Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 452. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 794 — 452. mál.
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um lyfjaverð í heildsölu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur miðað að ná markmiðum um að lyfjaverð í heildsölu á Íslandi verði sambærilegt við meðalverð annars staðar á Norðurlöndum, sbr. samkomulag heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Félags íslenskra stórkaupmanna frá júlí 2004 um lækkun lyfjaverðs, og að hvaða leyti hafa þessi markmið um lækkun lyfjaverðs í heildsölu birst í lækkun lyfja í smásölu til neytenda?
Í mars 2004 gaf Ríkisendurskoðun út skýrsluna „Lyfjakostnaður – notkun, verð og framboð lyfja á Íslandi“. Þar kom m.a. fram að árið 2003 var lyfjakostnaður á hvern Íslending um 46% hærri að meðaltali en meðallyfjakostnaður fyrir hvern íbúa í Noregi og Danmörku þó að heildarnotkun væri nokkru meiri þar en hér. Ástæður fyrir þessum mun voru einkum raktar til hærra lyfjaverðs hér á landi og meiri notkunar lyfja í vissum lyfjaflokkum, einkum í flokki tauga- og geðlyfja. Þá benti Ríkisendurskoðun á í skýrslu sinni að mismunandi kostnaður skýrðist „… fyrst og fremst af tveimur álíka veigamiklum þáttum. Annars vegar noti Íslendingar verulega minna af ódýrum samheitalyfjum en Danir og Norðmenn sem á allra síðustu árum hafa aukið mjög sölu slíkra lyfja. Hins vegar sé kostnaður við að dreifa lyfjum og selja meiri hér á landi en í hinum löndunum, m.a. vegna smæðar markaðarins, lítillar veltu margra lyfja, kostnaðar við að merkja lyf á íslensku og þess að apótek eru hlutfallslega fleiri hér en þar.“
Til að bregðast við skýrslu Ríkisendurskoðunar ákvað ráðherra m.a. að beita sér fyrir því að lyfjaverð á Íslandi yrði sambærilegt við meðalverð í smásölu í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hverju sinni með því að lækka verð í heildsölu og smásölu jöfnum skrefum á næstu tveimur árum. Einnig ákvað ráðherra að skipa nefnd til að semja drög að lyfjastefnu og nýjum lyfjalögum þar sem tekið yrði tillit til ábendinga í skýrslu Ríkisendurskoðunar og frá hagsmunaaðilum. Þá skipaði ráðherra einnig stýrihóp fyrir þremur árum til að vinna að átaki í lyfjamálum heilbrigðisstofnana sem er farið að skila árangri og lægri lyfjakostnaði hjá ýmsum heilbrigðisstofnunum.
Á miðju ári 2004 gerði ráðherra samkomulag um stefnumörkun um lækkun lyfjaverðs við Félag íslenskra stórkaupmanna og Actavis gegn því að fallið væri frá áformum um viðmiðunarverð lyfja með sambærileg meðferðaráhrif. Sú stefnumörkun hefur gengið samkvæmt áætlun og eiga lyfjafyrirtækin hrós skilið fyrir að hafa hingað til staðið fyllilega við sinn hluta samkomulagsins.
Með samkomulagi við FÍS og Actavis, sterku gengi krónunar og öðrum aðgerðum lyfjagreiðslunefndar hefur lyfjaverð lækkað umtalsvert á undanförnum tveimur árum. Sé lyfjanotkun síðasta árs reiknuð annars vegar samkvæmt lyfjaverðskrá í desember 2003 og hins vegar samkvæmt lyfjaverðskrá í desember 2005 kemur fram að heildsöluverðmæti lyfja hefur lækkað á undanförnum tveimur árum um 17% (sem samsvarar 1,7 milljarða kr. lækkun útgjalda á einu ári) og smásöluverðmæti um 14% (sem samsvarar 2,4 milljarða kr. lækkun útgjalda á einu ári). Í meðfylgjandi töflu og súluritum kemur nánar fram hvernig þessi lækkun skiptist á einstaka lyfjaflokka. Tekið skal fram að þessir útreikningar ná til sölu allra lyfja síðasta árs sem hafa markaðsleyfi á Íslandi sem seld eru frá lyfjaheildsölu til apóteka eða heilbrigðisstofnana. Lyf sem framleidd eru í apótekum eða flutt eru inn og seld með undanþágu frá markaðsleyfi eru undanþegin. Heildsöluverð er tilgreint án virðisaukaskatts reiknað út frá lyfjaverðskrám en ekki er tekið tillit til afsláttar eða útboðsverðs til apóteka og heilbrigðisstofnana. Smásöluverð er samkvæmt opinberum verðskrám með virðisaukaskatti en ekki er tekið tillit til afsláttar til sjúklinga.
Ef tekið er tillit til þess að um 60% lyfja eru skráð í erlendri mynt og um 40% í íslenskum krónum er talið að meiri hluti þessarar lækkunar eða um 10 prósentustig stafi af sterkri stöðu krónunnar á undanförnum tveimur árum.
