Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 181. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 182  —  181. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um störf hjá Ratsjárstofnun.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að hætt verði við að flytja störf á vegum Ratsjárstofnunar frá landsbyggðinni, svo sem frá Bolungarvík, Langanesbyggð og Höfn?
     2.      Telur ráðherra að öryggi ratsjárstöðva skerðist við að enginn tæknimaður verður starfandi þar?