var áhersla á að endurskoðuninni yrði lokið fyrir alþjóðaheilbrigðisþingið 2005. Noregur talaði fyrir hönd Norðurlandanna og lýsti yfir stuðningi við fyrrnefnd áform.

7.10 Einkaleyfaréttindi og nýsköpun innan heilbrigðisþjónustunnar.
    Miklar umræður urðu um ályktunina um einkaleyfaréttindi og nýsköpun innan heilbrigðisþjónustunnar en hún hlaut að lokum einróma samþykkt. Í skýrslu sem lögð var fyrir nefndina kom fram mismunun á aðgengi ríkja að lyfjum. Í þessu samhengi var bent á að um 90% af sölu lyfja fari fram í vestrænum ríkjum en þegar litið er t.d. á dánartíðni af völdum smitsjúkdóma þá sést að um 90% dauðsfalla eiga sér stað í þróunarríkjunum. Að auki var bent á að af þeim 1.400 lyfjum sem þróuð voru á árunum 1975–1999 voru aðeins þróuð 13 hitabeltissjúkdómalyf og þrjú berklalyf. Ályktunin fór m.a. fram á það við aðildarríkin að þau reyndu að ná samkomulagi um 6. mgr. Doha-yfirlýsingarinnar, frá ráðherrafundinum í Doha í nóvember 2001, um aðgengi þróunarríkja að nauðsynlegum lyfjum. Þess má geta að þetta samkomulag náðist innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) 30. ágúst sl.

7.11 Afríska svefnsýkin.
    Samþykkt var einróma ályktun um að hefja herferð gegn svefnsýki sem herjar á Afríkubúa og er borin á milli með tsetse-flugunni. Rætt var um það að eflaust væri hægt að útrýma sýkinni með skipulagðri viðleitni. Að auki var ákveðið að taka til athugunar skýrslu um hert eftirlit með neurocysticercosis, sjúkdómi sem einnig herjar á íbúa álfunnar og hægt er að koma í veg fyrir með auknum forvörnum og hreinlæti.

7.12 Útrýming bólusóttar.
    Seinasta mál á dagskrá nefndar A var að taka til athugunar skýrslu frá aðalskrifstofunni um útrýmingu bólusóttar. Á 41. alþjóðaheilbrigðisþinginu árið 1988 var samþykkt ályktun um útrýmingu bólusóttar. Á þessum tíma var talið að árlega kæmu upp meira en 350 þúsund bólusóttartilfelli í heiminum. Á 52. alþjóðaheilbrigðisþinginu 1999 var svo samþykkt ályktun þar sem aðildarríki voru hvött til að herða baráttuna gegn bólusótt og ná markmiðum um útrýmingu. Árið 2002 var bólusótt að finna í einungis sjö löndum og sama ár fékk Evrópa viðurkenningu frá WHO fyrir að hafa útrýmt bólusótt í álfunni. Þrátt fyrir mikið forvarnastarf kom upp faraldur í Indlandi 2002 sem jók fjölda bólusóttartilfella það árið og urðu þau 1.919 sem var fjórum sinnum meira en árið 2001. Á sama tíma dró úr fjármagni til þessa málefnis en aðalskrifstofan vildi með skýrslunni leggja áherslu á mikilvægi þess að þetta verkefni fengi aukna áherslu og fjármagn frá aðildarríkjunum, sérstaklega í ljósi þess að aukin hætta er á því að bólusóttarfaraldur komi upp á svæðum sem lýst hafa verið bólusóttarlaus.

8.    Ályktanir teknar fyrir í nefnd B.
8.1 Heilsuástand og aðstoð við Araba sem búa á hernumdum landsvæðum.
    Fyrsta verk nefndarinnar var að samþykkja ályktun um heilbrigðisástand, og aðstoð við Araba sem búa á hernumdum landsvæðum í Mið-Austurlöndum, þar með talið Palestínu. Ályktunin kveður á um að WHO tryggi að heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingar komist án hindrana til og frá heilbrigðisstofnunum í Palestínu og hægt verði að veita lyf og neyðarþjónustu hindrunarlaust. Einnig fóru nokkur aðildarríki fram á að stofnuð yrði nefnd sem færi yfir heilbrigðismál í Palestínu.

8.2 Stjórnunarleg málefni.
    Næsta verk nefndarinnar voru stjórnunarleg málefni og voru tólf ályktanir samþykktar undir þessum lið:
     *      Skipun nýs aðalframkvæmdastjóra og starfssamningur hans þar sem dr. Lee var skipaður til næstu fimm ára.
     *      Þakklæti til dr. Gro Harlem Brundtland.
     *      Skipun í stöðu ytri endurskoðanda þar sem þingfulltrúar kusu ríkisendurskoðanda Indlands til setu næstu tvö fjárhagstímabil, þ.e. tímabilin 2004–2005 og 2006–2007.
     *      Óendurskoðuð bráðabirgðafjármálaskýrsla yfir reikninga WHO fyrir tímabilið 2002.
     *      Aðildarríki sem ekki hafa greitt nægan hluta framlaga sinna og missa þar með kosningarétt sinn á alþjóðaheilbrigðisþinginu eins og kveður á um í 7. gr. stjórnarskrár WHO.
     *      Vanskil framlaga Kasakstans.
     *      Endurmat á framlögum fyrir árin 2002 og 2003 þar sem tekið var tillit til Afganistans, Argentínu og Tímor-Leste.
     *      Fasteignasjóður og fasteignasjóður svæðaskrifstofu Afríku þar sem heimiluð var bygging fyrir svæðaskrifstofu Afríku í Brazzaville.
     *      Að lokum voru samþykktar tvær tillögur um að Tímor-Leste yrði hluti af Suðaustur- Asíusvæðinu og Kýpur hluti af Evrópusvæðinu.

8.3 Starfsmannamál.
    Umræðan um starfsmannamál snerist aðallega um fjölda starfsmanna frá þróunarlöndunum á aðalskrifstofunni. Ekki náðist sátt um þetta efni þrátt fyrir miklar samningatilraunir og endaði með því að ályktunin var samþykkt með kosningu þar sem Ísland sat hjá. Aðrar ályktanir um starfsmannamál voru samþykktar einróma en þær fjölluðu um jafnrétti kynjanna, endurskoðuð laun starfsmanna í óflokkuðum störfum og laun nýs framkvæmdastjóra. Nefndin tilnefndi einnig einstaklinga til setu í eftirlaunanefnd.

8.4 Tæknileg mál.
    Að auki voru í nefnd B tekin fyrir nokkur tæknileg mál sem fjalla átti um í nefnd A. Byrjað var á að leggja fram skýrslu um alþjóðaráðstefnu í Jóhannesarborg um sjálfbæra þróun sem haldin var fyrr á árinu. Danir töluðu fyrir hönd Norðurlandanna og hvöttu WHO til að auka aðstoð sína við aðildarríki svo að þau yrðu færari um að standa við skuldbindingar sínar.
    Því næst var samþykkt ályktun um alþjóðaáætlun fyrir efnastjórnun með þátttöku alþjóðaheilbrigðisgeirans í huga. Aðildarríkin voru hvött til að þróa alþjóðaáætlun fyrir efnastjórnun en að auki var farið fram á það við WHO að stofnunin hefði yfirumsjón með þróun áætlunarinnar í samvinnu t.d. við UNEP, umhverfisnefnd Sameinuðu þjóðanna.
    Þá var samþykkt ályktun um sameiginlegt mat landbúnaðarstofnunarinnar (FAO) og WHO á vinnu fæðustaðlanefndarinnar (Codex Alimentarius). Ályktunin kvað á um að WHO styddi vinnu tengda fæðuöryggi og greindi milli sjúkdóma sem berast með fæðu annars vegar og sjúkdóma af völdum spilltrar fæðu hins vegar. Aðildarríkin voru svo hvött til samstarfs hvað þetta varðar og beðin um að greiða fyrir þátttöku sérfræðinga sinna.
    Nefndin samþykkti einnig ályktun um hvernig koma skuli í framkvæmd alþjóðaskýrslu um ofbeldi og heilsu sem gefin var út árið 2002 á vegum WHO. Í skýrslunni kemur fram að talið er að um 4.000 manns látist á degi hverjum af völdum ofbeldisverka og að mun fleiri verði fyrir líkamlegum eða andlegum skaða af völdum ofbeldis. Í skýrslunni er m.a. farið fram á það að aðildarríki og WHO geri rannsókn á tíðni ofbeldis í hverju landi fyrir sig, enn fremur að aukið verði eftirlit með ofbeldisverkum, að þjónusta við fórnarlömb ofbeldis verði aukin og að rannsakað verði hvernig hægt sé að koma í veg fyrir ofbeldi.
    Eftir mikla umræðu um hvernig hægt væri að auka skilvirkni innan heilbrigðisþjónustunnar var samþykkt ályktun um hlutverk verktakasamninga í að bæta starfsemi heilbrigðiskerfa. Í ályktuninni var farið fram á það við WHO að stofnunin setti upp gagnagrunn með mati á mismunandi tegundum verktakasamninga. Aðildarríkin voru svo hvött til að hafa aukin afköst heilbrigðiskerfisins að leiðarljósi við mótun stefnu um verktakasamninga.
    Nefndin samþykkti næst ályktun um útrýmingu blindu sem koma má í veg fyrir. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin setti af stað átak árið 1999 sem kallast Sýn 2020 (Vision 2020) og miðar að því að blindu sem koma má í veg fyrir verði útrýmt í heiminum árið 2020. Þetta mál var sett á dagskrá vegna mikils þrýstings frá einkageiranum og frjálsum félagasamtökum. Í ályktuninni sem nú var samþykkt var farið fram á það að aðildarríkin styddu við átakið og tryggðu gagnasöfnun í heimalandi sínu. Einnig var farið fram á það að WHO skilaði inn skýrslu til 59. alþjóðaheilbrigðisþingsins árið 2006 um framgang mála.
    Að lokum tók nefndin fyrir skýrslu um samskipti við óháð félagasamtök og var ákveðið að biðja framkvæmdastjórn WHO að skoða betur reglugerðina varðandi þessi samskipti á 113. fundi framkvæmdastjórnarinnar sem haldinn verður í janúar 2004 og skila svo skýrslu með tillögum til 57. alþjóðaheilbrigðisþingsins í maí 2004.

