Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 864. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1322  —  864. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um vegagerð um Stórasand.

Flm.: Halldór Blöndal, Guðmundur Hallvarðsson, Kristján L. Möller,


Birkir J. Jónsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson,
Gunnar Birgisson, Einar Már Sigurðarson.


    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að undirbúa og hrinda í framkvæmd nauðsynlegum rannsóknum og mælingum til þess að hægt sé að setja veg frá Norðurárdal í Skagafirði um Stórasand til Borgarfjarðar í mat á umhverfisáhrifum svo fljótt sem kostur er. Vegurinn verði í flokki C1, sem er 7,5 metra breiður, malbikaður vegur. Hafa skal í huga að þessi framkvæmd sé unnin sem einkaframkvæmd og að kostnaður við hana greiðist með veggjöldum eftir því sem eðlilegt er.

Greinargerð.


    Þær hugmyndir að raunhæft sé að stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur um 82 km með því að fara Stórasand og Kaldadal hafa vakið mikla athygli. Það er eðlilegt, því að svo mikil stytting leiðarinnar gjörbreytti rekstrarskilyrðum fyrirtækja á Akureyri og við Eyjafjörð, þeirra sem framleiða fyrir markaðinn á höfuðborgarsvæðinu eða til útflutnings. Ekkert tiltökumál yrði að skreppa suður eða norður að morgni dags og skila sér heim að kvöldi.
    Til einföldunar þykir rétt að kalla veginn úr Skagafirði í Borgarfjörð Norðurveg. Þaðan yrði mikið og fagurt útsýni og skammt til ýmissa staða sem eftirsóknarverðir þykja til nánari kynna. Þannig opnaðist vegfarendum áður ókunn undraveröld. Það ynnist einnig að ferðaþjónustan gæti boðið fleiri kosti en nú, en erlendum ferðamönnum fjölgar ár frá ári. Náttúruunnendur hafa einmitt varað við því að of mörgum ferðamönnum skuli safnað saman á sömu blettina þannig að þar myndast örtröð sem skaðar viðkvæma náttúru landsins. Margvíslegur ávinningur er að því að leggja góðan veg að Arnarvatnsheiði og Réttarvatni. Vísast í því efni til Þingvalla- og Mývatnssveitar sem eru fjölsóttir staðir og miklir unaðsreitir. Þar sjáum við að fuglar sækjast eftir að verpa í nánd við híbýli manna. Vafalaust mundu lítil fjallahótel eða þyrping fjallakofa á Arnarvatnsheiði eða á þeim slóðum njóta mikilla vinsælda. En rétt er að minna á í þessu samhengi að samkvæmt vegalögum liggur landsvegur um Hallmundarhraun upp á Arnarvatnsheiði og niður í Miðfjörð. Ekki kæmi til mats á umhverfisáhrifum þótt þessi vegur yrði lagfærður smátt og smátt eins og hann liggur. Frá Réttarvatni eru síðan jeppaslóðir samkvæmt korti Vegagerðarinnar út í Víðidal, niður í Vatnsdal og austur á Kjalveg sunnan Blöndulóns.
    Rétt er að gera grein fyrir Norðurvegi eins og hann er hugsaður af flutningsmönnum tillögu þessarar, sbr. fylgiskjöl I og II. Til glöggvunar er veginum skipt í þrjá áfanga og horft suður frá Norðurárdal í Skagafirði:
     1.      Gert er ráð fyrir að hefja vegagerð um Norðurárdal á þessu ári og tekur kannski fjögur ár að ljúka henni. Í beinu framhaldi er síðan eðlilegt að halda áfram þvert yfir Skagafjörð sunnan við Mælifell að Kjalvegi sunnan Blöndulóns, sem eru 57 km. Gróf kostnaðaráætlun ásamt brú er 2 milljarðar kr. Á þessari leið fer vegurinn yfir 700 metra hæð á stuttum kafla. Við Blöndulón stöndum við á krossgötum. Ef vegur verður byggður upp suður Kjöl samkvæmt samgönguáætlun er ekki um það að tala að gjald verði tekið af umferðinni á þessum vegarkafla fremur en af öðrum vegum innan samgönguáætlunar.
     2.      Frá Blöndulóni liggur leiðin um Stórasand að Réttarvatni og síðan um Hallmundarhraun í Borgarfjörð. Það eru 72 km og kosta 2,4 milljarða kr. Vegurinn um Stórasand mun liggja um hásléttu, sem fer á 10 km kafla yfir 700 metra hæð og mest upp undir 800 metra hæð. Veðurathuganir hafa ekki verið gerðar, en þar sem vegurinn mun liggja langt frá fjöllum er ekki að búast við eins sterkum vindhviðum og upp við fjöllin. Eins og áður segir er vegurinn frá Réttarvatni í Borgarfjörð landsvegur samkvæmt vegalögum. Undir framkvæmdum við þennan kafla leiðarinnar verður staðið með veggjöldum samkvæmt hugmyndum flutningsmanna.
     3.      Norðurvegur tengist hinu almenna vegakerfi um Hvítársíðu, en nauðsynlegar lagfæringar ásamt brúm á veginum niður Hvítársíðu á 11 km kafla kosta um 400 millj. kr. Þessi vegaframkvæmd er innan samgönguáætlunar svo að ekki er eðlilegt að greitt sé veggjald af henni fremur en af tengivegum við Hvalfjarðargöng.
    Norðurvegur eins og honum hefur verið lýst hér styttir leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur um 42 km, um sömu vegalengd og Hvalfjarðargöng. Og nú hefur það gerst að Reykjavíkurhöfn, Akraneshöfn, Borgarneshöfn og Grundartangahöfn hafa sameinast í eitt fyrirtæki þannig að hagræðið getur orðið enn meira en hér hefur verið lýst varðandi inn- og útflutning þar sem búast má við meiri umsvifum í Grundartangahöfn en ella.
    Á síðustu árum hefur veginum milli Akureyrar og Reykjavíkur verið lítið sinnt. Þó hafa þungaflutningar milli Norðurlands og Reykjavíkur vaxið jafnt og þétt og eru komnir langt fram úr því sem vegurinn var byggður fyrir. Og enn má búast við að umferð fari verulega fram úr því sem nú er talið. Það er því fyrirsjáanlegt að í náinni framtíð verður að leggja í mikinn kostnað við að endurbyggja hringveginn og leikur hann á milljörðum króna. Nema Norðurvegur verði lagður.
    Flutningsmönnum er ekki kunnugt um að gerð hafi verið raunhæf kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um nauðsynlegar endurbætur vegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þó liggur fyrir að hann er hættulegur á löngum köflum eins og í Norðurárdal í Skagafirði og um Stafholtstungur. Annars staðar er vegurinn of mjór og veikur fyrir þá umferð sem um hann fer. Vegagerðin hefur lagt fram tillögur um styttingu hringvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur. Annars vegar eru uppi hugmyndir um nýja brú yfir Héraðsvötn í Skagafirði til að sneiða fram hjá Varmahlíð, sem kostaði 540 millj. kr. En stytti þó ekki leiðina nema um 3,5 km. Hins vegar er talað um að leggja veg yfir Blöndu í Langadal, hjá Móbergi, til þess að þurfa ekki að taka krókinn niður á Blönduós og stytti það leiðina um 14 km, en kostaði 960 millj. kr. Þessum fjármunum, 1,5 milljörðum kr., yrði betur varið í fyrsta áfanga Norðurvegar eða úr Norðurárdal yfir Héraðsvötn að Blöndulóni. Sem auðvitað hefði þann kost einnig að hringvegurinn lægi áfram um Blönduós. Auðgert er að benda á ýmsa kafla hringvegarins milli Akureyrar og Reykjavíkur sem dugað gætu enn um sinn án verulegra endurbóta ef létt yrði á þungaflutningunum með Norðurvegi. Af þeim sökum telja flutningsmenn eðlilegt að miða við að einkaframkvæmdin standi undir veginum frá Blöndulóni í Borgarfjörð. En vitaskuld verður ekki ráðið fram úr álitamálum í því sambandi nema í samningum ríkisvaldsins við það félag sem stofnað yrði um framkvæmdina og rekstur hennar.
    Áður en samgönguáætlun sú sem nú er í gildi var unnin hafði tillaga til þingsályktunar um Norðurveg verið lögð fram á Alþingi en henni var hafnað af ókunnum ástæðum. Á hinn bóginn eru vegir yfir Kjöl og Kaldadal þar á blaði. Eftir lagningu Norðurvegar er ekki sama nauðsyn á vegi yfir Kjöl og áður, en á hinn bóginn mun vegur um Kaldadal enn stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur um 40 km eða samtals um 82 km. Í því sambandi ber að athuga að vegur um Kaldadal fellur utan ramma þessarar tillögu. Enn fremur er þess að gæta að flutningsmenn sjá ekki fyrir sér að vegur um Kaldadal liggi niður í þjóðgarðinn heldur verði lagður eftir bökkunum vestan við hann, og vilja þeir með því virða friðhelgi Þingvalla.
    Veglína Norðurvegar liggur hátt á löngum kafla, en menn skyldu varast að gera of mikið úr því. Svo er einnig um hringveginn og stöku fjallvegi að veglínan liggur hátt. Ekki er nema áratugur síðan byrjað var að halda veginum yfir Möðrudalsöræfi opnum að vetrarlagi. Fyrst tvo daga í viku og nú allan ársins hring nema í stórhríðum eins og annars staðar á landinu, á láglendi sem á fjallvegum, enda hefur verið lagður þar nýr vegur. Söm verður reynslan af Norðurvegi.
    Á síðustu árum hafa sjónarmið í vegagerð verið að breytast, enda verður búið að tengja alla þéttbýlisstaði við hringveginn innan fárra ára. Nú láta menn sér ekki lengur nægja að komast á leiðarenda heldur vilja þeir fara stystu leiðina. Það dregur úr mengun, það sparar tíma og það sparar peninga. Í sumum dæmum getur flutningskostnaðurinn ráðið úrslitum um það hvort hægt sé að reka iðnfyrirtæki á Akureyri eins og við höfum dæmin um. Þess vegna er nú í athugun hvort gerlegt sé fyrir ríkið að greiða niður hluta flutningskostnaðarins eftir vissum reglum þannig að það brjóti ekki í bága við samkeppnisreglur innan Evrópska efnahagssvæðisins.
    Eftir að vegagerð um Norðurárdal í Skagafirði lýkur er eðlilegt að leggja í framkvæmdir við Norðurveg. En til þess að það megi takast verður að hefjast handa við undirbúning þegar í stað. Flutningsmenn telja að reikna verði með fimm árum til þess að hanna veginn og ljúka mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdir gætu tekið tvö til þrjú ár, ef ekki stæði á peningum. Kárahnjúkavegur var byggður að haustlagi og fram í desember og hann lagður bundnu slitlagi um sumarið. Veður ættu ekki að verða til trafala á Norðurvegi fremur en þar.
    Tillögu þessari til þingsályktunar fylgja þrjú fylgiskjöl. Í fylgiskjali I er sýndur Norðurvegur, sá hluti hans sem þessi tillaga tekur til. Í fylgiskjali II er sýnd leiðin milli Akureyrar og Reykjavíkur eftir að Norðurvegur hefur verið lagður. Fylgiskjal III er „Bein leið“, viðskiptaáætlun um einkarekinn hálendisveg, unnin af MBA-nemum í viðskiptadeild Háskóla Íslands.
Fylgiskjal I.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal II.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal III.


