Fundarbjalla Alþingis

Mánudaginn 02. október 2006, kl. 16:03:33 (8)

133. löggjafarþing — 1. fundur,  2. okt. 2006.

fundarbjalla Alþingis.

[16:03]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Um leið og ég set þingfund með því að slá í þingbjölluna, þennan gamalkunna grip með sinn þekkta hljóm, þá vil ég vekja athygli hv. alþingismanna á því að settur hefur verið nýr fótur undir bjölluna. Hann er smíðaður úr hegg héðan úr Alþingisgarðinum og smiðurinn er einn af starfsmönnum þingsins og við þökkum honum verk hans.