Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu

Mánudaginn 09. október 2006, kl. 15:29:48 (226)


133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu.

[15:29]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Hvílíkt bull og hvílík vitleysa. Hér verða þingmenn vitni að því þegar hv. þingmaður reynir að snúa út úr með gamalkunnri aðferð sem heitir „Let them deny it“, látum þau neita. Hann reynir að bera hér upp á Framsóknarflokkinn að við viljum einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Hvílík þvæla. Ég var einmitt að reyna að útskýra hér rétt áðan að við viljum ekki einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Við viljum ekki einkagreiðslur þar sem fólkið á að borga reikninginn allan sjálft. Við viljum það ekki.

Það stefnir í ójöfnuð ef við förum þá leið. Sú leið er farin í Bandaríkjunum og víðar. Það viljum við ekki. Hins vegar höfum við kosið að nýta okkur kosti einkarekstrar þar sem það á við. Það er allt annað. Þá eru gerðir þjónustusamningar við aðila og ríkið greiðir að mestu leyti fyrir þjónustuna.

Hér er þingmaðurinn að reyna að bera einhverjar sakir upp á okkur sem við viljum ekki sitja undir. Ég frábið mér þennan málflutning ef (Forseti hringir.) hér á að halda áfram á sömu braut.