9.    Fjárhagstillögur fyrir tímabilið 2004–2005.
    Tillögur til fjárveitinga á fjárhagstímabilinu 2004–2005 voru eitt af viðfangsefnum nefndar A. Aðalframkvæmdastjóri WHO lagði upphaflega til á framkvæmdastjórnarfundinum janúar sl. að föstu fjárlögin yrðu 908.468.000 bandaríkjadalir. Mörg aðildarríki voru ósátt við þessa upphæð því hér er um töluverða aukningu að ræða. Sátt náðist að lokum á þinginu um að fjárhæðin yrði 880.111.000 dalir sem er hækkun um tæplega 25 milljónir dala eða 2,9% frá síðasta tímabili 2002–2003. Af þessari upphæð falla 863.100.890 dalir í hlut aðildarríkjanna sem föst framlög en þessi upphæð hefur verið 842.654.000 dalir seinustu fjögur fjárhagstímabil. Þess ber að geta að föst framlög eru aðeins tæpur einn þriðji af heildarfjárhagsramma WHO.
    Aðalframkvæmdastjórinn benti á að föst framlög aðildarríkjanna hefðu ekki hækkað seinustu átta árin og væri því þörf á að taka tillit til verðbólgu og aukins kostnaðar, t.d. launakostnaðar. Bandaríkin settu fram kröfu að venju um aukna skilvirkni í starfi WHO en aðalframkvæmdastjórinn taldi að ekki væri hægt að hagræða og skera endalaust niður og nú væri svo komið að stofnunin þyrfti aukið fjármagn. Þegar samkomulag náðist um föstu framlögin spruttu upp miklar deilur um þá aðferð sem notuð skyldi við útreikninga á framlögum hvers aðildarríkis fyrir sig.
    Ákveðið var að nota reikniformúlu Sameinuðu þjóðanna fyrir 2003 við útreikning á föstum framlögum aðildarríkjanna fyrir tímabilið 2004–2005. Hlutfall Íslands helst þá óbreytt og er 0,0325% eða um 280.508 bandaríkjadalir tímabilið 2004–2005.
    Í fjárhagsáætlun WHO er ráð gert fyrir að hin frjálsu framlög hækki úr 1.380.500.000 bandaríkjadölum fyrir fjárhagstímabilið 2002–2003 í 1.824.500.000 dali fjárhagstímabilið 2004–2005. Heildarfjárhagsramminn hækkar því úr 2.236.154.000 dölum í 2.704.611.000 dali eða um 468.457.000 dali, sbr. töflu:

2002–2003
(bandaríkjadalir)
2004–2005
(bandaríkjadalir)
Fastur hluti a) föst framlög aðildarríkja 842.654.000 863.100.890
b) aðrar tekjur 13.000.000 17.010.110
Fastur hluti alls 855.654.000 880.111.000
Frjáls hluti 1.380.500.000 1.824.500.000
    Alls 2.236.154.000 2.704.611.000

10. Fræðslu- og umræðufundir.
10.1 Umræðufundur um HABL (SARS).
    Ákveðið var að halda fund um þennan fyrsta smitsjúkdómafaraldur 21. aldarinnar. Var fundurinn fjölsóttur og skiptust fundargestir á hugmyndum um hvernig hægt væri að auka viðbrögð aðildarríkja við vágesti sem þessum.

10.2 Þúsaldarmarkmiðin; heilbrigði og fátækt.
    WHO kynnti hvernig mismunandi stefna í heilbrigðismálum getur aukið heilbrigði fátækustu þjóða heims. Kynntar voru á fundinum rannsóknarniðurstöður WHO hvernig hægt sé að hafa áhrif á t.d. mæðradauða í þróunarríkjunum.

10.3 Heilbrigði og þroski unglinga.
    Um það bil einn fimmti jarðarbúa eru unglingar og í sumum þróunarlöndum eru þeir allt að einn þriðji af heildaríbúafjölda. Að öllu jöfnu er ekki litið á þennan hóp sem forgangshóp innan heilbrigðiskerfisins. Með tilkomu þúsaldarmarkmiðanna hefur aukin áhersla verið lögð á heilbrigðisvandamál unglinga. Á umræðufundinum var farið yfir heilbrigðisástand og hvernig mæta má þörfum þessa hóps og gefin voru dæmi frá nokkrum aðildarríkjum.

10.4 Öryggi og gæði lyfja og lækningatækja.
    Tekin var fyrir ábyrgð löggjafans til að tryggja gæði og öryggi lyfja og lækningatækja. Tilkynnt var á fundinum að WHO hefði ákveðið að beita sér fyrir því að aðstoða aðildarríki við að bæta löggjöf sína hvað þetta varðaði.

10.5 Tóbaksvarnir á 21. öldinni.
    Á fundinum voru rædd hver yrðu næstu skref eftir að tóbaksvarnasamningurinn öðlaðist gildi. Vakin var athygli á því að vinna aðildarríkjanna væri rétt að hefjast og að veita þyrfti þróunarríkjunum sérstaka aðstoð við að koma samningnum í framkvæmd.

10.6 Aukin áhersla á vinnu WHO í aðildarríkjunum.
    Undanfarin ár hefur áherslan á vinnu WHO í aðildarríkjunum verið að aukast og með nýjum framkvæmdastjóra er ljóst að áherslan muni jafnvel aukast enn. Á fundinum voru ræddar þær hindranir sem yfirstíga þarf til að þetta nái fram að ganga.

11.    Samráðsfundir.
11.1. Norðurlandahópurinn.
    Á hverjum morgni hittust fulltrúar Norðurlandanna og fóru yfir stöðu mála. Farið var yfir hvað hafði gerst daginn áður og það sem var á dagskrá dagsins. Íslendingar tóku við forsæti á fundunum af Svíum sem áttu fulltrúa í framkvæmdastjórninni fram til þessa alþjóðaheilbrigðisþingsins. Íslendingar tóku sæti í framkvæmdastjórninni frá og með núverandi heilbrigðisþingi.

11.2. Vestur-Evrópski hópurinn og aðrir (WEOG).
    Sömuleiðis héldu lönd Vestur-Evrópu og fleiri (e. Western European and Other Groups) samráðsfund á hverjum morgni. Þar var einnig farið yfir stöðu og horfur mála á þinginu. Fundir þessir voru undir forsæti Noregs.

