132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1473 — 596. mál.
Frumvarp til laga
um varnir gegn fisksjúkdómum.
(Eftir 2. umr., 3. júní.)
I. KAFLI
Markmið, gildissvið,
skilgreiningar og stjórnsýsla.
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Gildissvið.
3. gr.
Skilgreiningar.
1. Alifiskur: Fiskur sem alinn er eða látinn ganga sjálfala í tjörnum eða ílátum.
2. Eldisdýr: Lifandi fiskur, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, óháð þroskastigi, að meðtöldum dýrum sem lifa upprunalega villt en eru ætluð fyrir eldisstöð.
3. Fiskeldi: Geymsla, gæsla og fóðrun vatnafiska og annarra vatnadýra, klak- og seiðaeldi, hvort sem er í söltu eða ósöltu vatni.
4. Fiskeldisstöð: Staður þar sem vatn, sjór, land eða mannvirki er nýtt í þágu fiskeldis.
5. Fiskrækt: Hvers konar aðgerðir sem ætla má að skapi eða auki fisk í veiðivatni.
6. Fiskstofn: Hópur fiska sömu tegundar sem hrygnir á tilteknum stað og tíma, en gerir það ekki í neinum mæli með öðrum hópum á öðrum stað eða tíma.
7. Fiskur: Fiskur í merkingu laga þessara tekur til allra tegunda lagardýra sem lifa í vatni og sjó, hvort sem er við náttúrulegar aðstæður eða í eldi.
8. Geldstofn: Vatnafiskur sem ekki framleiðir frjóar kynfrumur.
9. Göngusilungur: Silungur er gengur úr sjó í ósalt vatn, svo sem sjóbirtingur (urriði) og sjóreyður (bleikja).
10. Hafbeit: Slepping gönguseiða til sjógöngu og föngun þeirra sem fullvaxta fiska á sleppistað þegar þeir ganga úr sjó í ferskvatn, annaðhvort til slátrunar eða flutnings í annað veiðivatn til endurveiða.
11. Lagardýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa og geta afkvæmi í sjó eða fersku vatni.
12. Laxastofn: Hópur laxa sem hrygnir á tilteknum stað og tíma, en gerir það ekki í neinum mæli með öðrum hópum á öðrum stað eða tíma.
13. Sjávarfiskur: Fiskur sem lifir allan sinn lífsferil í sjó.
14. Sjór: Salt vatn utan árósa.
15. Straumvatn: Ósalt vatn, á eða ósasvæði sem í er greinilegur straumur, þá er enginn vöxtur er í, og um stórstraumsfjöru.
16. Stöðuvatn: Ósalt vatn sem eigi er í greinilegur straumur annar en sá sem stafar af sjávarföllum, vindi eða aðrennsli í leysingum.
17. Vatn: Ósalt vatn með föstu legi eða farvegi, straumvatn eða stöðuvatn.
18. Vatnadýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa að hluta eða allan sinn lífsferil í fersku vatni.
19. Vatnafiskur: Lax (Salmo salar), silungur (urriði (Salmo trutta), bleikja (Salvelinus alpinus) og regnbogasilungur (Oncorhynchus mykiss)), áll (Anguilla anguilla) eða annar vatnafiskur ef ræktaður verður.
20. Vatnasilungur: Silungur sem elur allan aldur sinn í ósöltu vatni, svo sem vatnaurriði, vatnableikja (reyður), lækjasilungur og murta.
21. Veiðivatn: Á eða stöðuvatn sem veiði er í eða mætti í vera ef fiskur væri ræktaður þar.
22. Villtur fiskstofn: Fiskstofn þar sem meiri hluti fisks er klakinn í náttúrulegu umhverfi, elst þar upp og er kominn undan villtum foreldrum.
4. gr.
Stjórnsýsla.
Landbúnaðarstofnun til ráðgjafar við framkvæmd laganna er fisksjúkdómanefnd. Landbúnaðarráðherra skipar fimm manna fisksjúkdómanefnd: einn samkvæmt tilnefningu Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, einn samkvæmt tilnefningu Hafrannsóknastofnunarinnar, einn samkvæmt tilnefningu Veiðimálastofnunar, einn samkvæmt tilnefningu Fiskistofu og yfirdýralækni, sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Landbúnaðarstofnun skal hafa forgöngu um að stundaðar séu fisksjúkdómarannsóknir og gera tillögur til ráðherra um aðferðir til varnar gegn útbreiðslu fisksjúkdóma, sem getur um í lögum þessum, og annað er að fisksjúkdómum lýtur.
II. KAFLI
Um innflutning á lifandi fiski og hrognum.
5. gr.
Innflutningur lifandi ferskvatnsfiska.
6. gr.
Um innflutning skrautfiska.
7. gr.
Tímabundin viðkoma vegna flutnings á fiski.
8. gr.
Sótthreinsun veiðitækja og veiðibúnaðar.
9. gr.
Innflutningur á dauðum fiski.
III. KAFLI
Ýmis ákvæði.
10. gr.
Viðbrögð vegna sjúkdóma og sníkjudýra í veiðivatni eða fiskeldisstöð.
11. gr.
Setning reglugerða.
Í reglugerð skal mælt fyrir um skilyrði innflutnings lifandi fisks, hrogna og svilja þar sem m.a. skal kveðið á um að fyrir hendi sé heilbrigðisvottorð og að fisksjúkdómanefnd mæli ekki gegn slíkum innflutningi. Þá skal nánar mælt fyrir um sótthreinsun hrogna, íláta og umbúða innfluttra fiska, sem og meðferð þeirra að öðru leyti. Enn fremur skal í reglugerð mælt fyrir um framkvæmd sótthreinsunar veiðibúnaðar. Jafnframt skal kveðið á um nánari skilyrði sem Landbúnaðarstofnun getur sett fyrir innflutningi á dauðum fiski.
Í reglugerð skal einnig mælt fyrir um heilbrigðiseftirlit í eldisstöðvum, um töku sýnishorna, um sóttvarnaraðgerðir og um kostnað af nauðsynlegum ráðstöfunum og annað það sem nauðsynlegt kann að teljast til þess að ná þeim markmiðum laga þessara að tryggja heilbrigði í vatnafiski.
IV. KAFLI
Refsi- og gildistökuákvæði.
12. gr.
Um refsingar.
13. gr.
Gildistaka o.fl.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
1. Lög um Landbúnaðarstofnun, nr. 80/2005: Í stað orðanna „lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði“ í a-lið 2. gr. kemur: lögum um varnir gegn fisksjúkdómum.
2. Lög um Rannsóknadeild fisksjúkdóma, nr. 50/1986:
a. Í stað „nr. 76/1970“ í 2. mgr. 2. gr. kemur: um varnir gegn fisksjúkdómum.
b. Í stað orðsins „fisksjúkdómanefndar“ í 5. tölul. 5. gr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Landbúnaðarstofnun.
Ákvæði til bráðabirgða.