Bein leið. Viðskiptaáætlun um einkarekinn hálendisveg.
Unnin fyrir Beina leið hf. af Elínu Gylfadóttur, Geir Thorsteinssyni,
Guðmundi Sigurbergssyni og Sveini Óskari Sigurðssyni,
MBA-nemum við viðskiptadeild Háskóla Íslands.
(Reykjavík, október 2003.)


Samantekt.
    Bein leið hf. hefur í hyggju að leggja nýjan hálendisveg sem styttir leiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar um 82 kílómetra, úr 389 km í 307 km.
    Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er 5.550.000.000 kr. á verðlagi ársins 2003. Gert er ráð fyrir 20 % eigið fé og 80 % lánsfé. Eigin fjár er aflað með sölu hlutafjár á genginu 1,0. Tekjur fyrirtækisins eru veggjöld af umferð um veginn. Gjaldskrá tekur mið af stærð og þyngd ökutækja sem um veginn fara. Innheimta veggjalda fer að öllu leyti fram með rafrænum hætti. Taka á veginn í notkun 23. október 2008 og er áætlaður rekstrartími til og með árinu 2033.
    Gert er ráð fyrir að Bein leið hf. nái 75% markaðshlutdeild af heildarumferðinni á milli Norður- og Suðurlands, sem er 900 bílar á dag að meðaltali. Sumarumferð er 2/ 3 af heildarumferð. Reiknað er með 3,3% árlegum vexti umferðar.
    Framkvæmdin er arðbær. Innri vextir eru 15,13% og verðmæti eigin fjár tæplega fjórfaldast á tímabilinu.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



1. Viðskiptaáætlun Beinnar leiðar hf.
1.1 Hugmyndin.
    Að leggja tvíbreiðan heilsársveg stystu færu leið á milli Suðurlands og Norðurlands.
    Vegagerð ríkisins hefur velt fyrir sér ýmsum möguleikum á styttingu leiða á millli Norður- og Suðurlands, meðal annars út frá þjóðhagslegri hagkvæmni og tengingu við núverandi vegakerfi og/eða nýja vegi austur á bóginn (Stytting leiða, áætlunardeild, janúar 2003). Í þessari áætlun verður metið hvort einkarekin fjármögnun á þessari stystu leið milli þessara landshluta muni bera sig.
    Á mynd 1 sést hvar meginþungi umferðarinnar á landinu er. Á mynd 2 eru sýndar þær leiðir sem voru kannaðar m.t.t. til þess hvort hagkvæmt væri að leggja slíkan veg og reka hann, sem og leiðin sem var valin. Við frumkönnun kom í ljós að aðrar leiðir voru dýrari í framkvæmd m.a. vegna gangagerðar ofan í Eyjafjörð og veðurfars.

Mynd 1.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Mynd 2.

    Niðurstaða hópsins var því að velja leið 1b sem kemur fram á mynd 2. Hún liggur frá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum, sem ný leið upp Uxahryggi og Kaldadal, þaðan austur fyrir Strút og yfir Norðlingafljót á nýrri brú, og austur yfir sunnanverða Arnarvatnsheiði og áfram austur yfir Stórasand, fyrir sunnan Blöndulón á nýrri brú yfir Blöndu og um Gilhagadal yfir Eystri Jökulsá fyrir neðan Villinganes á nýrri brú og kemur inn á nýjan veg á hringveginum fyrir neðan Kjálka í Austurdal, á móts við Silfrastaðafjall. Samtals 185 km af nýlögðum vegi (sjá fylgiskjal um styttingu leiða).

1.2 Sérstaða vegarins.
    Vegurinn styttir leiðina á milli Akureyrar og Reykjavíkur um 82 kílómetra miðað við hringveginn í dag. Það er engin önnur leið sem styttir jafnmikið vegalengdina á milli Norður- og Suðurlands.

2. Staða og stefna.
2.1 Þörfin.
     1.      Verið er að uppfylla þarfir sem þegar eru fyrir hendi; þörfina á því að komast á sem stystum tíma á milli tveggja staða og jafnframt lækka flutningskostnað sem og slit á bifreiðum.
     2.      Núverandi vegalengd til Akureyrar er það löng að fáir gætu hugsað sér að skreppa að morgni og koma aftur að kvöldi. Núverandi leið er 389 kílómetrar en áætluð ný leið er 307 km og því er styttingin 82 km eða tæpur klukkutími í akstri m.v. 90 km meðalhraða á klst. Flutningar á milli Norður- og Suðurlands á vörum myndu leiða til lægri flutningskostnaðar (samgönguráðuneytið, skýrsla nefndar um flutningskostnað, janúar 2003). Vegurinn liggur hæst á samtals 15 km kafla um Stórasand og austan Aðalmannsvatns í um 700 m hæð yfir sjávarmáli. Aðrir hlutar leiðarinnar liggja lægra.