12. Dagskrá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar árið 2004.
    Ákveðið hefur verið að halda 113. fund framkvæmdastjórnarinnar dagana 19.–24. janúar 2004, en ekki hefur verið sett niður dagsetning fyrir framkvæmdastjórnarfundinn í maí. Alþjóðaheilbrigðisdagurinn verður að venju haldinn 7. apríl nk. og er hann tileinkaður umferðaröryggi. 57. alþjóðaheilbrigðisþingið verður svo haldið dagana 17.–22. maí og fundur Evrópudeildar WHO verður haldinn í Evrópusvæðisskrifstofunni í Kaupmannahöfn dagana 6.–9. september 2004.

FUNDUR FRAMKVÆMDASTJÓRNAR WHO Í GENF 29. MAÍ 2003

1. Inngangur.
    Í beinu framhaldi af alþjóðaheilbrigðisþinginu í maí sl. var haldinn 112. fundur framkvæmdastjórnar WHO. Áætlað var að funda dagana 29.–30. maí en vegna hræðslu við hryðjuverk samfara G-8 fundinum, sem haldinn var á sama tíma í Evian í Frakklandi skammt frá Genf, var ákveðið að stytta fundinn og hittast einungis 29. maí.
    Framkvæmdastjórnin hittist að venju tvisvar á ári. Fyrri fundurinn er í janúar og sá seinni ætíð í maí í beinu framhaldi af alþjóðaheilbrigðisþinginu sem haldið er ár hvert. Framkvæmdastjórnin fer með æðsta vald í málefnum stofnunarinnar en í henni sitja 32 aðildarríki hverju sinni. Ísland var formlega kosið í framkvæmdastjórn á alþjóðaheilbrigðisþinginu nú í ár og var þetta því fyrsti fundur Íslands í stjórnarsetu sinni en tímabilið er frá maí 2003 til maí 2006.
    Fyrir Íslands hönd sóttu fundinn Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri og fulltrúi Íslands í framkvæmdastjórn, Ingimar Einarsson skrifstofustjóri, Vilborg Ingólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur, Helgi Már Arthúrsson upplýsingafulltrúi og Ásthildur Knútsdóttir, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins í Genf.

2.    Helstu umræðuefni fundarins.
    Reynt var að takmarka umræðuna undir hverjum lið vegna fyrrnefndrar styttingar á fundinum.
2.1 Niðurstöður alþjóðaheilbrigðisþingsins 2003.
    Farið var yfir þær ályktanir og ákvarðanir sem teknar voru á alþjóðaheilbrigðisþinginu 2003. Þetta var seinasti framkvæmdastjórnarfundur dr. Gro Harlem Brundtland og ávarpaði hún fundargesti og gagnrýndi ónæga skilvirkni á fundum stofnunarinnar. Í þessu samhengi hvatti hún til þess að meiri aga yrði beitt þegar aðildarríki færu yfir tímamörk við flutning ávarpa og að tekin yrði upp notkun fundarhamars. Að auki gagnrýndi hún núverandi kosningareglur þar sem lesin eru upp nöfn þeirra landa í annað sinn sem ekki eru viðstödd fyrri upplestur. Taldi hún þetta tímaeyðslu og á ábyrgð hvers lands fyrir sig hvort það væri viðstatt kosningu eða ekki. Í staðinn væri hægt að gefa þessum löndum tækifæri á að gefa sig fram við talningaborð.

2.2 Endurskoðun aðferða við að finna alþjóðleg samheiti lyfja (INN–International Nonproprietary Names).
    Í samstarfi við sérfræðinga og aðra aðila vinnur WHO að því að finna alþjóðleg samheiti fyrir hvert virkt efni sem markaðssett er sem lyf. Á 110. framkvæmdastjórnarfundinum sem haldinn var í maí 2002 var ákveðið að skoða tillögur um breyttar aðferðir við að finna þessi samheiti. Fyrir stjórnina var nú lagt skjal sem innihélt áætlun sem miðar að því að leggja niðurstöður fyrir framkvæmdastjórnarfundinn í janúar 2004 og ákvað framkvæmdastjórnin að taka skjalið til athugunar. Bandaríkin gagnrýndu að ekki kæmi fram í skjalinu hvað hefði komið hingað til út úr endurskoðuninni.

2.3 Erfðafræði og alþjóðaheilbrigði.
    Þetta virtist vera eitt af hitamálum fundarins og tóku margir til máls. Aðalframkvæmdastjóri WHO fór fram á það í janúar 2001 að ráðgjafahópur um heilbrigðisrannsóknir ynni að gerð skýrslu um áhrif framfara í erfðafræði á alþjóðaheilbrigði. Skýrslan kom út í apríl 2002 og greinir hún m.a. frá nýjustu framförum innan greinarinnar og hvernig þessi þekking gæti leitt til framfara innan læknavísindanna og þar með stuðlað að betri viðbrögðum við sjúkdómum og faröldrum, þá sérstaklega í fátækum löndum heims. Á sama tíma var varað við hættum sem tengst geta þessum framförum og bent á að margar siðferðilegar spurningar geti vaknað samfara þeim.
    Framkvæmdastjórninni var boðið að samþykkja ályktun sem færi fyrir alþjóðaheilbrigðisþingið 2004 þar sem efni og niðurstöður skýrslunnar yrðu samþykktar. Ákveðið var að fresta þessari ákvörðun til framkvæmdastjórnarfundarins í janúar 2004. Enn fremur var ákveðið að fulltrúar framkvæmdastjórnarinnar mundu hafa samskipti þangað til um þetta mál á netmiðli sem WHO veitir aðgang að.

2.4 Líffæra- og vefjaígræðsla.
    Kólumbía hafði sérstaklega beðið um að þetta yrði tekið upp á fundinum þar sem að líffæra- og vefjaígræðslur eru að verða hluti af heilbrigðisþjónustu nánast allra aðildarríkja. Litið hefur verið á ígræðslur sem kostnaðarsparandi í mörgum tilvikum, svo sem nýrnaígræðslur. En með þessari þróun hafa vaknað margar siðferðilegar spurningar. Árið 1991 samþykkti alþjóðaheilbrigðisþingið ályktun um grundvallarreglur sem hafðar skulu að leiðarljósi við líffæraígræðslur. Þessar reglur innihalda ekki reglur um öryggisstaðla eða reglur varðandi greiðslur fyrir líffæri. Eftirspurnin eftir líffærum fer sífellt vaxandi en í auknu hlutfalli við framboð. Hefur því eftirspurn eftir lifandi líffæragjöfum aukist og þar með farið að bera á greiðslum fyrir líffæri eða að líffæri séu fjarlægð úr lifandi líffæragjafa án samþykkis hans.
    Skýrslan sem lögð var fyrir framkvæmdastjórnina var einungis ætluð til að vekja athygli á þessu málefni. Vegna góðra undirtekta var ákveðið að aðalskrifstofan stofnaði sérfræðihóp sem kæmi með ráðleggingar fyrir framkvæmdastjórnarfundinn í janúar 2004. Áætlað er í framhaldi af því að leggja ályktun fyrir alþjóðaheilbrigðisþingið á næsta ári.
    Ísland studdi að endurskoðun færi fram á grundvallarreglunum og lagði að auki áherslu á mikilvægi samvinnu aðildarríkjanna og minntist í því samhengi á Scandiatransplant sem er sameiginlegur líffærabanki Norðurlandanna.

2.5 Tillaga um lénsendingu með heilbrigðisvísun á veraldarvefnum.
    Að beiðni Bandaríkjanna var þetta mál tekið upp á fundinum og lagði aðalskrifstofan fram skjal til upplýsinga þar sem núverandi stöðu er lýst. Samkvæmt stjórnarskrá WHO ber stofnuninni skylda til að veita heilbrigðisupplýsingar og hefur það þótt æ vænlegri kostur að nota veraldarvefinn við miðlun þessara upplýsinga. Á alþjóðaheilbrigðisþinginu 1998 var samþykkt ályktun um lækningatæki og notkun veraldarvefsins við að koma á framfæri heilbrigðisupplýsingum. Um mitt árið 2000 óskaði svo ICANN (Internet Corporation for Assigned Name and Numbers) eftir umsóknum um nýjar endingar á lénum veraldarvefsins og skráði WHO þá endinguna „.health“ sem gæti mætt þörfinni fyrir sérstakan stað á veraldarvefnum þar sem hægt er að nálgast áreiðanlegar heilbrigðisupplýsingar. Þessi tillaga WHO er enn þá óafgreidd hjá ICANN en framkvæmdastjórninni var upphaflega sagt frá þessari umsókn árið 2001 þegar fyrirspurn kom frá Bandaríkjunum.
    Bandaríkin fóru fram á það á fundinum að skoðað yrði hvort þetta samræmdist hlutverki WHO og ef svo væri, þá hversu mikill kostnaður hefði verið lagður í undirbúninginn og hver heildarkostnaðurinn mundi verða við þessa framkvæmd. Að auki vildu þeir vita hver mundi fylgjast með gæðum þeirra heilbrigðisupplýsinga sem fengju þessa lénsendingu og hvert yrði hlutverk ríkisstjórna, almennings og einkageirans.

