Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 117. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 117  —  117. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um samræmda áfengisstefnu á Norðurlöndum .

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hverjar eru hugmyndir ráðherra um samræmda áfengisstefnu á Norðurlöndum og hverjar verða tillögur Íslands í því efni á aukafundi heilbrigðisráðherra Norðurlanda í október?
     2.      Hversu miklu á íbúa ver hvert ríki á Norðurlöndunum til áfengis- og fíkniefnaforvarna?
     3.      Telur ráðherra að samræma eigi áfengiskaupaaldur því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum varðandi kaup á léttvíni og bjór þannig að hann verði 18 ár og mun ráðherra beita sér fyrir auknu fjármagni til forvarna ef sú leið verður valin hér á landi?



























Prentað upp.