131. löggjafarþing — 71. fundur, 10. feb. 2005.
Geðheilbrigðismál, munnleg skýrsla heilbrrh.
[10:34]
Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):
Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Hver þingflokkur hefur 20 mínútur til ráðstöfunar fyrir þingmenn sína en þingflokkur ráðherra þó 30 mínútur. Ráðherra hefur að auki þrjár mínútur, ef hann svo kýs, við lok umræðunnar og verða þá leyfð andsvör.