2.6 Stjórnun og fjármál.
    Fulltrúar framkvæmdastjórnar sitja í ýmsum nefndum og má þar á meðal nefna áætlananefnd, endurskoðunarnefnd og stjórnunar- og fjármálanefnd. Þessar nefndir koma saman fyrir framkvæmdastjórnarfundina og tók Davíð Á. Gunnarsson fulltrúi Íslands sæti í stjórnunar- og fjármálanefnd.
    Nokkur af þeim aðildarríkjum sem nýverið tóku sæti í framkvæmdastjórn tilkynntu á fundinum hvar megináherslur þeirra mundu liggja í stjórnartíð sinni. Sem dæmi má nefna að Kanada ætlar að leggja lið baráttunni við krabbamein. Kúba ætlar að leggja áherslu á áframhaldandi endurskoðun samþykktarinnar frá alþjóðaráðstefnunni um heilsugæslu sem haldin var í Alma Ata. Tékkland ætlar að berjast fyrir Heilbrigði fyrir alla (HFA) og Ísland sagðist ætla að leggja áherslu á málefni lamaðra og fatlaðra og þá ekki eingöngu endurhæfingu heldur einnig meðferð og að auki leggja áherslu á heilbrigðan lífsstíl með tilliti til mataræðis, hreyfingar og áfengisvarna.

3.    Ályktanir fundarins.
    Á fundinum var ein ályktun samþykkt, sbr. fylgiskjal II. Þessi ályktun var frá vinnuhópi sem fór yfir verklagsreglur framkvæmdastjórnarinnar. Ályktunin felur m.a. í sér að maífundur framkvæmdastjórnarinnar verði lengdur um tvo daga til að leyfa betri dreifingu mála á milli þeirra tveggja árlegu funda sem framkvæmdastjórnin heldur. Enn fremur að á 113. fundi framkvæmdastjórnarinnar sem haldinn verður í janúar 2004 verði endurskoðuð (skv. 16. starfsreglunni) starfsemi, tilgangur, umboð og samsetning eftirfarandi nefnda: endurskoðunarnefndar, áætlananefndar og stjórnunar- og fjármálanefndar. Tilgangurinn með þessu er að auka skilvirkni nefndanna svo og samstarf þeirra við framkvæmdastjórnarfundina. Einnig var samþykkt að skoða möguleikana á því að sameina fyrrnefndar nefndir eða auka samstarf þeirra á milli.
    Að auki var ákveðið að frá og með 113. fundi framkvæmdastjórnarinnar muni kennispjöld fulltrúa sem sitja í framkvæmdastjórninni einungis bera nafn þess lands sem þeir eru fulltrúar fyrir en ekki nöfn fulltrúanna sjálfra. Að endingu var leyfi framkvæmdastjórnarinnar til að halda lokaða fundi takmarkað til muna.

FUNDUR SVÆÐISNEFNDAR WHO Í EVRÓPU
Í VÍN 8.–11. SEPTEMBER 2003

1.    Inngangur.
    Dagana 8.–11. september 2003 var 53. fundur svæðisnefndar WHO í Evrópu haldinn í Vín. Fundinn sóttu fulltrúar allra þeirra 52 landa sem tilheyra starfssvæði Evrópuskrifstofunnar. Fulltrúar alþjóðasamtaka og alþjóðastofnana sóttu einnig fundinn.
    Maria Rauch-Kallat, heilbrigðismálaráðherra Austurríkis, var kjörinn forseti fundarins. Fundarstjóri var kosinn dr. Jarkko Eskola frá Finnlandi, varafundarstjóri dr. Bozidar Voljc frá Slóveníu og skýrslugjafi Ainura Ibraimove frá Kirgistan.
    Af Íslands hálfu sóttu fundinn Davíð Á. Gunnarsson ráðuneytisstjóri, Sigurður Guðmundsson landlæknir, Ingimar Einarsson skrifstofustjóri, Vilborg Ingólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur, Helgi Már Arthúrsson upplýsingafulltrúi og Ásthildur Knútsdóttir, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins í Genf.

2.    Helstu umræðuefni fundarins.
    Á fundinum var lögð áhersla á þrjú megindagskrárefni en þau voru endurskoðun á stefnuáherslum WHO um Heilbrigði fyrir alla, geðheilbrigðismál og heilsufar barna og ungmenna.

2.1 Endurskoðun áætlunar WHO um Heilbrigði fyrir alla (HFA).
    Í umræðum um endurskoðun áætlunar WHO um Heilbrigði fyrir alla kom meðal annars fram að afar brýnt væri að koma upp gagnabanka svo safna mætti saman allri þeirri gagnreyndu þekkingu sem liggur fyrir á sviði lýðheilsu í álfunni og beita þannig hagkvæmustu og árangursríkustu aðferðunum til að efla þá þjónustu sem veita þarf. Gert er ráð fyrir að heildarendurskoðun á heilbrigðisáætlun WHO verði lokið innan tveggja ára. Margar þjóðir í Evrópu hafa sett sér heilbrigðisáætlanir sem byggjast á grunnstefjum Heilbrigðis fyrir alla sem WHO setti fram og er Ísland eitt þeirra ríkja.
    Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri og stjórnarmaður í WHO, fjallaði á þinginu um áætlanagerð af þessu tagi, hann greindi frá sérkennum íslensku heilbrigðisáætlunarinnar og útskýrði fyrir fundarmönnum nokkra þætti hennar. Þá dró Davíð fram og tók undir nokkra þætti sem fram höfðu komið hjá framkvæmdastjóra Evrópuskrifstofunnar, dr. Marc Danzon, m.a. að huga yrði sérstaklega að siðfræði heilbrigðisþjónustunnar á næstu árum.

2.2 Geðheilbrigðismál.
    Dr. Guðjón Magnússon, einn framkvæmdastjóra WHO í Kaupmannahöfn, hafði framsögu um geðheilbrigðismál. Hann greindi meðal annars frá undirbúningi evrópskrar ráðherraráðstefnu um efnið, sem haldin verður í Finnlandi 2005, en þar er gert ráð fyrir að evrópskir ráðherrar heilbrigðismála móti sameiginlega stefnu eða áherslur álfunnar í geðheilbrigðismálum.
    Umræðurnar um geðheilbrigðismál einkenndust af þeirri staðreynd að geðrænir kvillar og sjúkdómar virðast fara vaxandi hvarvetna í álfunni, geðheilbrigðismálum er nú gefinn meiri gaumur víða um lönd en áður og á næstu árum þykir einsýnt að WHO muni leggja ríka áherslu á og hvetja til þess að geðheilbrigðismálin verði sett í brennipunkt.
    Sigurður Guðmundsson landlæknir kynnti á fundinum áherslur Íslendinga í geðheilbrigðismálum. Sigurður fjallaði sérstaklega um samband geðraskana og sjálfsvíga og dró fram það sem gert hefur verið af hálfu embættisins og heilbrigðisyfirvalda í forvarnaskyni og sagði frá rannsóknum og verkefnum sem unnið er að á þessu sviði á Íslandi.

2.3 Heilsufar barna og ungmenna.
    Alþjóðaheilbrigðisþingið í ár samþykkti alþjóðaáætlun sem miðar að því að styðja við heilsu og þroska barna og unglinga. Sérstök Evrópuáætlun mun leggja áherslu á sálfélagslegan þroska og geðheilbrigði barna og unglinga. Að auki mun Evrópuáætlunin leggja áherslu á að mæður séu bólusettar gegn rauðum hundum og að skoðað verði hvernig koma megi í veg fyrir misnotkun mæðra á áfengi og tóbaki.
    Mikill munur er á heilsu barna og ungmenna í Evrópulöndunum. Þessi munur er greinilegur þegar skoðaðar eru tölur um ungbarnadauða og fjölda unglingsmæðra milli landa. Tíðni geðsjúkdóma og sjálfsvíga hefur aukist síðustu ár og um 84% þeirra sem greinast með alnæmisveiruna eru yngri en 30 ára.
    Danmörk fyrir hönd Norðurlandanna lagði áherslu á að með því að bæta heilsu barna og unglinga væri stórt skref stigið í átt að því að ná þúsaldarmarkmiðunum. Enn fremur lögðu Norðurlöndin til að lögð yrði meiri áhersla á að fyrirbyggja áhættuhegðun unglinga, svo sem offitu, reykingar, áfengis- og vímuefnamisnotkun, óléttu unglingsstúlkna og kynsjúkdóma, þar á meðal alnæmi.