Mynd 3.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


2.2 Markmið.
    Markmið er að stytta ferðatíma og auka öryggi vegfarenda á leiðinni á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ferðatími yrði skemmri en fjórir tímar, frá Sauðárkróki yrði hægt að fara á innan við þremur tímum. Miðað er við 90 km meðalhraða á klukkustund.

2.3 Núverandi staða.
    Á milli Akureyrar og Reykjavíkur eru núna 389 kílómetrar af tvíbreiðum vegi með bundnu slitlagi. Nokkrar einbreiðar brýr eru á leiðinni og vegurinn sumstaðar hæðóttur og krókóttur með kröppum beygjum sem óhjákvæmilega eykur slysahættu.
    Með tilkomu Hvalfjarðarganga styttist leiðin til Akureyrar um 42 kílómetra. Á verðlagi í október 2003 var kostnaðurinn við þau göng um 6,3 milljarðar króna (Sjá fylgiskjal: Fjármögnun og kostnaður Hvalfjarðarganga). Þar var ekki tekinn með sá kostnaður sem kom til vegna vegatenginga norðan og sunnan þeirra. Gera má ráð fyrir að sá kostnaður hafi verið a.m.k. 300 millj. kr. á verðlagi í janúar 2003.

2.4 Leiðir til að ná markmiðum.
    Ýmsar hugmyndir hafa komið fram um að leggja hálendisvegi. Hópurinn sem vann að þessari viðskiptaáætlun komst að þeirri niðurstöðu að leið 1b, sem sýnd er á mynd 2, væri hagkvæmasta leiðin til þess að stytta vegalengdina á milli Norður- og Suðurlands. Lagt er til að stofnað verði hlutafélag um byggingu og rekstur þessa vegar. Hlutafélagið sæi um rekstur hans fram til ársins 2032. Að þeim tíma liðnum fengi ríkið veginn til afnota, eða fyrirtækið sæi um áframhaldandi rekstur samkvæmt nánara samkomulagi. Fjármögnun yrði með hlutafé sem samsvaraði 20% af fjármögnunarþörf fyrirtækisins en 80% yrðu fjármögnuð með lánsfé.

2.4 SVÓT-greining.
    Á mynd 4 eru þeir þættir sem styrkja, veikja, ógna og skapa tækifæri fyrir hinn nýja veg. Byggðapólitík sker sig úr vegna þeirrar sérstöðu að hún kemur fram í öllum fjórum þáttum greiningarinnar. Má því ætla að huga þurfi sérstaklega að slíkum sjónarmiðum og vanda sérstaklega undirbúning sem snýr að kynningu vegarins á þessum vígstöðvum.

Mynd 4.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


2.5 Form fyrirtækisins.
    Lagt er til að stofnað verði hlutafélagið Bein leið hf.

3. Stofnendur, eigendur, stjórnskipulag.
3.1 Stofnun félagsins.
    Gert er ráð fyrir samkeppnisútboði með sölutryggingu vegna stofnunar Beinnar leiðar hf. Útboðið hefði það markmið að ná sem hagkvæmustum samningum varðandi stofnun Beinnar leiðar hf. og útgáfu hlutabréfa félagsins.

3.2 Eigendur.
    Eigendur væru hluthafar í Beinni leið hf., samkvæmt drögum að stofnsamningi fyrir hlutafélagið sem er í viðauka: Drög að stofnsamningi.

3.3 Stjórnskipulag.
    Gert er ráð fyrir fimm manna stjórn. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra. Auk þess er gert ráð fyrir tveimur starfsmönnum til viðbótar á skrifstofu Beinnar leiðar hf. Á byggingarstigi er gert ráð fyrir aðkeyptri þjónustu verkfræðistofu og almannatengslafyrirtækis.

3.4 Samþykktir.
    Sjá drög að samþykktum fyrir Beina leið hf. í fylgiskjali

3.5 Framkvæmdastjórn.
    Gert er ráð fyrir því að stjórnin skipti með sér verkefnum og stjórnarmenn hafi sérþekkingu á viðfangsefninu.

3.6 Skrifstofa.
    Skrifstofa verður í leiguhúsnæði og gert er ráð fyrir 150 fermetra húsnæði, sem skiptist í þrjár skrifstofur, fundarherbergi, kaffistofu, salerni og ræstikompu. Leiguverð á góðu skrifstofuhúsnæði í dag er á bilinu 1000–2000 kr. á fm.

4. Varan – lýsing og sérstaða.
4.1 Lýsing vegar.
    Kort 1 sýnir vegi á Íslandi eftir flokkun þeirra. Innsett er stækkað kort af þeirri leið sem valin var. Dökka línan sýnir legu vegar Beinnar leiðar hf.

Kort 1.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



4.2 Umferð.
    Þegar skoðuð er mynd 1 sést glöggt hver meðaltalsumferðin er á dag miðað við heilt ár og er þá talað um ársdagsumferð (hér eftir ÁDU) á mismunandi stöðum á landinu. Fáir kaflar á hringveginum hafa ÁDU yfir 1000 bíla. Samkvæmt tölum Vegagerðarinnar var ÁDU á Holtavörðuheiðinni árið 2002 963 bílar og við Blönduós var umferðin að meðaltali 905 bílar. Á Öxnadalsheiðinni er fjöldinn 765 og í Vatnsskarði 881.

Mynd 5.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Með tilliti til þessara talna meta skýrsluhöfundar að heildarmarkaður Beinnar leiðar hf. sé 900 ÁDU, miðað við rauntölur ársins 2002. Þegar sumarumferð ársins 2003 er skoðuð kemur í ljós að umferðin hefur dregist saman um tæplega 2% á milli ára. Þessar tölur eru notaðar til þess að leiðrétta áður útgefnar upplýsingar um áætlaðar umferðartölur Vegagerðarinnar um heildarakstur á Íslandi. Heildarfjöldi ekinna kílómetra á Íslandi í milljónum ekinna kílómetra er eftirfarandi:

Ár Millj. km Aukning milli ára
1989 1591
1990 1612 1,3%
1991 1778 10,3%
1992 1788 0,6%
1993 1784 –0,2%
1994 1842 3,3%
1995 1860 1,0%
1996 1963 5,5%
1997 2005 2,1%
1998 2100 4,7%
1999 2243 6,8%
2000 2332 4,0%
2001 2426 4,0%
2002 (áætlað) 2523 4,0%
Að meðaltali á ári: 3,6%


    Í þessari töflu er árlegur meðalvöxtur umferðar á Íslandi öllu u.þ.b. 3,6%. Tölurnar fyrir árið 2002 eru í töflunni áætlaðar og því virðist vöxturinn á milli áranna 2001 og 2002 miðað við sumardagsumferð (SDU), við talningarstaðina fyrir norðan; Holtavörðuheiði, Blönduós, Vatnsskarð og Öxnadal, ekki verða 4% eins og gert var ráð fyrir.
    Gera má ráð fyrir einhverskonar sveiflum í umferðinni, eins og kemur fram í töflunni, því á milli áranna 1991 og 1992 var einungis 0,6% aukning og fækkun varð frá árinu 1992 til ársins 1993 um 0,2%, eins og kemur fram á mynd 6.

Mynd 6.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Þegar búið er að leiðrétta árið 2002 vegna minni sumarumferðar og gerð línuleg aðhvarfsgeining (linear regression) fram til ársins 2032, eins og kemur fram á mynd 7, sést að fjöldi ekinna kílómetra eykst að meðaltali um 3,3% á ári. Þessi línulega áætlun er marktæk miðað við þær tölur sem hún er unnin út frá. Fylgnistuðull er tæplega 96%.

