Geðheilbrigðismál, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra

Fimmtudaginn 10. febrúar 2005, kl. 12:42:01 (4459)


131. löggjafarþing — 71. fundur,  10. feb. 2005.

Geðheilbrigðismál, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra.

[12:42]

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Fram kom í skýrslunni sem ég flutti í upphafi fundar að framlög til geðsviðs Landspítalans hafa hækkað. Hv. þm. Ögmundur Jónasson upplýsir að hlutfall geðsviðsins af framlögum til Landspítalans hafi lækkað. Það sýnir einfaldlega að við höfum verið að auka fjármuni til Landspítalans, enda er það staðreynd málsins að það er fleira en geðsviðið sem við höfum aukið fjármuni til. Við höfum aukið fjármuni til starfseminnar, bætt verulegum fjármunum í grunn Landspítala – háskólasjúkrahúss ár eftir ár.

Stofnunin sinnir rándýrri starfsemi sem er alveg lífsnauðsynleg og er endastöð í heilbrigðiskerfinu og kallar (Forseti hringir.) á mikla fjármuni.