2. FUNDUR
þriðjudaginn 3. okt.,
kl. 7.50 síðdegis.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað þriðjudaginn 3. október 2006, kl. 19.50.
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Arnbjörg Sveinsdóttir, 6. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri umferð og Halldór Blöndal, 2. þm. Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, Rannveig Guðmundsdóttir, 2. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og Kristján L. Möller, 3. þm. Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og í þriðju umferð Sæunn Stefánsdóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Þuríður Backman, 10. þm. Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.
Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð en í þriðju umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis.
[21:59]
Fundi slitið kl. 22:00.
---------------