Breyting á lögum á orkusviði

Mánudaginn 20. nóvember 2006, kl. 21:45:43 (1887)


133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

breyting á lögum á orkusviði.

365. mál
[21:45]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hélt að löngu væri komið fram að við erum að tala um afmarkað skilgreint skref, afmarkaðan skilgreindan áfanga í lengri þróun. Ef hér eru einhverjar bilaðar plötur þá eru þær margar.