Umrædd verðlækkun hefur ekki skilað sér í sama mæli til neytenda og til ríkisins, m.a. vegna þess að lyfsalar hafa brugðist við verðlækkunum með því að draga úr afslætti sem þeir gáfu sjúklingum áður. Af þeim ástæðum hafa sumir sjúklingar orðið varir við hækkun á hlutdeild sinni þrátt fyrir umræddar verðlækkanir.
Þá hafa sést vísbendingar um að dregið hafi verulega úr samkeppni milli apóteka eftir því sem eignarhald þeirra hefur færst á færri hendur og þar með hafi einnig dregið úr afslætti. Þessi þáttur málsins, þ.e. aukin fákeppni á kostnað samkeppni, hefur m.a. verið til umfjöllunar í þeirri nefnd sem vinnur að stefnumörkun í lyfjamálum og áður er minnst á.
Einnig má geta þess að með hámarksgreiðslum, sem hafa verið óbreyttar undanfarin ár, ver greiðsluþátttökukerfi almannatrygginga sjúklinga gegn verðhækkunum og lækkanir, sérstaklega á dýrum lyfjum, skila sér ekki alltaf til sjúklinga. Í þeim tilvikum þegar sjúklingar greiða fullt verð njóta þeir þeirrar verðlækkunar sem orðið hefur. Þegar um greiðsluþátttöku almannatrygginga er að ræða njóta sjúklingar verðlækkunar í mismiklum mæli sé um ódýr lyf að ræða. Þegar um dýrari lyf er að ræða kemur hvorki umrædd verðlækkun fram hjá sjúklingum né nein verðhækkun þar sem engin breyting hefur orðið á hámarksgreiðslum eins og áður hefur komið fram. Almenningur greiðir að hámarki 3.400 kr. fyrir lyfseðil fyrir B-merkt lyf og að hámarki 4.950 kr. fyrir E-merkt lyf. Elli og örorkulífeyrisþegar greiða að hámarki 1.050 kr. fyrir lyfseðil B-merktra lyfja og að hámarki 1.375 kr. fyrir E-merkt lyf. Af því leiðir að þótt lyf sem kostar t.d. 10.000 kr. lækki í 7.000 kr. verður sjúkratryggt fólk ekki vart við þá verðbreytingar og greiðir að hámarki sem áður. Ef lyfjaskammturinn nær ekki hámarksverði viðkomandi lyfs, nýtur sjúklingur lækkunar.
Ekki eru horfur á öðru en það takmark náist að 1. september 2006 verði lyfjaverð í heildsölu á Íslandi jafnt meðalheildsöluverði í Noregi, Danmörku og Svíþjóð og í árslok 2006 verði smásöluverð lyfja hér áþekkt því sem gerist á Evrópska efnahagssvæðinu, einkum í Danmörku og Finnlandi.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 794 — 452. mál.
Svar

Selt magn allt árið 2005 reiknað á mismunandi verðskrám í millj. kr..
| Verðmæti á heildsöluverði 1. des. 2003 | Verðmæti á heildsöluverði 1. des. 2005 | Verðmæti á apóteksverði 1. des. 2003 |
Verðmæti á apóteksverði 1. des. 2005 |
|
| A Meltingarfæra- og efnaskiptingalyf | 1.057 ,0 | 874,5 | 1.755,4 | 1.511,9 |
| B Blóðlyf | 600 ,7 | 471,1 | 855,2 | 699,6 |
| C Hjarta- og æðasjúkdómalyf | 1.475 ,7 | 1.081,7 | 2.424,1 | 1.853,1 |
| D Húðlyf | 222 ,5 | 187,6 | 419,0 | 372,2 |
| G Þvagfæralyf, kvensjúkdómalyf og kynhormónar | 587 ,0 | 464,9 | 1.001,4 | 818,7 |
| H Hormónalyf önnur en kynhormónar | 176 ,2 | 153,1 | 276,9 | 239,2 |
| J Sýkingalyf | 766 ,2 | 690,2 | 1.290,1 | 1.172,0 |
| L Æxlishemjandi lyf og lyf til ónæmistemprunar | 1.164 ,4 | 909,9 | 1.528,1 | 1.200,9 |
| M Vöðvasjúkdóma- og beinagrindarlyf | 467 ,8 | 398,8 | 845,8 | 755,5 |
| N Tauga- og geðlyf | 2.618 ,7 | 2.349,8 | 4.579,6 | 4.243,8 |
| P Sníklalyf | 16 ,4 | 15,8 | 35,3 | 32,2 |
| R Öndunarfæralyf | 764 ,2 | 620,7 | 1.385,2 | 1.161,9 |
| S Augn- og eyrnalyf | 154 ,9 | 120,5 | 313,7 | 254,9 |
| V Ýmis lyf | 99 ,2 | 92,8 | 141,1 | 133,3 |
| Samtals | 10.171,1 | 8.431,2 | 16.850,9 | 14.449,1 |
| Lækkun | 1.739,9 | 2.401,8 |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.