Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 446. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 668  —  446. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um skotveiði og friðland í Guðlaugstungum.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



    Hvaða samráð var haft við veiðimenn þegar ákvörðun var tekin um að banna skotveiði á stóru landsvæði með auglýsingu, dags. 22. desember sl., um friðland í Guðlaugstungum?