Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 213. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 413 — 213. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Gunnars Örlygssonar um foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hefur ráðherra í hyggju að beita sér fyrir lagasetningu sem tryggir öllum foreldrum langveikra eða alvarlega fatlaðra barna sömu réttindi og felast í lögum nr. 22 12. apríl 2006?
2. Hvenær má búast við aðgerðum af hálfu ráðherra í þessu máli?
Með setningu laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, var stigið mikilvægt framfararskref til að koma til móts við aðstæður foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Þannig er foreldrum sem eru þátttakendur á innlendum vinnumarkaði veittur réttur til tímabundinna greiðslna þegar þeir þurfa að leggja niður störf að fullu eða að hluta þegar börn þeirra greinast með alvarlega og langvinna sjúkdóma eða alvarlega fötlun. Með lögunum er verið að bregðast við aðstæðum foreldra sem ekki geta stundað vinnu vegna þeirra bráðaaðstæðna sem upp koma þegar barn greinist með alvarlegan og langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun. Hér er ekki átt við þau tilvik er foreldrar taka sér leyfi frá störfum vegna tilfallandi veikinda barna sinna, svo sem vegna hlaupabólu, eyrnabólgu eða annarra álíka sjúkdóma, þótt veikindin geti verið þrálát. Átt er við foreldra sem eru launamenn og sjálfstætt starfandi einstaklingar og enn fremur eru foreldrum í námi veitt sambærileg réttindi til greiðslna við sömu aðstæður.
Markmið laganna er að tryggja foreldrum félagslega aðstoð í formi tímabundinnar fjárhagsaðstoðar þurfi þeir að leggja niður störf eða gera hlé á námi þegar börn þeirra þarfnast sérstakrar umönnunar er þau greinast með alvarlega og langvinna sjúkdóma eða alvarlega fötlun. Með mikilli atvinnuþátttöku bæði karla og kvenna á íslenskum vinnumarkaði þykir eðlilegt að stjórnvöld komi til móts við foreldra langveikra barna og alvarlega fatlaðra barna með þessum hætti enda algengt að báðir foreldrar vinni utan heimilis. Þegar barn greinist með alvarlegan og langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun þarf oft að minnsta kosti annað foreldranna að hverfa tímabundið af vinnumarkaði í því skyni að veita barninu sérstaka umönnun.
Eitt erfiðasta verkefnið við smíði frumvarps til þessara laga var spurningin um við hvaða tímamark skyldi miða fyrstu greiðslur. Þar var meðal annars litið til þess meginmarkmiðs laganna að koma til móts við sannanlegt tekjutap foreldra geti þeir ekki stundað vinnu sína vegna þeirra bráðaaðstæðna sem upp kunna að koma þegar börn þeirra greinast með alvarlega og langvinna sjúkdóma eða alvarlega fötlun. Lögunum er því eingöngu ætlað að mæta þeim tilvikum þegar foreldrar eru virkir á vinnumarkaði eða í námi þegar veikindi eða fötlun barns kemur upp þannig að tiltölulega skammur tími líði frá því að foreldrar lögðu niður störf þar til greiðslur hefjist. Ástæða þessa er einkum sú að þá má gera ráð fyrir að foreldrar þurfi ákveðið ráðrúm til að laga fjárútgjöld fjölskyldunnar að breyttum aðstæðum. Eftir mikla yfirlegu þótti því eðlilegt að miða við það tímamark að lögin skyldu eiga við um aðstæður foreldra barna sem greinast með alvarlega og langvinna sjúkdóma eða alvarlega fötlun 1. janúar 2006 eða síðar enda höfðu þeir foreldrar þá nýlega lagt niður störf við slíkar bráðaaðstæður þegar lögin komu formlega til framkvæmda. Frumvarpið hlaut mikla og vandaða umfjöllun í félagsmálanefnd Alþingis og varð niðurstaða Alþingis sú að samþykkja þetta tímamark.
Á þessari stundu hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort lagt verði fram frumvarp til breytinga á lögunum sem breyti réttindum foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. Fylgst er þó vel með umræðu um málið enda full ástæða til þess þegar um svo nýja löggjöf er að ræða. Ráðherra og ráðuneytið eru vakandi gagnvart framkvæmd laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna og hugsanlegum göllum sem kunna að finnast á lögunum.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 413 — 213. mál.
Svar