Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 610. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1285  —  610. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2006.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar frá utanríkisráðuneyti, Jón B. Jónasson frá sjávarútvegsráðuneyti, Friðrik J. Arngrímsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Teit Gylfason frá Sambandi íslenskra fiskframleiðenda, Helga Laxdal frá Vélstjórafélagi Íslands og Arthur Bogason frá Landssambandi smábátaeigenda.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2006 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 16. janúar sl.
    Í samningnum er, líkt og í samningi sömu aðila á síðasta ári, kveðið á um að færeyskum skipum sé heimilt á loðnuvertíðinni 2006/2007 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda. Kveðið er á um gagnkvæmar heimildir skipa hvors aðila til kolmunnaveiða innan lögsögu hins á árinu 2006 og að íslenskum skipum verði heimilt að veiða allt að 1.300 lestir af makríl og 2.000 lestir af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2006 auk ákvæðis um gagnkvæma heimild til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu hvors aðila. Sem fyrr er í samningnum kveðið á um gagnkvæma heimild skipa hvors aðila til veiða á norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2006. Samningurinn kveður því á um allar veiðar á uppsjávarfiski í lögsögu hvors aðila fyrir komandi veiðitímabil. Loks er rétt að geta þess að sjávarútvegsráðherra er falið að taka til athugunar og ákvörðunar fyrir 20. júní 2006 hvort takmörkunum á vinnslu á loðnu um borð í færeyskum skipun og löndun hennar verði aflétt.
    Loks getur nefndin þess að veiðiheimildir á grundvelli samnings landanna frá 1976 um botnfiskveiðar verða óbreyttar á milli ára eða 5.600 lestir af botnfiski.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 3. maí 2006.



Halldór Blöndal,


form., frsm.


Össur Skarphéðinsson.


Magnús Stefánsson.



Drífa Hjartardóttir.


Bjarni Benediktsson.


Steingrímur J. Sigfússon.



Jónína Bjartmarz.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.