Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 467. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 688  —  467. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um tóbaksvarnir.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hver var fjárhæð sérstaks tóbaksgjalds skv. 9. gr. laga nr. 18/2003, sem Lýðheilsustöð fékk frá stofnun hennar árið 2003 til ársins 2006, skipt eftir árum?
     2.      Hvernig var því fé varið, sundurliðað eftir framlögum á hvern lið í
       a.      verkefni í tóbaksvörnum og
       b.      rekstur Lýðheilsustöðvar?


Skriflegt svar óskast.