2.4 Ræða aðalframkvæmdastjóra WHO.
    Dr. Lee Jong-wook, hinn nýi aðalframkvæmdastjóri WHO, ávarpaði Vínarfundinn og var það í fyrsta skipti sem aðalframkvæmdastjórinn sækir fund Evrópudeildar samtakanna eftir að hann tók við núverandi starfi sínu. Dr. Lee dró fram í máli sínu helstu áherslur samtakanna. Hann lagði áherslu á að heilbrigðisþjónustuna bæri að skilgreina sem eina heild í þeim skilningi að veikindi á unga aldri gætu og hefðu oft varanleg áhrif á fullorðinsár þess sem í hlut á. Hann fjallaði, eins og fleiri gerðu á Vínarfundinum, um tóbakssáttmálann sem samkomulag náðist um og skrifað var undir í Genf í júní og dró fram að 50 lönd hefðu skrifað undir sáttmálann en aðeins eitt þeirra fullgilt hann, en það var Noregur. Hvatti dr. Lee þjóðir heims til að fara að dæmi Norðmanna. Þess má geta að frá því að fundur svæðisnefndar Evrópu var haldinn í september sl. hafa nokkur lönd til viðbótar fullgilt samninginn.
    Nokkrar umræður urðu um ræðu aðalframkvæmdastjórans. Davíð Á. Gunnarsson flutti aðalframkvæmdastjóranum árnaðaróskir íslenskra yfirvalda og lýsti ánægju sinni með áherslur hans. Tók Davíð undir með dr. Lee sem sagt hafði að ójöfnuður í heilbrigðisþjónustunni væri eitt það alvarlegasta sem margar þjóðir heims stæðu frammi fyrir. Davíð Á. Gunnarsson ítrekaði í máli sínu að hann mundi í störfum sínum í stjórn WHO einbeita sér að verkefnum sem stuðla mundu að heilsusamlegum lífsháttum, að fækka umferðarslysum og þar með alvarlegum afleiðingum þeirra, og að WHO léti meira til sín taka í málefnum fatlaðra og hreyfihamlaðra í framtíðinni.

2.5 Hitabylgjan í Evrópu.
    Annað mál sem mjög bar á góma utan hinnar fyrir fram ákveðnu dagskrár voru afleiðingar hitabylgjunnar í sunnanverðri Evrópu í sumar. Í máli fransks fulltrúa á þinginu kom fram að um 11.500 manns hefðu látist vegna hitanna, yfirgnæfandi meiri hluti eldri borgarar. Ýmislegt bendir til þess að hjálpin sem aldraðir njóta venjulega, svo sem heimilishjálp, umönnun ættingja og vina og hvers konar önnur aðstoð, hafi að engu orðið í hitabylgjunni sem reið yfir Frakkland þegar flestir Frakkar voru í sumarfríi og þannig orðið til þess að aldraðir fengu ekki þá heilbrigðisþjónustu sem þeir þurftu á að halda.
    Í umræðunum um málið kom fram að heilbrigðisyfirvöld í Evrópu líta það sem gerðist mjög alvarlegum augum og eins hitt að menn skuli hafa staðið ráðþrota gagnvart því ástandi sem skapaðist. Voru forustumenn Evrópuskrifstofu WHO hvattir til að setja málið með afgerandi hætti á dagskrá samtakanna, reyna að skýra hvað gerðist með vísindalegum hætti og miðla upplýsingunum til aðildarlandanna. Var á fundinum lagt fram bráðabirgðayfirlit af hálfu WHO um það sem gerðist en þar koma m.a. fram leiðbeiningar um hvernig bregðast skuli við og jafnframt eru aðildarþjóðirnar hvattar til að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða til að freista þess að koma í veg fyrir að atburðirnir frá í sumar endurtaki sig.

3.    Ályktanir fundarins.
    Á fundi svæðisnefndar WHO voru samþykktar átta ályktanir, sbr. fylgiskjal III, og er hér gerð grein fyrir helstu atriðum þeirra.

3.1 Aðild að framkvæmdastjórn WHO.
    Samþykkt var ályktun þar sem aðildarríki voru beðin um að fullgilda breytingar á 24. og 25. gr. stjórnarskrár WHO sem mun gefa Evrópusvæðinu áttunda sætið í framkvæmdastjórn en eins og er eru sjö sæti tileinkuð Evrópusvæðinu. Að auki var sætaskipting innan Evrópusvæðisins ákveðin. Eins og er hafa þau lönd Evrópu sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, þ.e. Frakkland, Bretland og Rússland, rétt til setu í framkvæmdastjórn WHO þrjú af hverjum fjórum árum. Svæðisnefndin mælti með því að þessi lönd tækju einungis stöðu í framkvæmdastjórn þrjú af hverjum sex árum frá og með árinu 2006. Í ályktuninni voru aðildarríkin svo hvött til að notast við leiðbeiningar fastanefndar Evrópuskrifstofunnar við val á einstaklingum til setu í framkvæmdastjórn og að lokum var fastanefnd Evrópuskrifstofunnar falið að gefa út skýrslu árið 2010 um gang mála.

3.2 Framkvæmd Evrópuáætlunar WHO um aðlögun þjónustu að nýjum þörfum.
    Aðildarríkin samþykktu ályktun þar sem fram kom að þau væru sammála um að framvinda hafi orðið í málum sem snúa að því að auka gæði og sníða heilbrigðisþjónustu að þörfum hvers aðildarríkis fyrir sig. En Evrópuáætlunin er hugsuð sem stuðningur við aðildarríkin við þróun á heilbrigðisstefnu, heilbrigðisþjónustu og heilsugæslu. Evrópuskrifstofan var beðin um að halda áfram vinnu sinni og leggja skýrslu um framvindu fram fyrir næsta fund svæðisnefndar Evrópu 2004.

3.3 Endurskoðun á Heilbrigði fyrir alla á 21. öldinni (HFA 21): heilbrigðisstefna fyrir Evrópu.
    Samþykkt var ályktun um áætlun fyrir endurskoðun á heilbrigðisstefnu Evrópu: Heilbrigði fyrir alla á 21. öldinni. Þessari endurskoðun á að ljúka árið 2005 en hún hófst fyrr á þessu ári. Þess má geta að síðasta endurskoðun á heilbrigðisstefnu Evrópu fór fram 1998.
    Áætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um heilbrigði fyrir alla má rekja allt aftur til ársins 1977 en árið 1980 var þessi heilbrigðisstefna tekin upp innan Evrópusvæðisins og árið 1984 var hún sérstaklega aðlöguð að heilbrigðismálum í Evrópu. Stefnan hefur haft mikla þýðingu fyrir þróun heilbrigðismála um heim allan, ekki síst í aðildarríkjum Evrópusvæðisins.

3.4 Geðheilsa í Evrópu.
    Í alþjóðaheilbrigðisskýrslu WHO kemur fram að geðheilsa innan Evrópusvæðisins hefur staðið í stað seinustu árin. Í áætluninni er farið fram á það við Evrópuskrifstofuna að hún skipuleggi ráðherrafund um geðheilsu í Helsinki í janúar 2005. Enn fremur að hún taki tillit til geðheilsu við endurskoðun á heilbrigðisstefnu Evrópu: Heilbrigði fyrir alla (HFA).

3.5 Skipun í nefnd sem fer yfir umsóknir til stöðu framkvæmdastjóra Evrópudeildar WHO.
    Samþykkt var ályktun um skipan í nefnd sem fer yfir umsóknir til stöðu framkvæmdastjóra Evrópudeildar en þetta er í fjórða skiptið sem Evrópudeildin skipar slíka nefnd. Davíð Á. Gunnarsson var kosinn einn af varamönnum nefndarinnar. Að auki voru kosnir nefndarmenn dr. Ainura Ibraimova frá Kirgistan, Barbara Bitner frá Póllandi, Pr. José Martin-Moreno frá Spáni og varamenn dr. Sergei Mikhajlovich Furgal frá Rússlandi og Pr. Sabahattin Avdin frá Tyrklandi.
    Núverandi framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofunnar, dr. Mark Dansson, mun ljúka kjörtímabili sínu á næsta ári en hann hefur þegar tilkynnt framboð sitt til áframhaldandi setu á næsta kjörtímabili.