Mynd 7.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Eknir km í flutningum á þjóðvegum hafa aukist um 3,52% á ári undanfarin 10 ár, voru 806 millj. km árið 1990 og 1100 millj. km árið 2000 (samgönguráðuneytið, Skýrsla nefndar um flutningskostnað, janúar 2003). Slíkt bendir í sömu átt, umferð eykst á bilinu 3,3% til 3,6% á ári.
    Til þess að meta hversu margir muni nota Beina leið hf. má skoða tölur um ÁDU hér að framan við þá fjóra vegpunkta, sem mælingar voru fengnar frá, þ.e. Holtavörðuheiði, Blönduós, Vatnsskarð og Öxnadal. Gera má ráð fyrir að sá meðalfjöldi sem að lágmarki færi á milli Norður- og Suðurlands, miðað við ÁDU, væri 900 bílar og því er ársumferðin að meðaltali 328.500 bílar árið 2002. Það er sú viðmiðun sem viðskiptaáætlunin byggist á.
    Við útreikninga er umferðin fyrir árið 2002 notuð og bætt við 3,3% árlegum vexti og þannig er reiknuð umferðarspá fram til ársins 2032. Þetta telur hópurinn varfærna áætlun.
    Við byggingu Hvalfjarðarganga kom í ljós að umferðin varð meiri en spár gerðu ráð fyrir. Leiða má líkur að því að sama gildi um Beina leið (orsökuð umferð).

4.3 Stytting vegalengda
    Bein leið mun stytta leiðina til Akureyrar um 82 km, eða sem samsvarar u.þ.b. klukkutíma í akstri miðað við 90 km meðalhraða.

Vegalengdir frá Reykjavík.
Staður km km Stytting Stytting Stytting
nú verður km % mín.
Akureyri 389 307 82 21% 55
Blönduós 244 251 –7 –3% –5
Sauðárkrókur 319 270 49 15% 33
Siglufjörður 401 353 48 12% 32
Ólafsfjörður 414 368 46 11% 31

    Taflan sýnir hlutfallslega styttingu leiða til nokkura staða á Norðurlandi. Vegurinn verður beinni en núverandi hringvegur. Einnig stafar minni hætta af búfénaði. Aðrar óbeinar slysagildrur, s.s. krappar beygjur, einbreiðar brýr og blindhæðir verða einnig færri.
    Á mynd 8 sést hlutfallslegur sparnaður í kílómetrum við að fara Beina leið norður eða suður. Miðað er við fjarlægðir frá Reykjavík.

Mynd 8.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



4.4 Umhverfismál.
    Með vísun til 5. og 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, og 1. viðauka þeirra, liðar 10 ii, er skylt að meta umhverfisáhrif framkvæmdarinnar. Þarna er um að ræða nýlagningu vegar utan þéttbýlis, ef nýlögn er lengri en 10 km.
    Leiðin er hálendisvegur, sem ætlunin er að leggja yfir svæði, sem eru að hluta friðuð. Vegurinn liggur um þjóðgarðinn á Þingvöllum frá þjónustumiðstöðinni og upp á Kaldadal. Þjóðgarðurinn er friðaður og Geitland er friðað svæði samkvæmt náttúruverndarlögum. Arnarvatnsheiði er óspillt svæði sem taka þarf sérstakt tillit til. Einnig þarf að taka tillit til votlendis, fuglalífs sem og fiskvega á milli vatna og spilla sem minnst núverandi umhverfi, enda er það markmið Beinnar leiðar hf. að spilla sem minnstu í umhverfi og náttúru Íslands.

4.5 Ytri aðstæður.
    Ytri aðstæður eru góðar. Vegurinn liggur um tiltölulega snjólétt svæði miðað við önnur hálendissvæði.

5. Markaðsmál, sölumál, samkeppni.
5.1 Þörf.
    Sparnaður við að fara á milli Norður- og Suðurlands er mikill, bæði í tíma og sliti á farartækjum. Ef reiknaður er 1 klst tímasparnaður á hvern bíl sem færi veginn og miðað við 75% markaðshlutdeild Beinnar leiðar hf., þá er tímasparnaður allra samtals 246.375 tímar. Hver tími er reiknaður á 500 krónur. Árlegur sparnaður verður 123.187.500 kr. Reynslan sýnir að um leið og komin er styttri vegur er hann nýttur af nánast öllum vegfarendum.

5.2 Umferð um veginn.
    Ætla má að flestir sem erindi eiga á milli Norður- og Suðurlands myndu nota veginn. Í arðsemisspá var farið varfærnislega í að meta umferð. Teknar voru niðurstöður umferðarmælinga frá Vegagerðinni á Holtavörðuheiði, við Blönduós, í Vatnsskarði og á Öxnadal (sjá mynd 5). Reiknað er með að 75% af heildarumferðinni á milli Norður- og Suðurlands fari um veg Beinnar leiðar hf.

5.3 Stærð markaðar.
    Markaður Beinnar leiðar hf. er öll umferð á milli Norður- og Suðurlands, að viðbættri allri orsakaðri umferð, sem og aukin umferð vegna ferðalaga um svæði sem áður var ekki fært, þ.e. ný útivistarsvæði opnast. Jafnframt má gera ráð fyrir því að þeir sem þurfa að fara í ofanverðan Borgarfjörð myndu nýta sér þennan nýja veg.
    Stærð markaðarins er metinn í heild miðað við þann fjölda bifreiða sem aka um Blönduós. Gera má ráð fyrir árlegri aukningu á umferð á bilinu 3,3% til 3,6%. Samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar og niðurstöðu nefndar um samgöngumál þá aukast flutningar á milli ára um 3,5%. Umferðartölur frá Speli ehf. sýna 3,6% aukningu á milli ára. Í viðskiptaáætluninni er tekið mið af lægstu tölunni samkvæmt varfærnisreglu. Heildarumferðin fyrir árið 2003 verður því 900 bílar x 365 dagar á ári x 1,033 eða alls 339.341 bílar. Árið 2004 er þessi tala kominn upp í 350.539 bíla.

5.4 Áætluð markaðshlutdeild.
    Vænt ársumferð árið 2003 á milli Norður- og Suðurlands er 339.341 bílar. Í viðskiptaáætluninni er gert ráð fyrir 75% markaðshlutdeild.

5.5 Markhópar.
    Einkabílstjórar, flutningsfyrirtæki, ferðaþjónusta, fólksflutningar.

5.6 Kröfur viðskiptavina.
    Góður og öruggur vegur, gott viðhald og góð þjónusta, s.s. upplýsingar um færð og veður, snjómokstur, hálkueyðing o.fl.

5.7 Samkeppnisvegir.
    Helsta samkeppnin er frá hringveginum og að einhverju marki frá öðrum vegum yfir hálendið.

5.8 Verð.
    Verðstefna fyrirtækisins tekur mið af kostnaði á hvern ekinn kílómetra, samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) fyrir árið 2003.

kostnaður á km sparnaður í km sparnaður í kr.
FÍB-tölur 48,79 82 4000,78

    Eins og sést er sparnaður við rekstur meðalfólksbíls, 48,79 kr. á hvern ekinn kílómetra. Sparnaður samkvæmt því er rúmlega 4.000 kr. vegna styttingar leiðar um 82 kílómetra. Akstursgjald skv. Ferðakostnaðarnefnd ríkisins er nú kr. 56,50 fyrir hvern ekinn km.
    Gjaldskrá Beinnar leiðar hf tekur mið af gjaldskrá Spalar ehf. Grunngjaldið er hærra. Þeim sem ekki greiða fyrirfram er veittur 10% afsláttur ef farnar eru fleiri en 10 ferðir innan sama mánaðar. Þessi afsláttur reiknast rafrænt eftir á og greiðist sem inneign fyrir eina ferð.
    Gjaldskrá Beinnar leiðar lítur þannig út miðað við 3000 kr. grunngjald.

