KF fyrir BBj

Þriðjudaginn 30. nóvember 2004, kl. 13:31:47 (2424)

131. löggjafarþing — 45. fundur,  30. nóv. 2004.

Varamaður tekur þingsæti.

[13:31]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 4. þm. Reykv. n., Birni Bjarnasyni, dagsett 25. nóvember:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykv. n., Katrín Fjeldsted læknir, taki sæti mitt á Alþingi á meðan en 1. varamaður situr nú á Alþingi.“

 

Katrín Fjeldsted hefur áður setið á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.