3.6 Skýrsla fastanefndar svæðisnefndarinnar.
    Svæðisnefndin samþykkti skýrslu fastanefndarinnar og fól framkvæmdastjóra Evrópuskrifstofunnar að framfylgja niðurstöðum og tillögum hennar. Skýrslan innihélt niðurstöður og ákvarðanir frá fundum nefndarinnar í september og desember 2002 og apríl og maí 2003.

3.7 Heilbrigði barna og unglinga í Evrópu.
    Í ályktuninni sem samþykkt var undir þessum lið var farið fram á að það við Evrópuskrifstofuna að gerð yrði sérstök áætlun fyrir Evrópu um heilbrigði barna og unglinga í samvinnu við aðildarríkin og að áætlunin yrði svo kynnt á 55. fundi svæðisnefndarinnar 2005. Að auki voru aðildarríki hvött til að vinna að því að auka heilbrigði barna og unglinga. Í ályktuninni var einnig farið fram á að tekið yrði tillit til útkomu ráðherrafundarins um umhverfi og heilsu sem halda á í Búdapest 23.–25. júní 2004 og að tekið yrði tillit til sérstaks kafla í Evrópuskýrslu svæðisefndarinnar 2005 sem fjalla mun um heilbrigði barna og unglinga.

3.8 Næstu fundir svæðisnefndar WHO.
    Svæðisnefndin ákvað að 54. fundur nefndarinnar yrði haldinn í Kaupmannahöfn 14.–18. september 2004. Ekki var ákveðið hvar 55. fundur nefndarinnar 2005 verður haldinn en Eistland, Georgía og Rúmenía hafa boðist til að halda fundinn.

ALÞJÓÐAHEILBRIGÐISDAGURINN 2003

    Alþjóðaheilbrigðisdagurinn í ár sem haldinn var 7. apríl sl. var helgaður því að tryggja börnum heilbrigt umhverfi. Rúmlega fimm milljónir barna yngri en 14 ára deyja á ári hverju af völdum sjúkdóma sem beint og óbeint má rekja til ýmissa þátta í umhverfi þeirra.
    Algengustu ástæðurnar eru sjúkdómar í þriðja heiminum, svo sem niðurgangur, malaría og aðrir sjúkdómar sem berast með smitferjum, t.d. skordýrum. Einnig verða mörg dauðsföll barna af völdum bráðasýkingar í öndunarfærum og meiðsl eða örkuml af völdum slysa.
    Í ávarpi dr. Gro Harlem Brundtland sagði hún að unnt væri að koma í veg fyrir mörg dauðsföll og að til væru áætlanir sem brýnt væri að hrinda í framkvæmd. Hún hvatti heilbrigðisyfirvöld til að leita svara við því hvaða hættur það eru sem ógna öryggi barna í skólanum, í borg og bæ eða á heimilum og hvernig sé unnt að koma í veg fyrir þær.
    Í tilefni alþjóðaheilbrigðisdagsins boðaði heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið til fundar sem hófst með setningarávarpi Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Umræða fundarins snerist um áherslur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar varðandi heilbrigt umhverfi barna, enn fremur var heilbrigð sjálfsmynd grunnskólabarna og börn og fátækt tekin fyrir.



Fylgiskjal I.


Ályktanir Alþjóðaheilbrigðisþingsins.

I. Tæknileg málefni.
Nr. Efni ályktunar Bakgrunns-
skjöl
Krafa á
aðalskrifstofu WHO
Krafa á
aðildarríkin
WHA56.1 Rammasamningur um tóbaksvarnir WHA49.17
WHA52.18
A56/INC.DOC./7
Styðja aðildarríki
við framkvæmd.
Yfirumsjón.
Íhuga undirskrift/
samþykkt og fullgildingu
eins fljótt og auðið er.
WHA56.6 25 ára afmæli alþjóðaráðstefnu um heilsugæslu (Alma-Ata) A56/27 Halda endurmatsfund. Koma viðhorfum heilsugæslu inn í dagskrá WHO.
Skýrsla til WHA57.
Þróa heilsugæslu.
Þjálfa starfsfólk.
Virkja samfélagið.
WHA56.7 Útrýming afrísku svefnsýkinnar A56/9 Samhæfa herferð gegn svefnsýki.
Skýrsla til WHA57.
Styðja Afríku í útrýmingarherferð gegn svefnsýki og tsetse-flugunni.
WHA56.19 Forvarnir og stjórnun á inflúensu og öðrum árlegum faröldrum WHA22.47
WHA48.13
EB111.R6
Stuðningur við aðildarríki.
Stuðla að nýjum leiðum til samvinnu.
Forustuhlutverk.
Styrkja alþjóðaeftirlit.
Stofna/styrkja bólusetningarherferðir í heimalandi.
Auka viðbúnað.
Styrkja rannsóknir á bóluefnum.
WHA56.20 Fækkun dauðatilfella af völdum mislinga E111.R5 Svæðaskrifstofur styðji aðildarríkin við bólusetningar og eftirlit.
Styrkja samstarf; alþjóðlegt, milli svæða og innan lands.
Skýrsla til WHA57.
Framkvæmd áætlunar WHO/ UNICEF um fækkun dauðatilfella af völdum mislinga.
Styrkja bólusetningar í heimalandi.
WHA56.21 Heilbrigðis- og þroskaáætlun barna og unglinga A56/15
Ályktun
allsherjarþings Sþ 48/104
WHO/FCH/CAH/ 02.21
Styðja aðildarríkin í að ná alþjóðlegum markmiðum.
Efla rannsóknir.
Hafa lýðheilsu að leiðarljósi í baráttunni við almenna sjúkdóma.
Styðja rannsóknir á þáttum sem hafa áhrif á lífsstíl unglinga.
Skýrsla til WHA57.
Auka viðleitni til að ná alþjóðlegum markmiðum um fækkun dauðatilfella mæðra og barna, svo og koma í veg fyrir næringarskort.
Auka umfang gagnreyndra rannsókna sem miða að því að styrkja heilbrigðan þroska barna og unglinga.
WHA56.22 Alþjóðaáætlun fyrir efnastjórnun: þátttaka alþjóða- heilbrigðisgeirans Hafa yfirumsjón með þróun áætlunar.
Samstarf við UNEP, umhverfisnefnd Sameinuðu þjóðanna.
Leggja fram áætlunina á WHA þegar henni hefur verið lokið.
Taka fullt tillit til heilsuþátta sem tengjast efnaöryggi.
Þróa alþjóðaáætlun fyrir efnastjórnun.
WHA56.23 Sameiginlegt mat FAO/WHO á vinnu fæðustaðlanefndar (Codex Alimentarius) WHA40.20
WHA53.15
A56/34
Þróa framkvæmdaáætlun til að koma til móts við ráðleggingar í skýrslu Codex-nefndarinnar.
Samstarf við FAO.
Styrkja vinnu tengda fæðuöryggi.
Greina tengsl milli sjúkdóma sem berast með fæðu og sjúkdóma af völdum spilltrar fæðu.
Taka virkan þátt í vinnu að alþjóðastöðlum innan Codex- rammans.
Hvetja til samstarfs innan greinarinnar.
Greiða fyrir þátttöku sérfræðinga í alþjóðasamstarfi.
WHA56.24 Alþjóðaskýrsla um ofbeldi og heilsu: framkvæmd ráðlegginga EB111.R7
WHA49.25
WHA50.19
Samstarf við aðildarríkin um mótun heilbrigðisstefnu.
Stuðla að gagnreyndum rannsóknum.
Samstarf við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna.
Kynna skýrsluna.
Heilbrigðisráðuneyti tilnefni tengilið.
Útbúa skýrslu um ástand í heimalandi.
WHA56.25 Hlutverk verktakasamninga í því að auka afköst heilbrigðiskerfa A56/22 Búa til gagnagrunn um mat á mismunandi tegundum verktakasamninga.
Auðvelda aðgengi að þekkingu á þessu sviði.
Þróa mælitæki og aðferðarfræði.
Samþykkja verktakasamninga með tilliti til stefnu í heilbrigðismálum.
Hafa aukin afköst heilbrigðiskerfis að leiðarljósi við mótun stefnu varðandi verktakasamninga.
Deila þekkingu.
WHA56.26 Útrýming blindu sem koma má í veg fyrir A56/26
WHA22.29
WHA25.55
WHA28.54
WHA45.10
WHA51.11
Skipuleggja framkvæmd á átakinu Sýn 2020 (Vision 2020).
Þjálfa starfsfólk.
Skýrsla til WHA59.
Styðja við átakið Sýn 2020.
Tryggja skipulag í heimalandi og virka gagnasöfnun.
WHA56.27 Einkaleyfaréttindi og nýsköpun innan heilbrigðisþjónustunnar WHA56/17 Aðstoða aðildarríki við að deila tækni og upplýsingum.
Gera greiningu á einkaleyfisréttindum.
Fylgjast með afleiðingum alþjóðlegra einkaleyfasamninga á alþjóðaheilbrigði.
Aðlaga löggjöf til að geta fullnýtt samninginn um TRIPS (aðgangur aðildarríkja WTO að nauðsynlegum lyfjum).
(Reyna að ná samkomulagi um málsgrein 6 í Doha- yfirlýsingunni – þetta samkomulag náðist innan WTO í september 2003).
WHA56.28 Endurskoðun á alþjóðaheilbrigðisreglugerðum (IHR) EB111.R13
WHA48.7
WHA48.13
WHA54.14
WHA55.16
Kalla saman alþjóðlegan vinnuhóp um endurskoðun IHR.
Vara alþjóðasamfélagið við ógnunum við almannaheill og starfa í samvinnu við aðildarríkin við mat á alvarleika atvika sem upp koma.
Greiða fyrir því að lokið verði við endurskoðun á IHR.
Gefa forgang vinnu sem miðar að endurskoðun IHR.
Koma á fót starfshópi.
Tryggja marglaga samstarf.
WHA56.29 HABL (SARS) A56/48
WHA48.13
WHA54.14
EB111.R6
EB111.R13
Viðhalda stjórnun á SARS. Endurskoða og staðla leiðbeiningar.
Endurskoða upplýsingar um smitleiðir.
Virkja vísindalegar rannsóknir.
Styrkja viðbragða- og viðvaranakerfi WHO við heimsfaröldrum (The Global Network).
Skýrsla til WHA57.
Skuldbinda sig til að hafa stjórn á SARS.
Nota leiðbeiningar sem WHO leggur til.
Tilkynna tafarlaust ný tilfelli.
Auka eftirlit með SARS.
Samvinna og aðstoð við viðbragða- og viðvaranakerfi WHO (The Global Network).
WHA56.30 Alþjóðaalnæmisáætlun EB111.R4
A56/12
Veita aðildarríkjum stuðning við að koma áætluninni í framkvæmd.
Veita tæknilegan stuðning við undirbúning á umsókn til Heimssjóðsins (The Global Fund).
Aðstoða aðildarríki í viðleitni sinni við að ná takmarki WHO um aukin aðgang að andretroveiru- lyfjameðferð.
Stjórna marglaga tilboðum um stuðning.
Skýrsla til WHA57.
Hrinda áætluninni í framkvæmd.
Fá sem flesta til að taka þátt í framkvæmd og mati á árangri áætlunarinnar.
Auka samstarf í baráttunni við alnæmi.
Tryggja að hagsmunir almennings séu hafðir í fyrirrúmi við mótun stefnu um aðgang að lyfjum og heilbrigðisþjónustu.
WHA56.31 Óhefðbundin lyf EB111.R12
WHA22.54
WHA29.72
WHA30.49
WHA31.33
WHA40.33
WHA41.19
WHA42.43
WHA54.11
Aðstoða aðildarríki við stefnumótun.
Veita aðildarríkjum tæknilega aðstoð við þróun mælitækja og aðferðarfræði til að tryggja gæði.
Aðstoða aðildarríki við að skilgreina hvenær hvaða meðferð geti verið við hæfi.
Leita eftir gagnreyndum upplýsingum um óhefðbundnar meðferðir.
Skýrsla til WHA58.
Grundvalla vinnuáætlanir á áætlun WHO um óhefðbundin lyf.
Viðurkenna hlutverk þeirra sem leggja stund á óhefðbundin meðferðarform.
Styðja rannsóknir á óhefðbundnum meðferðum.
Veita áreiðanlegar upplýsingar.
Hvetja til þess að aðildarríkin setji óhefðbundin lyf inn í lista sína yfir nauðsynleg lyf.


