Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 633. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1092 — 633. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar um greiðslur til ríkisins frá Landssímanum.
1. Hverjar eru heildargreiðslur Landssíma Íslands hf., áður Pósts og síma hf., áður Pósts og síma, til ríkissjóðs á arði eða skil á hagnaði eða aðrar greiðslur til ríkisins sem eiganda frá upphafi til og með þeim arðgreiðslum sem ákveðnar hafa verið á yfirstandandi ári að ósk ríkisins, uppfært til núgildandi verðlags og sundurliðað eftir árum?
Fjármálaráðuneytið hefur kannað greiðslur frá Landssímanum hf. og forverum hans til ríkissjóðs. Eftir því sem næst verður komist var enginn arður greiddur fyrr en frá og með árinu 1989. Í meðfylgjandi töflu koma fram arðgreiðslur frá þeim tíma, samtals að fjárhæð 20,1 milljarður kr. Á verðlagi mars 2005 nema þær 23,9 milljörðum kr.
Arðgreiðslur hafa verið óverulegar þar til fyrir þremur árum. Í tengslum við fyrirhugaða sölu á hlutabréfum ríkisins í Landssíma Íslands var skoðað hvort breyta mætti fjárhagsskipan fyrirtækisins þannig að heildarandvirði það sem ríkissjóður fengi fyrir eign sína ykist án þess að rekstrarhæfi fyrirtækisins skertist. Ákveðið var að lækka eiginfjárhlutfallið með sérstaklega hárri arðgreiðslu á árinu 2005, eða 6,3 milljörðum kr., eins og fram kemur í töflunni.
2. Hver er meðaltalsársupphæð viðkomandi greiðslutímabils og hve mörg ár er sú upphæð að skila ígildi söluandvirðis Símans ef miðað er við 40 milljarða kr.?
Meðaltalsarðgreiðsla sl. 17 ára, eða frá árinu 1989, nemur 1,4 milljörðum kr. Sú fjárhæð yrði 28 1/ 2 ár að ná 40 milljörðum kr.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1092 — 633. mál.
Svar

|
Ár |
Arðgreiðsla í ríkissjóð | Vísitala neysluverðs | Arður á verðlagi mars 2005 |
| 2005 | 6.330 | 241,5 | 6.330 |
| 2004 | 2.085 | 234,6 | 2.146 |
| 2003 | 2.087 | 227,3 | 2.146 |
| 2002 | 835 | 222,6 | 906 |
| 2001 | 565 | 212,4 | 642 |
| 2000 | 565 | 199,1 | 685 |
| 1999 | 565 | 189,6 | 720 |
| 1998 | 595 | 183,3 | 784 |
| 1997 | 860 | 180,3 | 1.152 |
| 1996 | 860 | 177,1 | 1.173 |
| 1995 | 860 | 173,2 | 1.199 |
| 1994 | 850 | 170,3 | 1.205 |
| 1993 | 820 | 167,8 | 1.180 |
| 1992 | 940 | 161,2 | 1.408 |
| 1991 | 550 | 155,4 | 855 |
| 1990 | 500 | 145,5 | 830 |
| 1989 | 250 | 126,7 | 477 |
| Samtals | 20.117 | 23.839 | |
| Meðaltal frá 1989 | 1.402 | ||