123. FUNDUR
laugardaginn 3. júní,
kl. 1.30 miðdegis.
Almennar stjórnmálaumræður.
Umræðurnar fóru þannig fram að hver þingflokkur hafði 15 mínútur til umráða sem skiptust í tvær umferðir. Röð flokkanna í báðum umferðum var þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrri umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Mörður Árnason, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í seinni umferð.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru í fyrri umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og í seinni umferð Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, í þeirri seinni Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu í fyrri umferð Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Birkir J. Jónsson 9. þm. Norðausturkjördæmis, en Guðjón Ólafur Jónsson, 11. Reykjavíkurkjördæmis norður, í seinni umferð.
Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrri umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis, og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvesturkjördæmis, en í seinni umferð Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis.
Fundi slitið kl. 14:51.
---------------