131. löggjafarþing — 66. fundur, 3. feb. 2005.
Einkamálalög og þjóðlendulög.
190. mál
[15:47]
Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):
Herra forseti. Ég vona þá að við getum orðið sammála um þann skilning á frumvarpinu að eins og reglurnar eru er verið að skerða réttindi 90% Íslendinga til að sækja rétt á kostnað ríkisvaldsins sem varðar almennar reglur. Ég vona að ég sé ekki að snúa út úr og þetta sé einmitt kjarni málsins.