Útbýting þingskjala

Föstudaginn 02. desember 2005, kl. 15:06:29 (2527)


132. löggjafarþing — 33. fundur,  2. des. 2005.

Útbýting þingskjala.

[15:06]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti vill taka fram að það er misskilningur hjá hv. þingmanni að verið sé að dreifa gögnum sem snerta 3. umr. fjárlaga.

Varðandi þau tvö stjórnarfrumvörp sem hann nefndi, annars vegar Matvælarannsóknir hf. og hins vegar stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins, stjórnarfrumvarp, getur forseti sagt að honum er ekki kunnugt um að ósk liggi fyrir um að þessi mál verði afgreidd fyrir jólahlé.