Gjaldskrá Beinnar leiðar

Veggjald á Beinni leið er í þremur flokkum eftir lengd ökutækja og að auki er sérstakur gjaldflokkur fyrir vélhjól. Í ríkissjóð rennur 14% virðisaukaskattur af veggjaldinu. Afsláttur reiknast rafrænt og er veittur eftir á, um hver mánaðarmót miðað við fjölda ferða hjá þeim sem ekki greiða fyrirfram.
1. gjaldflokkur
Ökutæki styttri en 6 metrar: Hver ferð kostar:
Veggjald fyrir staka ferð 3.000 kr.
5 ferðir – afsláttarkort 2.100 kr.
10 ferðir – áskrift 1.500 kr.
meira en 100 ferðir 1.320 kr.
Ath.: Sama gjald er fyrir bíla í 1. flokki dragi þeir tengitæki (t.d. hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagn) eða eftirvagna sem ekki eru skráningarskyldir (heildarþyngd undir 750 kg). Bílar sem draga skráningarskylda eftirvagna (heildarþyngd yfir 750 kg) færast upp í 2. gjaldflokk.
2. gjaldflokkur (= 1. gjaldfl. x 3)
Ökutæki 6 til 12 metrar: Hver ferð kostar:
Veggjald fyrir staka ferð 9.000 kr.
meira en 10 ferðir – áskrift 6.435 kr.
3. gjaldflokkur (= 1. gjaldfl. x 3,8)
Ökutæki lengri en 12 metrar: Hver ferð kostar:
Veggjald fyrir staka ferð 11.400 kr.
meira en 10 ferðir - áskrift 8.151 kr.
4. gjaldflokkur (= 1. gjaldfl. x 0,4)
Vélhjól: Hver ferð kostar:
Veggjald fyrir staka ferð 1.200 kr.
Afsláttur ef farið er oftar 840 kr.



    Eins og kemur fram í fylgiskjali um áætlaðar tekjur af veginum liggja ákveðnar forsendur að baki, bæði hvað varðar umferðarmagn sem og skiptingu á umferðinni eftir þessum gjaldflokkum. Samkvæmt tölum Spalar ehf., þá nota u.þ.b. 70% af vegfarendum afsláttarkortin sem eru í boði. Við gerum ráð fyrir sömu skiptingu hjá Beinni leið hf. eins og kemur fram í fylgiskjali: Forsendur í gjaldskrá fyrir Beina leið hf., þá er reiknað með að meðalgreiðsla fyrir fólksbíla verði 2.172,00 kr. og meðalgreiðsla fyrir stærri bíla verði 7.584,00 kr.

5.9 Ímynd Beinnar leiðar hf.
    Mikilvægt er að skapa trausta ímynd og veita góða þjónustu, þannig að vegurinn verði öruggur heilsársvegur. Merkið er því haft á bláum grunni, sem tákn um traust. Vegurinn er sýndur beinn, breiður og hindrunarlaus. Merkið býður vegfarendum að aka hinn nýja veg.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Fyrirtækið mun leggja áherslu á að skapa sér sterka ímynd hvað varðar öryggi og þjónustu. Allir þættir viðhalds og þjónustu verða boðnir út samkvæmt þjónustustöðlum Beinnar leiðar hf.

5.10 Innheimtukerfi.
    Gert er ráð fyrir því að innheimtukerfið verði algjörlega rafrænt. Skynjarar lesa af svokölluðu snjallkorti og færa til greiðslu strax eftir þeim fjölda ferða sem farnar eru um veginn í viðkomandi mánuði. Afsláttur er veittur á fyrirframgreiddum ferðum eins og áður hefur komið fram. Einnig reiknast afsláttur rafrænt hjá þeim sem ekki greiða fyrirfram þannig að tíunda hver ferð innan mánaðarins er ókeypis. Skynjarar munu greina auðkenni bifreiðarinnar (sjá nánar fylgiskjal um rafrænar greiðslur).

6. Kostnaður.
6.1 Rekstur skrifstofu.
    Gert er ráð fyrir því að skrifstofan sé í 150 m 2 leiguhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu.
    Allur hefðbundinn rekstur skrifstofu er í fjárhagsáætluninni. Gert er ráð fyrir föstum launum sem hér segir: Laun stjórnar, framkvæmdastjóra og tveggja skrifstofumanna (sjá áætlaðan rekstrarkostnað).

6.2 Áætlaður heildarkostnaður vegar.
    Heildarkostnaður við framkvæmdina er samkvæmt áætlun Vegagerðar ríkisins, reiknaður á meðalverðlagi ársins 2003 (vísitala vegagerðarkostnaðar 6940) alls 5.550.000.000 kr., er hér gert ráð fyrir öllum hönnunar- og byggingarkostnaði vegar í flokki C1, sem er 7,5 metra breiður malbikaður vegur. Til viðbótar er reiknað með:
     1.      Byggingu miðstöðvar sunnan við Strút við brúna yfir Hvítá og tveimur neyðarskýlum. Gert er ráð fyrir 100 millj. kr. vegna þess.
     2.      Kostnaði við umhverfismat og frumhönnun samtals 45 millj. kr.
     3.      Útboði vegna stofnunar fyrirtækisins og kostnaði við útgáfu bréfa, 55 millj. kr.
     4.      Útboði vegna snjómoksturs og viðhalds.
     5.      Útboði vegna vegaeftirlits.
     6.      Uppsetningu og aðlögun rafræns skráningarkerfis 150 millj. kr. og uppsetningu vegvísa.
     7.      Öðrum rekstrarkostnaði vegna skrifstofu og starfsmannahalds.

6.3 Áætlaðar óbeinar tekjur þjóðarbúsins.
    Hérna mætti t.d. reikna út sparnað í tíma og reikna t.d. ákveðinn meðalfjölda í bíl, t.d.tvo, og sparnað á hverri ferð, 52 mínútur sinnum fjölda ferða sinnum t.d. 500 kr. sem þjóðarbúið myndi hagnast um vegna vinnuframlags viðkomandi, því hann væri væntanlega að vinna. Sparnaður vegna fækkunar slysa. Gera má ráð fyrir því að slysatíðni sé minni á Beinni leið en t.d. á Vesturlandi sbr. niðurstöður kannana Vegagerðarinnar um minni slysatíðni á Holtavörðuheiði en annars staðar á þjóðvegi 1. Erfitt er þó að áætla þann sparnað. Einnig yrði minni mengun, og minna slit á bifreiðum. Verðlag gæti einnig lækkað á vörum vegna minni flutningskostnaðar. Hagkvæmara væri að reka fyrirtæki fyrir norðan en áður vegna minni kostnað við aðföng og flutninga.

6.4 Ýmsar forsendur útreikninga.
    Forsendur viðskiptaáætlunarinnar koma fram í fylgiskjali merkt: Forsendur í Viðskiptaáætlun fyrir Beina leið hf.

7. Framkvæmdaáætlun.
    Gert er ráð fyrir að byrja á árinu 2004 og hafa öll útboðsgögn tilbúin í lok árs 2005. Bygging vegar og brúa hefst árið 2006 og lýkur 23. október árið 2008. Vegurinn verður opnaður þann 23. október árið 2008.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


7.1 Undirbúningur.

    Gert er ráð fyrir að undirbúningur hefjist á árinu 2004, eins og kemur fram í framkvæmdaáætluninni. Undirbúningur að stofnun félagsins fari jafnframt fram í lok árs 2003 og byrjun árs 2004, en þá er gert ráð fyrir að Bein leið hf. verði stofnað.

7.2 Umhverfismat.
    Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum þarf umhverfismat að fara fram á veginum. Með vísun til 5. og 6. gr. laga nr. 106/2000 og 1. viðauka þeirra, liðar 10 ii, er skylt að meta umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, þ.e. nýbyggingar vegar utan þéttbýlis þegar nýlögn er lengri en 10 km.

7.3 Útboð.
    Hér er listi yfir þau útboð sem þurfa að fara fram.
     1.      Útboð á stofnun félags og hlutafjársöfnun.
     2.      Útboð á frumdrögum og hönnun vegar.
     3.      Útboð á verklegum framkvæmdum.
     4.      Útboð á rafrænni innheimtu og uppsetningu tengdra mannvirkja.
     5.      Útboð á snjómokstri.
     6.      Útboð á viðhaldi vegar.
     7.      Útboð á eftirliti.
    Gert er ráð fyrir kostnaði við þessi útboð í áætluninni.

7.4 Bygging vegar.
    Hönnun og lega vegarins sem og annarra mannvirkja verður útlistuð nánar í byggingaráætlun, sem er ekki viðfangsefni þessarar skýrslu. Gert er ráð fyrir kostnaði sem til fellur vegna slíkrar hönnunar í fjárhagsáætluninni, sem og kostnaði við gjaldkerfið og uppsetningu þess. Einnig er gert ráð fyrir kostnaði við upplýsingaskilti, þar sem leið liggur af þjóðvegi 1 í átt að Beinni leið, þ.e. í Mosfellsbæ, í Öxnadal og við Varmahlíð, sem og við Blönduós.