II. Stjórnunarleg málefni.
Nr. Efni ályktunar Bakgrunnsskjöl Niðurstaða
WHA56.2
WHA56.3
Skipun nýs aðalframkvæmdastjóra
Starfssamningur aðalframkvæmdastjóra
EB111.R15
EB111.R16
A56/6
Dr. Lee Jong-wook settur aðalframkvæmdastjóri.
Starfssamningur samþykktur.
WHA56.4 Þakklæti til dr. Gro Harlem Brundtland EB111.R17 Dr. Gro Harlem Brundtland boðið að fara á eftirlaun.
WHA56.8 Skipun í stöðu ytri endurskoðanda A56/31
A56/31 Add.1
& Add2
Ríkisendurskoðandi Indlands settur yfir næstu tvö fjárhagstímabil 2004– 2005 og 2006– 2007.
WHA56.9 Óendurskoðuð bráðabirgðafjármálaskýrsla yfir reikninga WHO fyrir 2002 A56/28
A56/28 Add.1
A56/47
Óendurskoðuð fjármálaskýrsla fyrir 2002 samþykkt.
WHA56.10 Aðildarríki sem ekki hafa greitt nægan hluta framlaga sinna og missa þar með kosningarétt sinn á alþjóðaheilbrigðisþinginu eins og kveður á um í grein 7 í stjórnarskrá WHO A56/32 Kosningaréttur Hvítarússlands, Perú, Sankti-Lúsía og Venesúela gerður óvirkur fyrir WHA57 ef framlög þessara landa verða enn í vanskilum í maí 2004.
Lönd án kosningaréttar á WHA56 gerð nafnkunn (þar af 8 lönd frá Evrópu).
WHA56.11 Vanskil á framlögum: Kasakstan A56/32
A56/33
Kasakstan samþykkir ný áform um endurgreiðslu.
Kasakstan fær kosningarétt.
WHA56.12 Endurmat á framlögum fyrir árin 2002 og 2003 Ákvörðun
EB111(3)
Endurskoðuð framlög Tímor-Leste, Afganistans og Argentínu samþykkt.
WHA56.13
WHA56.14
Fasteignasjóður
Fasteignasjóður: Svæðisskrifstofa Afríku
A56/5
WHA55.8
WHO heimilaði byggingu nýrra höfuðstöðva fyrir svæðisskrifstofu Afríku í Brazzaville.
WHA56.15 Innlimun Tímor-Leste inn í SuðausturAsíusvæðið A56/36 Ákveðið var að Tímor-Leste yrði eitt af þeim löndum sem tilheyra SuðausturAsíusvæðinu.
WHA56.16 Innlimun Kýpur inn í Evrópusvæðið frá Austur-Miðjarðarhafssvæðinu A56/37 Ákveðið var að Kýpur yrði eitt af þeim löndum sem tilheyra Evrópusvæðinu.


III. Fjárhagsáætlun 2004–2005.
Nr. Efni ályktunar Bakgrunnsskjöl Niðurstaða
WHA56.32 Fjárhagsáætlun fyrir tímabilið 2004– 2005 PB/2004–2005
A56/INF.DOC./1
A56/51
EB111/2003/REC/1
EB111.R3
A56/5
A56/50
A56/6
A56/7
Föst framlög hljóða upp á 880.111.000 bandaríkjadali. Gert er ráð fyrir að aðrar tekjur verði 1.824.500.000 dalir. Þar með eru heildartekjur metnar
2.704.611.000 dalir.
Ákveðið var að 12.364.000 dalir af öðrum tekjum (miscellaneous) yrðu notaðir til að brúa það bil sem vantar inn í aðlögunartímabil á framlögum aðildarríkja milli 2000–2001 og 2004–2005.
Aðalframkvæmdastjóri beðinn um að setja fram skýrslu á 113. framkvæmdastjórnarfundinum í janúar 2004 sem inniheldur útgjaldaliði fyrir rekstur á tímabilinu 2004–2005.
WHA56.33 Aðferð við útreikninga á framlögum aðildarríkja A56/35
A56/INF.DoC./3
A56/51
EB111/2003/REC/1
Ákvörðun EB111(3)
Viðurkennd var nýjasta aðferð Sameinuðu þjóðanna við útreikning á framlögum þar sem hvert aðildarríki greiðir minnst 0,0001% eða mest 22% af heildarframlögum.
WHA56.34 Aðlögunarferli að nýrri aðferð við útreikninga á framlögum WHA56.33 Sett var fram aðlögunarferli þar sem fjármunir eru fundnir til að brúa bilið milli framlaga fyrir tímabilið 2001– 2002 borið saman við næstu tvö tímabil 2004– 2005 og 2006– 2007.


