Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 790. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1396 — 790. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndal um bensíngjald og meðalútsöluverð bensíns.
1. Hvernig hefur bensíngjald þróast sem hlutfall af meðalútsöluverði bensíns frá árinu 1996?
2. Hvernig skiptist meðalútsöluverð bensíns nú í innkaupsverð, bensíngjald, álagningu og virðisaukaskatt í krónum talið og hlutfallslega?
Ráðuneytið hefur ekki aðgang að upplýsingum um álagningu eða innkaupsverð olíufélaganna á bensíni. Hlutur skatta í útsöluverði eldsneytis er eftirfarandi miðað við nýjustu tölur um útsöluverð eldsneytis 6. maí 2005:
3. Hvert væri meðalútsöluverð bensíns núna ef lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., hefði ekki verið breytt með lögum nr. 86/1999?
Með lögum nr. 86/1999, um breytingu á lögum nr. 29/1993, var almennt vörugjald af bensíni breytt frá því að vera 97% af tollverði í að vera föst krónutala, 10,50 kr. af hverjum bensínlítra. Í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 86/1999 kemur m.a. fram að í september 1999 samsvaraði 97% vörugjald um 12,80 kr. vörugjaldi á hvern bensínlítra.
Samkvæmt upplýsingum frá tollstjóranum í Reykjavík var tollverð á bensíni í mars 2005 um 20,20 kr. af hverjum bensínlítra. 97% af þeirri upphæð er 19,60 kr. Ef lögum nr. 29/1993 hefði því ekki verið breytt með lögum nr. 86/1999, að því leyti að fast gjald var tekið upp í stað hlutfallsgjalds, væri almenna bensíngjaldið í dag því 19,60 kr. í stað 11,34. Samtals væri þá almenna og sérstaka bensíngjaldið 50,49 kr. (19,60 kr. + 30,89 kr.), í stað 42,23 kr. Að teknu tilliti til aukins virðisaukaskatts væru skattar ríkissjóðs á hvern bensínlítra því samtals 10,28 kr. hærri en þeir eru í dag og útsöluverð bensíns því hærra sem því nemur.
4. Hvernig hefur bensíngjaldið þróast í samanburði við neysluverðsvísitölu frá 1996?
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1396 — 790. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndal um bensíngjald og meðalútsöluverð bensíns.
1. Hvernig hefur bensíngjald þróast sem hlutfall af meðalútsöluverði bensíns frá árinu 1996?
| 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | |
| 95 oktana bensín | |||||||||
| Bensíngjald sem hlutfall af meðalútsöluverði | 48,8% | 49,9% | 49,2% | 48,6% | 41,5% | 39,3% | 41,1% | 39,8% | 38,9% |
| Almennt vörugjald | 11,10 | 12,20 | 9,30 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 11,34 |
| Sérstakt vörugjald | 24,90 | 26,60 | 27,50 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 30,89 |
| Meðalútsöluverð | 73,70 | 77,70 | 74,79 | 80,48 | 94,25 | 99,61 | 95,21 | 98,21 | 108,58 |
| 98 oktana bensín | |||||||||
| Bensíngjald sem hlutfall af meðalútsöluverði | 45,1% | 47,1% | 46,3% | 45,9% | 39,6% | 37,5% | 39,1% | 38,0% | 37,6% |
| Almennt vörugjald | 11,10 | 12,20 | 9,30 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 11,34 |
| Sérstakt vörugjald | 24,90 | 26,60 | 27,50 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 30,89 |
| Meðalútsöluverð | 79,83 | 82,40 | 79,49 | 85,18 | 98,67 | 104,31 | 99,91 | 102,91 | 112,31 |
| Bensíngjald sem hlutfall af meðalútsöluverði | |||||||||
| 95 oktana bensín | 48,8% | 49,9% | 49,2% | 48,6% | 41,5% | 39,3% | 41,1% | 39,8% | 38,9% |
| 98 oktana bensín | 45,1% | 47,1% | 46,3% | 45,9% | 39,6% | 37,5% | 39,1% | 38,0% | 37,6% |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hvernig skiptist meðalútsöluverð bensíns nú í innkaupsverð, bensíngjald, álagningu og virðisaukaskatt í krónum talið og hlutfallslega?
Ráðuneytið hefur ekki aðgang að upplýsingum um álagningu eða innkaupsverð olíufélaganna á bensíni. Hlutur skatta í útsöluverði eldsneytis er eftirfarandi miðað við nýjustu tölur um útsöluverð eldsneytis 6. maí 2005:
| Almennt vörugjald af bensíni | 11,34 kr. |
| Sérstakt vörugjald af bensíni | 30,89 kr. |
| Virðisaukaskattur 24,5% | 21,75 kr. |
| Meðalútsöluverð (95 oktana) | 110,5 kr. |
| Skattar samtals | 63,98 kr. |
| Hlutfall skatts í verði | 57,90% |
3. Hvert væri meðalútsöluverð bensíns núna ef lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., hefði ekki verið breytt með lögum nr. 86/1999?
Með lögum nr. 86/1999, um breytingu á lögum nr. 29/1993, var almennt vörugjald af bensíni breytt frá því að vera 97% af tollverði í að vera föst krónutala, 10,50 kr. af hverjum bensínlítra. Í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 86/1999 kemur m.a. fram að í september 1999 samsvaraði 97% vörugjald um 12,80 kr. vörugjaldi á hvern bensínlítra.
Samkvæmt upplýsingum frá tollstjóranum í Reykjavík var tollverð á bensíni í mars 2005 um 20,20 kr. af hverjum bensínlítra. 97% af þeirri upphæð er 19,60 kr. Ef lögum nr. 29/1993 hefði því ekki verið breytt með lögum nr. 86/1999, að því leyti að fast gjald var tekið upp í stað hlutfallsgjalds, væri almenna bensíngjaldið í dag því 19,60 kr. í stað 11,34. Samtals væri þá almenna og sérstaka bensíngjaldið 50,49 kr. (19,60 kr. + 30,89 kr.), í stað 42,23 kr. Að teknu tilliti til aukins virðisaukaskatts væru skattar ríkissjóðs á hvern bensínlítra því samtals 10,28 kr. hærri en þeir eru í dag og útsöluverð bensíns því hærra sem því nemur.
4. Hvernig hefur bensíngjaldið þróast í samanburði við neysluverðsvísitölu frá 1996?
| 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | |
| Vísitala neysluverðs, meðaltal ársins | 177,1 | 180,3 | 183,3 | 189,6 | 199,1 | 212,4 | 222,6 | 227,3 | 234,6 |
| Almennt vörugjald | 11,10 | 12,20 | 9,30 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 10,50 | 11,34 |
| Sérstakt vörugjald | 24,90 | 26,60 | 27,50 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 28,60 | 30,89 |
| Vísitala neysluverðs, meðaltal ársins | 100 | 102 | 104 | 107 | 112 | 120 | 126 | 128 | 132 |
| Almennt vörugjald | 100 | 110 | 84 | 95 | 95 | 95 | 95 | 95 | 102 |
| Sérstakt vörugjald | 100 | 107 | 110 | 115 | 115 | 115 | 115 | 115 | 124 |