8. Stofnkostnaðaráætlun.
8.1 Stofnun félags.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Hérna að ofan eru sýnd fyrstu fimm árin úr áætluðum efnahagsreikningi Beinnar leiðar hf. sem spannar hönnunar og byggingarfasa þar til byrjað er að selja aðgang að veginum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



8.2 Undirbúningur.
    Hérna til hliðar eru fjárfestingar Beinnar leiðar, eins og þær koma fram í reikningum. Þær eru vegurinn, rafrænt greiðslukerfi sem og annar upphafskostnaður, þ.m.t. útboðskostnaður við stofnun Beinnar leiðar hf. og útgáfu- og sölukostnaður hlutabréfa.

8.3 Útboðskostnaður.
    Inni í heildaráætlunum fyrir veg, stofnkostnað hlutafélagsins og rafræna greiðslukerfið er gert ráð fyrir útboðskostnaði þeirra vegna.

8.4 Húsnæði og innréttingar.
    Gert er ráð fyrir að gjaldfæra leigu skrifstofuhúsnæðis og annan rekstrarkostnað. Húsgögn, tölvur og innréttingar verða tekin á rekstrarleigu og er gert ráð fyrir þeim kostnaði í rekstrarreikningi.

8.5 Skráningar- og leyfisgjöld.
    Gert er ráð fyrir að öll skráningar- og leyfisgjöld séu inni í framangreindum stofnkostnaði.
8.6 Sérfræðiaðstoð.
    Öll sérfræðiaðstoð er aðkeypt og gert ráð fyrir þeim kostnaði í rekstrarreikningi.

9. Fjárhagsáætlun.
    Hér að neðan er mynd sem sýnir rekstur Beinnar leiðar hf. fyrir árin 2004 til og með 2011. Reksturinn fyrir allt rekstrartímabilið eða til ársins 2033 er sýndur í heild á næstu blaðsíðum. Þar á eftir kemur rekstrarreikningur fyrir árin 2004 til og með 2033 sem og efnahagsreikningur fyrir sama tímabil. Að síðustu er sjóðsstreymi sömu ára sýnt.

Forsendur rekstrarreiknings.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


9.1 Áætlaður rekstrarreikningur.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.






Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


9.2 Rekstrarreikningur.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




9.3 Efnahagsreikningur.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


9.4 Sjóðsstreymi.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


9.5 Kennitölur.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


9.6 Næmnisgreining o.fl.
    Verðmæti eigin fjár miðað við ávöxtunarkröfu eigin fjár.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.







9.7 Verðmat á Beinni leið hf.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





9.8 Rekstrartekjur, hagnaður og veltufé.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Fylgiskjal.


Drög að samþykktum fyrir Beina leið hf.


1.gr.

    Félagið er hlutafélag og er nafn þess Bein leið hf.

2. gr.

    Lögheimili félagsins er við Austurvöll, 101 Reykjavík.

3. gr.

    Tilgangur félagsins er að beita sér fyrir framþróun í samgöngum á landi með því m.a. að annast fjármögnun og eftir atvikum gerð og rekstur vega og annarra samgöngumannvirkja (einkafjármögnun); svo og rekstur fasteigna, lánastarfsemi og skyldur rekstur.
    Félaginu er heimilt að standa að stofnun og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum.

HLUTAFÉ OG REGLUR UM MEÐFERÐ HLUTABRÉFA
4. gr.

    Hlutafé félagsins er 1.125.505.000 kr.
    Hver hlutur er að fjárhæð 1 kr. – ein króna – að nafnverði. Stjórn félagsins hefur heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 1.000.000.000 kr. – einn milljarð króna – að nafnvirði og gildir sú heimild til 23. október 2007.

5. gr.

    Heimilt er að hækka hlutafé félagsins með ályktun hluthafafundar og þarf til sama magn atkvæða og til breytinga á samþykktum þessum. Hluthafar skulu hafa forgangsrétt að öllum nýjum hlutum í sínum eigin flokkum í hlutfalli við skráða hlutafjáreign sína. Hlutahafafundur einn getur ákveðið lækkun hlutafjár.

6. gr.

    Stjórn félagsins skal halda hlutaskrá samkvæmt lögum.

7. gr.

    Engar hömlur eru lagðar á viðskipti með hluti félagsins.

8. gr.

    Félagið má eigi veita lán út á hluti sína. Félaginu er heimilt að kaupa eigin hluti að því marki sem lög leyfa. Óheimilt er að neyta atkvæðisréttar fyrir þá hluti sem félagið á sjálft.

9. gr.

    Hluthafi ber ekki ábyrgð á skuldbindingum félagsins fram yfir hlut sinn í félaginu.

10. gr.

    Engin sérréttindi fylgja hlutum í félaginu.

11. gr.

    Hluthafar þurfa ekki að sæta innlausn hluta sinna nema lög standi til annars.

STJÓRN FÉLAGSINS
12. gr.

    Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum lögmætra hluthafafunda.

13. gr.

    Aðalfundur skal haldinn fyrir lok ágúst ár hvert.
    Aukafundi skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu hluthafa sem ráða a.m.k. einum tíunda hluta hlutafjár í félaginu. Skal krafan gerð skriflega, fundarefni tilgreint og fundur boðaður þá innan fjórtán daga. Ef stjórnin skirrist við að boða fund eftir móttöku slíkrar kröfu má leita atbeina hlutafélagaskrár samkvæmt 62. gr. ehfl.

14. gr.

    Félagsstjórn skal boða til hluthafafundar með tilkynningu til hvers hluthafa í ábyrgðarbréfi, símskeyti, með rafpósti, með SMS-skilaboðum í síma, með tilkynningu á vefsíðu félagsins, með opinberri auglýsingu eða á annan jafnsannanlegan hátt. Aðalfund og aukafundi skal boða með minnst sjö daga fyrirvara. Fundarefnis skal getið í fundarboði. Hluthafafundur er lögmætur ef hann er löglega boðaður og hann sækja hluthafar eða umboðsmenn þeirra sem hafa yfir að ráða helmingi hlutafjár í félaginu að minnsta kosti. Verði fundur ólögmætur vegna annmarka að þessu leyti skal boðað til nýs fundar innan mánaðar með sjö daga fyrirvara og verður sá fundur lögmætur til að ræða þau mál sem ræða átti á fyrri fundinum ef hann sækja tveir hluthafar eða fleiri eða umboðsmenn þeirra enda ráði þeir yfir fimmtungi hlutafjár í félaginu hið minnsta. Heimilt er að halda hluthafafund annars staðar en á heimili félags.
    Hluthafafundur kýs fundarstjóra og fundarritara.

15. gr.

    Eitt atkvæði fylgir hverri krónu í hlutafé. Hluthafar geta með skriflegu umboði veitt umboðsmönnum heimild til að sækja hluthafafund og fara með atkvæðisrétt sinn.
    Á hluthafafundi ræður afl atkvæða nema öðruvísi sé fyrir mælt í landslögum eða samþykktum þessum. Samþykki allra hluthafa á löglega boðuðum hluthafafundi þarf til þess
     a.      að skylda hluthafa til að leggja fram fé í félagsþarfir fram yfir skuldbindingar sínar,
     b.      að takmarka heimild manna til meðferðar á hlutum sínum,
     c.      að breyta tilgangi félagsins að verulegu leyti eða
     d.      að breyta ákvæðum samþykktanna um hlutdeild manna í félaginu eða jafnrétti þeirra á milli.
    Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins eða um sameiningu þess við önnur félög eða fyrirtæki má ekki taka til meðferðar á fundum þess nema þess hafi verið getið í fundarboði.

16. gr.

    Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
     1.      Stjórn félagsins skal skýra frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
     2.      Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skulu lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda eða skoðunarmanna félagsins til samþykktar.
     3.      Stjórn félagsins skal kjörin og endurskoðendur eða skoðunarmenn.
     4.      Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skal með hagnað eða tap og um arð og framlög í varasjóð.
     5.      Ákvörðun skal tekin um greiðslur til stjórnar- og skoðunarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu.
     6.      Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

17. gr.

