Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 860. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1318  —  860. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um stuðning við markaðssetningu dilkakjöts erlendis.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Er ljóst hvernig því fé verður ráðstafað sem ráðuneytinu var veitt sérstaklega í fjárlögum fyrir árið 2004 „til að styðja við markaðssetningu dilkakjöts erlendis“?
     2.      Eru fyrirhugaðar sérstakar mannaráðningar í þessu skyni?