Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 328. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 351  —  328. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um styrki til íþróttaiðkunar og heilsuræktar.

Frá Birni Inga Hrafnssyni.



     1.      Telur ráðherra koma til greina að styrkir starfsmanna fyrirtækja og stofnana til íþróttaiðkunar og heilsu- og líkamsræktar verði ekki skilgreindir sem hlunnindi og því ekki skattskyldir?
     2.      Telur ráðherra koma til greina að slíkir heilsuræktarstyrkir af hálfu fyrirtækja og stofnana verði að fullu frádráttarbærir frá skatti?
     3.      Eru niðurgreiðslur sveitarfélaga til íþróttaiðkunar barna og unglinga skattskyldar, að mati fjármálaráðuneytisins?


Skriflegt svar óskast.