Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 598. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 882  —  598. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um boð til heyrnarlausra og heyrnarskertra um viðvarandi hættuástand.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



    Hafa stjórnvöld skipulagt hvernig koma skuli boðum til heyrnarlausra og heyrnarskertra þegar hættuástand skapast og er viðvarandi, til að mynda með því að senda út SMS-skilaboð?