Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 345. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 374  —  345. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um raforkukaupendur.

Frá Álfheiði Ingadóttur.



    Hversu margir raforkukaupendur, fyrirtæki og einstaklingar, hafa skipt um raforkusala síðan raforkusala til fyrirtækja var gefin frjáls 1. janúar 2005 og til einstaklinga 1. janúar 2006, og hversu stór hundraðshluti er það af raforkukaupendum í heild?


Skriflegt svar óskast.