Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 218. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 218  —  218. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um fjölda nemenda í starfsnámi.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hve margir nemendur hafa stundað nám í hvers konar starfs-, verk- og listnámi við íslenska framhaldsskóla árin 2004 og 2005, sundurgreint eftir skólum, brautum og árum?
     2.      Hve margir hafa stundað bóknám sömu ár?
     3.      Hve margir útskrifuðust af starfs-, verk- og listnámsbrautum vorið 2005, sundurliðað eftir skólum og brautum?
     4.      Hve margir útskrifuðust með stúdentspróf úr íslenskum framhaldsskólum vorið 2005?


Skriflegt svar óskast.