Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 262. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 283  —  262. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um eftirlit tollgæslunnar með innflutningi í gámum.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hve margar vörugámaeiningar voru fluttar inn til landsins:
                  a.      árið 2003,
                  b.      árið 2004?
     2.      Hve stórt hlutfall heildarinnflutnings vöru í gámum var skoðað fyrrnefnd ár?
     3.      Hversu oft á árunum 2003 og 2004 komu upp mál í tengslum við vöruinnflutning í gámum sem má rekja til:
         a.     rangrar tollflokkunar sem leiddi til of lágra eða hárra tollgreiðslna,
         b.     fíkniefnainnflutnings,
         c.     þess að innsigli var rofið af lokunarbúnaði gáms,
         d.     þess að innsigli var rofið áður en til tollskoðunar kom?
     4.      Hve margir tollverðir starfa að eftirliti með vöruinnflutningi í gámum?
     5.      Er fyrirhugað aukið eftirlit með innflutningi varnings í gámum?


Skriflegt svar óskast.