IV. Starfsmannamál.
Nr. Efni ályktunar Bakgrunns-
skjöl
Niðurstaða/útkoma
WHA56.17 Starfsmannamál: jafnvægi í kynjahlutfalli A56/39
WHA50.16
Ítrekuð var áætlun um að konur gegndu helmingi sérfræðistarfa og annarra hærri skilgreindra starfa (e. high-category posts).
WHA56.35 Fjöldi starfsmanna frá þróunarlöndunum innan aðalskrifstofunnar WHA55.24
A56/40
Eftirfarandi reikniregla var samþykkt varðandi ráðningu starfsmanna WHO: framlög vega 45%, aðild (1/192 aðildarríkjum) vega 45% og íbúafjöldi aðildarríkis vegur 10%.
Sett var markmið að 60% (næstu 2 árin) af nýráðnu starfsfólki komi frá aðildarríkjum sem hafa enga eða of fáa starfsmenn samkvæmt reikniformúlunni hér að ofan.
Framvinduskýrsla til WHA57.
WHA56.18 Laun aðalframkvæmdastjóra og starfsfólks í óflokkuðum störfum EB111.R10 Laun endurskoðuð frá janúar 2003.


V. Önnur mál.
Nr. Efni ályktunar Bakgrunnsskjöl Krafist af aðalskrifstofu WHO
WHA56.5 Heilsuástand, og aðstoð við, Araba á hernumdum svæðum í Mið-Austurlöndum,
þar á meðal Palestínu
A56/44
Fyrri ályktanir um heilsuástand á hernumdum svæðum í Mið-Austurlöndum.
Stuðningur við heilbrigðisráðuneyti Palestínu.
Veita tækniaðstoð við heilbrigðisáætlanir fyrir Palestínumenn.
Skýrsla til WHA57.
Fylgiskjal II.


Nr. Efni ályktunar Bakgrunnsskjöl Niðurstaða
EB112.R1 Verklagsreglur framkvæmdastjórnarinnar WHA54.22
WHA33.17
EB112/8
Ákvörðun EB109(2)
Að maífundur framkvæmdastjórnarinnar verði lengdur um 2 daga.
Endurskoðuð verði starfsemi, tilgangur, umboð og samsetning endurskoðunarnefndar, áætlananefndar og stjórnunar- og fjármálanefndar.
Að frá og með EB113 beri kennispjöld nafn þeirra landa sem eiga sæti í framkvæmdastjórn en ekki nafn fulltrúa þessara landa.
Að aðalframkvæmdastjóri athugi hvort hægt sé að breyta tímasetningum fundanna og skili skýrslu þess efnis til EB113.
Að ályktun verði lögð fyrir 57. alþjóðaheilbrigðisþingið 2004.



Fylgiskjal III.


Nr. Efni ályktunar Bakgrunns-
skjöl
Niðurstaða
EUR/RC53/R1 Aðild að framkvæmdastjórn EUR/RC53/4 Aðildarríki hvött til að fullgilda breytingar á greinum 24 og 25 í stjórnarskrá WHO, sem mun gefa Evrópu áttunda sætið í framkvæmdastjórn (Ísland hefur þegar fullgilt þessar greinar).
Aðildarríki eru beðin um að notast við leiðbeiningar fastanefndar Evrópuskrifstofu við val á einstaklingum til setu í framkvæmdastjórn.
Mælst er til þess að frá og með 2006 sitji þau lönd sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna einungis 3 af hverjum 6 árum í framkvæmdastjórn WHO.
Mælst er til þess að frá og með 2004 verði farið eftir tillögum fastanefndar Evrópuskrifstofu um sætaskiptingu innan Evrópusvæðisins.
Skýrsla um gang mála til RC60, fundar svæðisnefndar WHO í Evrópu 2010.
EUR/RC53/R2 Framkvæmd Evrópuáætlunar um aðlögun þjónustu að nýjum þörfum EUR/RC50/R5
EUR/RC49/R5
EUR/RC53/10
Að Evrópuskrifstofan vinni að því að koma Evrópuáætluninni í framkvæmd.
Að Evrópuskrifstofan skili inn skýrslu um gang mála til RC54, fundar svæðisnefndar Evrópu árið 2004.
Ákveðið var að aðildarríki mundu styðja svæðisskrifstofu Evrópu við frekari útfærslu og framkvæmd á Evrópuáætluninni.
EUR/RC53/R3 Endurskoðun á Heilbrigði fyrir alla (HFA): heilbrigðisstefnu fyrir Evrópu EUR/RC48/R5 EUR/RC53/8 Að Evrópuskrifstofan haldi áfram endurskoðunarferlinu.
Að Evrópuskrifstofan ráðfæri sig við aðildarríkin.
Að Evrópuskrifstofan skili skýrslu til RC54.
Að Evrópuskrifstofan skili inn lokaendurskoðun til samþykktar á RC55.
EUR/RC53/R4 Geðheilsa í Evrópu EUR/RC51/R5 EUR/RC53/7 The World Health Report 2002 Að Evrópuskrifstofan taki tillit til geðheilsu við endurskoðun á heilbrigðisstefnu Evrópu: Heilbrigði fyrir alla (HFA).
Að Evrópuskrifstofan skipuleggi ráðherrafund um geðheilsu í Evrópu, í Helsinki í janúar 2005. Enn fremur að þema fundarins verði: „tekist á við áskoranir – úrlausnir fundnar“.
EUR/RC53/R5 Skipun í nefnd sem fer yfir umsóknir til stöðu framkvæmdastjórnar Evrópudeildar (Regional Search Group) EUR/RC53/Inf. Doc./2 Sex fulltrúar skipaðir í nefndina.
Nefndin skal fara eftir reglum í skjali EUR/RC53/Inf.Doc./2 og skila inn skýrslu til RC54.
EUR/RC53/R6 Skýrsla fastanefndar svæðisnefndarinnar EUR/RC53/4
EUR/RC53/4 Add.1
EUR/RC53/R1
Skýrsla nefndarinnar samþykkt.
Evrópuskrifstofan beðið um að taka mark á niðurstöðum og tillögum skýrslunnar.
EUR/RC53/R7 Heilbrigði barna og unglinga í Evrópu WHA56.21
EUR/RC53/11
Aðildarríkin eru hvött til að leggja aukna áherslu á heilsu og þroska barna og unglinga, þar á meðal hreyfingu og geðheilbrigði.
Farið fram á það að Evrópuskrifstofan haldi áfram að undirbúa Evrópuáætlun um heilbrigði barna og unglinga í samvinnu við aðildarríkin, og að hún skili skýrslu til RC55.
Farið fram á það að Evrópuskrifstofan taki í Evrópuáætluninni um heilbrigði barna og unglinga tillit til útkomu ráðherrafundarins um heilbrigði og umhverfi, sem haldinn verður í Búdapest 23.– 25. júní 2004. Enn fremur að tillit verði tekið til sérstaks kafla um heilbrigði barna og unglinga í „heilbrigðisskýrslu Evrópu 2005“.
EUR/RC53/R8 Dagsetningar og staðsetningar næstu funda Evrópusvæðisnefndar WHO EUR/RC52/R5 Að 54. fundur svæðisnefndar Evrópu verði haldinn í svæðisskrifstofunni í Kaupmannahöfn dagana 6.– 9. september 2004.
Að 55. fundur svæðisnefndarinnar verði haldinn dagana 12.– 15. september 2005.
Tekið verður tillit til boða Eistlands, Georgíu og Rúmeníu um að halda 55. fund svæðisnefndarinnar.
Biður Evrópuskrifstofuna um að ræða við fyrrnefnd ríki sem boðist hafa til þess að halda 55. fund svæðisnefndarinnar.
Ef ekki verður komist að samkomulagi um hvar skuli halda 55. fund svæðisnefndarinnar fyrir 30. nóvember 2003 þá muni fundurinn verða haldinn í svæðisskrifstofu Evrópu í Kaupmannahöfn.