    Fundargerðabók skal haldin og í hana skráð það sem gerist á hluthafafundum.

18. gr.

    Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og tveimur til vara, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum þess milli hluthafafunda og gætir hagsmuna þess gagnvart þriðja manni. Undirskriftir formanns stjórnar og eins stjórnarmanns að auki skuldbinda félagið ef stjórnin þess er skipuð þremur eða fjórum mönnum en ella undirskriftir formanns stjórnar og tveggja stjórnarmanna. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Afl atkvæða ræður afgreiðslu mála. Verði atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum. Halda skal fundargerð um stjórnarfund.

19. gr.

    Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Formaður boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist stjórnarfundar. Sama rétt á framkvæmdastjóri.
    Stjórnin skal setja sér starfsreglur þar sem nánar skal kveðið á um framkvæmd starfa hennar.

20. gr.

    Stjórn félagsins ræður framkvæmdastjóra og ákveður starfskjör hans. Hún veitir og prókúruumboð fyrir félagið.
    Framkvæmdastjóri hefur með höndum stjórn á daglegum rekstri félagsins og kemur fram fyrir þess hönd í öllum málum sem varða venjulegan rekstur. Hann sér um reikningshald og ráðningu starfsliðs. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum eða skoðunarmönnum allar upplýsingar um rekstur félagsins sem þeir kunna að óska og veita ber samkvæmt lögum.

ENDURSKOÐUN OG REIKNINGSSKIL
21. gr.

    Á aðalfundi félagsins skal kjósa einn eða fleiri löggilta endurskoðendur eða skoðunarmenn ásamt varamönnum. Skulu þeir rannsaka reikninga félagsins fyrir hvert starfsár og leggja niðurstöður sínar fyrir aðalfund. Endurskoðendur eða skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna félagsins.

22. gr.

    Starfsár og reikningsár er almanaksárið. Stjórnin skal hafa lokið gerð ársreikninga og lagt fyrir endurskoðendur eða skoðunarmenn eigi síðar en einum mánuði fyrir aðalfund. Ársreikningar félagsins skulu vera öllum aðgengilegir eftir að þeir hafa verið samþykktir á aðlfundi.

UM BREYTINGAR Á SAMÞYKKTUM OG SLIT FÉLAGSINS
23. gr.

    Samþykktum þessum má breyta á lögmætum aðalfundi eða aukafundi með 2/ 3 hlutum greiddra atkvæða, svo og með samþykki hluthafa sem ráða yfir a.m.k. 2/ 3 hlutum af því hlutafé í félaginu sem farið er með atkvæði fyrir á fundinum, enda sé annað atkvæðamagn ekki áskilið í samþykktum eða landslögum, sbr. 68. gr. ehfl.

24. gr.

    Með tillögur um slit og skipti á félaginu skal fara sem um breytingar á samþykktum þessum. Þarf atkvæði hluthafa sem ráða minnst 2/ 3 hlutum af heildarhlutafé félagsins til að ákvörðun um slit sé gild. Hluthafafundur, sem tekið hefur löglega ákvörðun um slit eða skipti félagsins, skal einnig ákveða ráðstöfun eigna og greiðslu skulda.

25. gr.

    Þar sem ákvæði samþykkta þessara segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga um einkahlutafélög, svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt.

Samþykkt í Reykjavík 23. október 2003.




Fylgiskjal.


Drög að stofnsamningi fyrir Beina leið ehf.


1. gr.

    Heiti félagsins er Bein leið hf. Heimilisfang þess er við Austurvöll, 101 Reykjavík.

2. gr.

    Tilgangur félagsins er að beita sér fyrir framþróun í samgöngum á landi, með því m.a. að annast fjármögnun og eftir atvikum gerð og rekstur vega og annarra samgöngumannvirkja (einkafjármögnun); svo og rekstur fasteigna, lánastarfsemi og skyldur rekstur.

3. gr.

    Hlutafé félagsins er 1.125.505.000 kr. og greinist í jafna hluti. Hver hlutur er að fjárhæð 1 kr. – ein króna – að nafnverði.
    Stofnendur skrifa sig fyrir hlutafé sem hér segir (tilbúin nöfn):
            Nöfn, kt., fjárhæð, hlutir.
            Alls ?? stofnfélagar 1.125.505.000 kr.
            Samtals 1.125.505.000 kr.
    Allt hlutafé er þegar greitt.

4. gr.

    Kostnaður við stofnun félagsins, sem áætlaður er 10% af hlutafé, greiðist úr félagssjóði.

Reykjavík 23. október 2003.

Fylgiskjal.


Auglýsing um friðlýsingu Geitlands í Borgarfirði.
Stj.tíð. B, nr. 283/1988.


    Að tillögu hreppsnefnda Hálsahrepps og Reykholtsdalshrepps hefur [Náttúruvernd ríkisins] ákveðið fyrir sitt leyti að friðlýsa afréttin Geitland, sem er eign fyrrnefndra hreppa.
    Geitland er friðland samkvæmt 24. gr. náttúruverndarlaga nr. 47/ 1971.

    Mörk friðlandsins eru eftirfarandi:
    Geitland takmarkast af Hvítá að norðan, Geitá að vestan og Langjökli að sunnan og austan, í samræmi við við landamerkjabréf dags. 21. október 1921. Að öðru leyti vísast til meðfylgjandi uppdráttar.

    Um friðlandið gilda eftirfarandi reglur:
     1.      Mannvirkjagerð og jarðrask allt er bannað án leyfis [Náttúruverndar ríkisins].
     2.      Óheimilt er að beita búfé innan friðlandsins næstu 10 árin a. m. k.
     3.      Umferð vélknúinna ökutækja er óheimil utan vega og merktra slóða.
     4.      Öllum er heimil för um friðlandið, enda sé góðrar umgengni gætt.
     5.      Óheimilt er að skerða gróður, trufla dýralíf eða raska jarðmyndunum.

    Reglur um beit búfjár innan friðlandsins verða endurskoðaðar að 10 árum liðnum.
    Til undanþágu frá reglum þessum þarf leyfi [Náttúruverndar ríkisins].
    Um viðurlög vegna brota á reglum þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga.
    Ráðuneytið er samþykkt friðlýsingunni, sem tekur gildi við birtingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðindum.

Menntamálaráðuneytið, 3. júní 1988.
Birgir Ísl. Gunnarsson



..............




    Arnarvatnsheiði er skráð undir flokknum: Aðrar náttúruminjar hjá Umhverfisstofnun:
    Arnarvatnsheiði og Tvídægra (209), Mýrasýslu, V-Húnavatnssýslu. (1) Vatnasvæði Arnarvatnsheiðar og Tvídægru. Að sunnan liggja mörk frá Guðnahæð í Efri Fljótsdrögum um Eiríksgnípu í tind Strúts og þaðan vestur í Vatnshnúk, um Spenaheiði, Sléttafell í Litlaskálshæð. Austurmörk eru úr Litlaskálshæð um Suðurmannasandfell í Guðnahæð. (2) Frjósamar tjarnir, stöðuvötn, flóar og ár á vatnasviði Þverár, Norðlingafljóts, Hrútafjarðarár, Miðfjarðarár og Víðidalsár. Silungsveiði og mikið fuglalíf.
Forsendur í viðskiptaáætlun fyrir Beina leið hf.


Heildarfjöldi bifreiða á milli N- og S-lands 900 ÁDU
Verð fyrir léttar bifreiðar: 2.172 Sjá gjaldskrá
Verð fyrir þungar bifreiðar 7.584 Sjá gjaldskrá
Árleg aukning umferðar 3,30%
Hlutfall léttra bíla í heildarumferð (meðaltal) 95,5%
Hlutfall þungra bíla í heildarumferð 4,5%
Hlutfall umferðar sem færi um Beina leið 75,0%
Virðisaukaskattur reiknaður inn í fjárfestingu 14,0% 12,28%
Dagar í ári 365 dagar
Árlegar afskriftir af vegi 3,0%
Vextir lána p.a. 9,0%
Ávöxtunarkrafa hluthafa 15,0%
Skattur á nettóeign 1,20%
Skattur á nettótekjur 18,00%
Fjárfesting á núvirði 5.627.526.000
Hlutafé sem hlutfall af fjárfestingu 20,00%
Rekstrartími frá árinu 2004 til ársins 2033
Upphaf byggingartíma 2004
Upphaf rekstrar 23. október 2008
Tímabil viðskiptaáætlunar endar 2033


Forsendur í gjaldskrá fyrir Beina leið hf.

