Stækkun friðlandsins í Þjórsárverum

Mánudaginn 09. október 2006, kl. 18:15:40 (275)


133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

stækkun friðlandsins í Þjórsárverum.

4. mál
[18:15]
Hlusta

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég er ánægður með að hér skuli hafa verið um misskilning að ræða. Ég er að vísu óvanur því að menn taki ekki eftir því hvað ég meina hér í ræðustólnum en það kann að koma fyrir hina bestu menn að lenda í slíku.

Ég er líka þokkalega ánægður með svarið sem hæstv. umhverfisráðherra gaf. Þó að hún efist um að hún þurfi að greiða atkvæði um það frumvarp til laga sem fram er komið og við ræddum um, þá styður hún meginhugmyndir þess. Það var það svar sem ég bað um að fá og það er svar sem ég er ánægður með.