Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 651. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1231  —  651. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 98/2003, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Grétar Má Sigurðsson og Finn Þór Birgisson frá utanríkisráðuneyti, Dís Sigurgeirsdóttur frá dómsmálaráðuneyti og Þóri Skarphéðinsson frá viðskiptaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 98/2003 frá 11. ágúst 2003, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/97/EB frá 4. desember 2001, um breytingu á tilskipun ráðsins 91/308/EBE um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis.
    Tilskipunin sem hér um ræðir mælir fyrir um breytingar á gildandi tilskipun Evrópubandalagsins frá árinu 1991 um aðgerðir gegn peningaþvætti. Efni tilskipunarinnar hefur þegar verið innleitt með lögum nr. 42/2003, en eftir stendur að gera frekari lagabreytingar, einkum á almennum hegningarlögum.
    Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneyti er lagafrumvarp í undirbúningi.
    Drífa Hjartardóttir, Magnús Stefánsson og Ágúst Ólafur Ágústsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 24. mars 2004.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Guðmundur Árni Stefánsson.


Jónína Bjartmarz.



Rannveig Guðmundsdóttir.


Steingrímur J. Sigfússon.


Einar K. Guðfinnsson.