Vatnsréttindi vegna Búrfellsvirkjunar

Mánudaginn 29. janúar 2007, kl. 17:02:47 (3924)


133. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2007.

vatnsréttindi vegna Búrfellsvirkjunar.

415. mál
[17:02]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um heimild til að afsala til Landsvirkjunar vatnsréttindum og landi vegna Búrfellsvirkjunar.

Frumvarp þetta var einnig flutt á 132. löggjafarþingi en varð ekki útrætt.

Fyrirtækið Landsvirkjun var stofnað með lögum nr. 59/1965. Stofnendur fyrirtækisins voru íslenska ríkið og Reykjavíkurborg og skyldi hvor aðili um sig eiga helmingshlut. Meðal þess sem ríkið lagði til sem stofnframlag samkvæmt sameignarsamningi voru vatnsréttindi vegna 210 MW virkjunar í Þjórsá við Búrfell ásamt landi sem til þurfti vegna virkjunarinnar.

Forsvarsmenn ríkisins voru í góðri trú um að það væri eigandi þeirra réttinda sem lögð voru fram af þess hálfu til sameignarfélagsins enda byggðust þau á afsali frá fyrirtækinu Titan h/f frá árinu 1952. Nýlegir úrskurðir óbyggðanefndar um Gnúpverjaafrétt 21. mars 2002 og Landmannaafrétt 10. desember 2004 setja strik í þennan reikning. Samkvæmt þeim hafði Titan h/f og þeir aðilar sem félagið leiddi rétt sinn frá hvorki beinan eignarrétt yfir landinu sem Búrfellsvirkjun var reist á né þau vatnsréttindi sem talið var. Eignartilkalli Landsvirkjunar í þessum málum var þannig hafnað í þessum úrskurðum og telst umrætt svæði þjóðlenda í skilningi laga og fer ríkið þar með eignarrétt.

Í athugasemdum með frumvarpi því sem ég nú mæli fyrir er ítarlega rakið hverjar voru forsendur óbyggðanefndar fyrir þessari niðurstöðu og sömuleiðis annar aðdragandi þessa máls og málsskjöl sem það varða frá fyrri tíð.

Þar sem eignarhlutur ríkisins í Landsvirkjun hefur ásamt öðru miðast við framsal vatnsréttinda og lands á þessu svæði til fyrirtækisins var það niðurstaða eigenda fyrirtækisins þegar árið 2002 er fyrri úrskurður óbyggðanefndar féll að nauðsyn bæri til að flytja frumvarp þetta og leita með því eftir heimild Alþingis til að afsala til Landsvirkjunar beinum eignarrétti að þessum réttindum hvað varðar Búrfellsvirkjun. Með því móti væri tryggt að fyrirtækið yrði að gengnum úrskurðum óbyggðanefndar eins sett og til var stofnað með nefndum sameignarsamningi að því marki sem hann náði til ráðstöfunar þess lands og vatnsréttinda á nefndu svæði, sem ríkið taldi sig eiganda að við gerð sameignarsamningsins frá 1965. Má geta þess að bókfærð verðmæti réttinda þeirra sem hér um ræðir eru talin vera nú um hálfur milljarður kr.

Í umræðum um frumvarpið síðastliðið vor var vakin athygli á því að ríkislögmaður hefði í áliti á sínum tíma talið að lagasetning væri ekki endilega nauðsynleg. Þess ber að geta að það álit var sett fram áður en viðræður sameigenda voru til lykta leiddar. Þeim lauk eins og kunnugt er með því að ríkið gaf bæði Landsvirkjun og sameigendum fyrirheit um að þetta frumvarp skyldi flutt. Telur ríkisstjórnin sig bundna af því jafnvel þótt síðar hafi mál æxlast svo að ríkið keypti hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrar.

Svæðið sem hér um ræðir er um 25 ferkílómetra skiki beggja vegna Þjórsár þar sem eru mannvirki og athafnasvæði Landsvirkjunar vegna Búrfellsvirkjunar. Einnig gerir frumvarpið ráð fyrir að landinu fylgi vatnsréttindi í Þjórsá að því marki sem þarf til að virkja allt að 210 megavatta afl. Þess ber að geta að málshöfðunarfrestur vegna úrskurðar óbyggðanefndar um Landmannaafrétt rann út í september 2005 án þess að mál væri höfðað fyrir dómstólum. Mál til ógildingar á úrskurði óbyggðanefndar um Gnúpverjahrepp var þingfest 20. nóvember 2002 en hefur legið í láginni síðan. Ef frumvarpið verður að lögum verður eftir atvikum gerður fyrirvari í afsali til Landsvirkjunar um niðurstöðu þess dómsmáls.

Hæstv. forseti. Ég tel ekki ástæðu til að reifa þetta frumvarp frekar en legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allsherjarnefndar.