Álbræðsla á Grundartanga.
Guðjón Guðmundsson (S) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er nú svo að þetta er síðasti dagurinn minn á Alþingi. Eins og hv. þingmanni er kannski kunnugt er ég varaþingmaður, ég mun því ekki hafa mjög mikil áhrif hér á næstunni og er það miður fyrir þessa virðulegu stofnun að missa slíkan ágætismann út í kvöld. En svona gamanlaust þá hef ég komið því á framfæri að mér finnst full ástæða til að skoða þetta og ég hef sagt það hér og ég hef sagt það í mínum flokki og læt það bara nægja að sinni.