Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 400. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 744 — 400. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur um alnæmissmit.
1. Hversu margir einstaklingar hafa greinst með alnæmissmit hér á landi fram til 1. desember sl. og hvernig eru kynjahlutföllin í þeim hópi?
Fram til 1. desember 2005 höfðu greinst 183 sjúklingar með alnæmissmit. Af þeim eru 141 karl en 42 konur.
2. Hvernig skiptist hópurinn eftir aldri og hvert er hlutfall smitaðra af hverjum aldursflokki, þ.e. 0–14 ára, 15–19 ára, 20–29 ára og svo áfram á 10 ára aldursbili?
Skipting eftir aldri og kyni er sýnd í eftirfarandi töflu.
3. Hvernig er dreifingu alnæmissmitaðra háttað eftir smitleiðum og áhættuhegðun, t.d. fíkniefnaneytendur, gagnkynhneigðir, samkynhneigðir o.s.frv.?
Dreifing eftir smitleiðum og áhættuhegðun er talin vera:
– kynmök samkynhneigðra 92 (50%),
– kynmök gagnkynhneigðra 63 (34%),
– fíkniefnaneysla um æð 20 (11%),
– blóðþegar við blóðgjöf fjórir (2%), gerðist fyrir árið 1985,
– frá móður til barns eitt tilfelli (1%) og
– ekki er vitað um smitleið í þremur tilvikum (2%).
4. Er á döfinni að hvetja til aukinnar notkunar á smokkum? Ef svo er, á hvern hátt?
5. Er fyrirhugað að dreifa smokkum ókeypis, t.d. til heilsugæslustöðva og unglingamóttöku, námsráðgjafa í grunn- og framhaldsskólum o.s.frv.?
6. Er fyrirhugað að gera áætlun um bætt aðgengi að smokkunum?
7. Er fyrirhugað að fella niður virðisaukaskatt af smokkum?
8. Hefur verið skoðaður sá möguleiki að deila út hreinum sprautum ókeypis til sprautufíkla/fíkniefnaneytenda, til að fækka smitleiðum í þessum áhættuhópi?
Af hálfu heilbrigðisyfirvalda hefur verið til umræðu hvort bæta megi aðgengi að smokkum annars vegar og sprautum og nálum hins vegar. Mikils er um vert að viðhalda góðum árangri í baráttunni við alnæmi og draga úr mikilli tíðni tíðni klamýdíusýkinga en hún er meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum. Meðal þeirra hugmynda sem hreyft hefur verið er að ókeypis smokkar liggi frammi á heilsugæslustöðum, í skólum og unglingamóttökum en ungt fólk á aldrinum 15–24 ára er í mestri hættu að fá klamýdíu. Einnig hefur verið rætt að HIV-smitað fólk fái aðgang að ókeypis smokkum.
Heilbrigðisráðherra beindi þeirri fyrirspurn til sóttvarnaráðs hver yrði væntanlegur kostnaður við kaup á smokkum. Í svari sóttvarnalæknis kemur fram að kaup á um 200.000 smokkum til ókeypis dreifingar sem tilraunaverkefni meðal áhættuhópa gætu numið um 10–12 millj. kr. á ári hverju. Dreifing ókeypis smokka er talin hafa gefist vel sums staðar á Norðurlöndum.
Einnig hafa verið ræddar hugmyndir um að auðvelda aðgengi að sprautum og nálum fyrir fíkniefnaneytendur sem sprauta sig. Ráðuneytið er með þessar hugmyndir til skoðunar en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 744 — 400. mál.
Svar

Aldur og kyn HIV-smitaðra 1. desember 2005.
| Aldurshópur (ár) | Kk. | Kvk. | Samtals | % |
| < 1 | 0 | 0 | 0 | 0,0 |
| 1–4 | 0 | 1 | 1 | 0,5 |
| 5–9 | 0 | 0 | 0 | 0,0 |
| 10–12 | 0 | 0 | 0 | 0,0 |
| 13–14 | 0 | 0 | 0 | 0,0 |
| 15–19 | 1 | 3 | 4 | 2,2 |
| 20–24 | 19 | 7 | 26 | 14,2 |
| 25–29 | 27 | 13 | 40 | 21,9 |
| 30–34 | 25 | 7 | 32 | 17,5 |
| 35–39 | 27 | 3 | 30 | 16,4 |
| 40–49 | 30 | 3 | 33 | 18,0 |
| 50–59 | 12 | 2 | 14 | 7,7 |
| >59 | 0 | 3 | 3 | 1,6 |
| Samtals | 141 | 42 | 183 | 100,0 |