133. löggjafarþing — 86. fundur, 12. mars 2007.
áhrif hvalveiða á ímynd Íslands.
Hæstv. forseti. Eins og þingheimi er kunnugt er ekki langt í næstu kosningar og ég tel að í rauninni verði það verkefni nýrrar ríkisstjórnar að velta þessum hlutum fyrir sér. Ég reikna að sjálfsögðu með að sitja í henni. (Gripið fram í.) Ég tel ekki að þessi vinna hefjist fyrir kosningar.