Áætlun um gjaldflokkaskiptingu á Beinni leið:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Fylgiskjal.

Vegagerðin,
áætlunardeild:


Stytting leiða.


(Janúar 2003.)



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Forsendur stofnkostnaðarfjárhagsáætlunar.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Gjaldskrá Hvalfjarðarganga.


Gjaldskráin gildir frá 1. apríl 2001
Veggjald í Hvalfjarðargöngum er í þremur flokkum eftir lengd ökutækja og að auki er sérstakur gjaldflokkur fyrir vélhjól. Í ríkissjóð rennur 14% virðisaukaskattur af veggjaldinu.
1. gjaldflokkur
Ökutæki styttri en 6 metrar: Hver ferð kostar:
Veggjald fyrir staka ferð 1.000 krónur
10 ferðir – afsláttarkort 700 krónur
40 ferðir – áskrift 550 krónur
100 ferðir – áskrift 440 krónur
10 miða afsláttarkort eru seld í gjaldskýli Hvalfjarðarganga.
Ath.: Sama gjald er fyrir bíla í 1. flokki dragi þeir tengitæki (t.d. hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagn) eða eftirvagna sem ekki eru skráningarskyldir (heildarþyngd undir 750 kg). Bílar sem draga skráningarskylda eftirvagna (heildarþyngd yfir 750 kg) færast upp í II. gjaldflokk.
2. gjaldflokkur
Ökutæki 6 til 12 metrar: Hver ferð kostar:
Veggjald fyrir staka ferð 3.000 krónur
40 ferðir – áskrift 2.145 krónur
3. gjaldflokkur
Ökutæki lengri en 12 metrar: Hver ferð kostar:
Veggjald fyrir staka ferð 3.800 krónur
40 ferðir – áskrift 2.717 krónur
4. gjaldflokkur
Vélhjól: Hver ferð kostar:
Veggjald fyrir staka ferð 400 krónur



Fylgiskjal.

Rafrænar greiðslur.



    Hugmyndin er sú að hver nýr bíll hafi rafrænt auðkenni. Auðkennið segir til um tegund, þyngd, stærð og fastnúmer. Á þessu kerfi er síðan hægt að byggja rafræna gjaldtöku, t.d. við akstur í gegnum gjaldskyld umferðarmannvirki eða ef lagt er á tímamældum stæðum þar sem útbúnaðurinn er til staðar.
    Í grófum dráttum les gjaldtökubúnaður auðkenni bílsins og skuldfærir reikning eiganda bifreiðarinnar samkvæmt viðeigandi gjaldflokki, byggt á upplýsingum úr auðkenninu. Greiðslufyrirkomulag getur verið a.m.k. tvennskonar. Í fyrsta lagi bein skuldfærsla á bankareikning eiganda bifreiðarinnar eða greiðslukortareikning hans. Í öðru lagi getur verið um eftirágreiðslu að ræða þannig að eigandi bifreiðarinnar fær reikning fyrir úttekt sinni á reikningstímabilinu sem hann síðan greiðir.
    Bein leið hefur tvöfalt kerfi við innheimtu. Í fyrsta lagi er auðkennið lesið og í öðru lagi skrásetningarnúmer bifreiðar myndað og borið saman við upplýsingar úr auðkenninu. Hægt er að nýta kerfið til að skrá hvenær bílar fara út af veginum gegnum aðrar gjaldtökustöðvar. Þetta er fyrst og fremst hugsað sem öryggisatriði, einkum að vetri til. Einn helsti ókostur einkaframkvæmda á samgöngusviði í þéttbýli er gjaldtaka. Hún verður að ganga hratt og örugglega fyrir sig svo flöskuhálsar myndist ekki á álagstímum. Sem dæmi má nefna að ef fyrirhuguð Sundabraut yrði fjármögnuð með gjaldtöku verður hún að vera með rafrænum hætti annars er hætt við að gjaldtakan yrði bæði dýr og tímafrek. Jafnframt minnkar ávinningur viðskiptavinanna eftir því sem sá tími sem fer í greiðslu veggjalds lengist. Ef um er að ræða fleiri en eina framkvæmd með jafnmörgum gjaldtökukerfum er hagkvæmni eins greiðslukerfis augljós.
    Ekki er ástæða til að óttast vanskil á greiðslum þar sem réttarstaða eiganda mannvirkisins er sterk og innheimta í sjálfu sér einföld.
    Nú þegar eru fyrir hendi greiðslumiðlunarkerfi, bæði hjá bönkum og greiðslukortafyrirtækjum sem hæglega gætu séð um greiðslumiðlunarþáttinn. Því er ekki gert ráð fyrir fjárfestingu í þeim þætti.
    Ýmsir aðrir notkunarmöguleikar eru á kerfinu m.a. við löggæslu sem ekki verður farið nánar í hér.


Fylgiskjal.

Fjármögnun og kostnaður Hvalfjarðarganga.



    Byggingarvísitala í febrúar 1996 208,5
    Byggingarvísitala í mars 2003 285,5
    Göngin mundu því kosta á marsverðlagi 2003 6.340 millj. kr.
    Stytting er u.þ.b. 42 km á leiðinni Reykjavík – Akureyri.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Heimildir:

Einkafjármögnun vegar á milli Hólmavíkur og Gilsfjarðar.
http://www.vegur.is/einkaframkvaemd.html

Þór Sigfússon, Nýir kostir í uppbyggingu og rekstri innviða.

Gylfi Magnússon, Hvað er einkafjármögnun.

Ferðamálaráð, nóvember 2002, Auðlindin Ísland.

Samgönguráðuneytið, samgönguáætlun 2003–2014.

Hagfræðistofnun HÍ, Fjárstreymi í samgöngum, október 2001.

Samgönguráðuneytið, Samgöngur á nýrri öld, ISBN 9979-9402-3-9, 2003.

Samgönguráðuneytið, Samgöngur í tölum, ISBN ISBN 9979-9402-2-0, 2003.

Samgönguráðuneytið, Skýrsla nefndar um flutningskostnað, janúar 2003.

Vegagerðin, Stytting leiða, áætlunardeild, janúar 2003.

Vegagerðin, Hreinn Haraldsson, yfirmaður þróunarsviðs.

Vegagerðin, Eymundur Runólfsson, áætlunardeild.

Vegagerðin, Hannes Már Sigurðsson, fjárreiðudeild.

Heimasíða Spalar ehf.: www.spolur.is.

Spölur ehf., Stefán Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri.

Vegagerðin, kort af vegakerfi landsins.

Héraðsvötn ehf., Villinganesvirkjun, 1999.




Bein leið.



Höfundur lags og texta: KK.


Aðlagað Beinni leið: GTh.


Bein leið, gatan liggur greið
bein leið, gatan liggur greið
þú sparar tíma' og slit
já þetta' er eitthvað vit.

Ég var að vappa um bæinn
það var hér um daginn
og sá fullt af bílum
og strætóskýlum.
Viltu heyra?
Ljáðu eyra, heyrðu meira.
Þú sparar tíma' og slit
já þetta' er eitthvað vit.

Það var einn guðsgeldingur
þessi einfeldningur
hann vildi ei spara
vildi bara
fara hringinn áfram samt
sumum tamt, sumum tamt.
Þú sparar tíma' og slit
já þetta' er eitthvað vit.

Bein leið …

Þú átt nú annað val
eitthvað sem koma skal.
Nýr vegur styttir leið
gatan bein og breið.
Ég er farinn
þú ert farinn.
Spörum tíma' og slit
já þetta' er eitthvað vit.

Bein leið …