133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 696 — 435. mál.
Frumvarp til laga
um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
(Eftir 2. umr., 9. des.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Skilgreiningar.
1. Stjórnmálasamtök: Flokkar eða samtök sem bjóða fram í kosningum til Alþingis eða sveitarstjórna.
2. Prófkjör: Kosningar sem stjórnmálasamtök halda til að velja fulltrúa á framboðslista við kosningar til Alþingis eða sveitarstjórna.
3. Frambjóðendur: Þátttakendur í persónukjöri til sveitarstjórna og þátttakendur í prófkjörum stjórnmálasamtaka.
4. Framlög: Framlög til starfsemi stjórnmálasamtaka eða frambjóðenda eða kosningabaráttu, hvort heldur eru bein fjárframlög eða önnur gæði sem metin verða til fjár, án tillits til þess hvaðan þau koma eða hvers eðlis þau eru. Til framlaga í þessum skilningi teljast allir afslættir af markaðsverði, ívilnanir og eftirgjöf, þar með taldir afslættir af markaðsverði auglýsinga, eftirgjöf eftirstöðva skulda, óvenjuleg lánakjör o.s.frv. Ef afsláttur hefur verið veittur af markaðsverði skal mismunur markaðsverðs og raunverðs tilgreindur sem framlag í reikningum. Önnur framlög, svo sem endurgjaldslaust lán vinnuafls, aðstöðu eða búnaðar, skulu metin til peningaverðs á gangverði eða markaðsverði á hverjum tíma og tilgreind í reikningum á því verði.
5. Tengdir aðilar: Lögaðilar þar sem svo háttar til að sami aðili eða sömu aðilar eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í báðum eða öllum lögaðilunum, enda nemi eignarhlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofnfé eða atkvæðafjölda í viðkomandi lögaðilum. Sama á við ef einstaklingar eða lögaðilar, sem eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í lögaðila og hver um sig á a.m.k. 10% hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í lögaðilanum, eiga ásamt viðkomandi lögaðila meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í öðrum lögaðila. Til eignarhluta og atkvæðisréttar einstaklinga í lögaðilum samkvæmt þessum tölulið telst jafnframt eignarhlutur og atkvæðisréttur maka og skyldmenna í beinan legg.
6. Endurskoðendur: Löggildir endurskoðendur samkvæmt ákvæðum laga um endurskoðendur.
7. Þingflokkar: Samtök þingmanna sem uppfylla skilyrði þingskapa til að teljast þingflokkur.
II. KAFLI
Framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi.
3. gr.
Framlög til stjórnmálasamtaka úr ríkissjóði.
4. gr.
Framlög til þingflokka úr ríkissjóði.
5. gr.
Framlög til stjórnmálasamtaka frá sveitarfélögum.
III. KAFLI
Almenn framlög til stjórnmálastarfsemi.
6. gr.
Móttaka framlaga.
Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá óþekktum gefendum.
Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá fyrirtækjum að meiri hluta í eigu, eða undir stjórn, ríkis eða sveitarfélaga.
Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá opinberum aðilum sem ekki rúmast innan ákvæða II. kafla.
Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá erlendum ríkisborgurum, fyrirtækjum eða öðrum aðilum sem skráðir eru í öðrum löndum. Bann þetta tekur þó ekki til framlaga frá erlendum ríkisborgurum sem njóta kosningaréttar hér á landi skv. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 5/1998, um kosningar til sveitarstjórna.
7. gr.
Hámarksframlög, leiðbeiningarreglur og prófkjör.
Stjórnmálasamtökum og frambjóðendum er heimilt að taka á móti framlögum frá lögráða einstaklingum sem nemur allt að 300.000 kr. á ári. Til framlaga í þessum skilningi teljast ekki almenn félagsgjöld stjórnmálasamtaka sem innheimt eru með reglubundnum hætti og eru ekki umfram 100.000 kr. á ári.
Ríkisendurskoðun skal setja leiðbeiningarreglur um fyrirkomulag sölu þjónustu á vegum stjórnmálasamtaka til að tryggja samræmi við ákvæði 1. og 2. mgr.
Heildarkostnaður frambjóðenda í prófkjörum af kosningabaráttu má ekki vera hærri en sem nemur 1 millj. kr., að viðbættu álagi sem hér segir:
Á kjörsvæði með fleiri en 50.000 íbúa, 18 ára og eldri, 75 kr. fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 40.000–49.999 íbúa, 18 ára og eldri, 100 kr. fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 20.000–39.999 íbúa, 18 ára og eldri, 125 kr. fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 10.000–19.999 íbúa, 18 ára og eldri, 150 kr. fyrir hvern.
Á kjörsvæði með færri en 10.000 íbúa, 18 ára og eldri, 175 kr. fyrir hvern.
IV. KAFLI
Reikningsskil og upplýsingaskylda stjórnmálasamtaka.
8. gr.
Reikningsskil stjórnmálasamtaka.
Stjórnmálasamtök skulu fela endurskoðendum að endurskoða reikninga sína. Endurskoðendur skulu starfa eftir leiðbeiningum Ríkisendurskoðunar og sannreyna að samstæðureikningurinn sé saminn í samræmi við ákvæði laga þessara og almennar reikningsskilareglur og staðfesta það álit með áritun á reikninginn. Ríkisendurskoðun getur hvenær sem er kallað eftir öllum gögnum til að staðreyna að framlög einstaklinga og lögaðila séu innan þeirra marka sem greinir í III. kafla.
9. gr.
Upplýsingaskylda um reikninga stjórnmálasamtaka.
V. KAFLI
Reikningsskil og upplýsingaskylda í persónukjöri.
10. gr.
Reikningsskil frambjóðenda í persónukjöri.
Frambjóðendur í persónukjöri eru undanþegnir uppgjörsskyldu ef kostnaður við kosningabaráttu er ekki umfram 300.000 kr.
11. gr.
Upplýsingaskylda um reikninga yfir kosningabaráttu.
VI. KAFLI
Viðurlög, gildistaka og brottfall lagaákvæða.
12. gr.
Viðurlög.
13. gr.
Gildistaka og brottfall lagaákvæða.
Jafnframt fellur úr gildi l. málsl. 1. gr. laga nr. 62/1978, um bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við íslenska stjórnmálaflokka og blaðaútgáfu erlendra sendiráða á Íslandi, og lög nr. 56/1971, um sérfræðilega aðstoð fyrir þingflokka.
VII. KAFLI
Breyting á lögum nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis.
14. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Forsætisráðherra skal eigi síðar en 30. júní 2010 skipa nefnd fulltrúa allra stjórnmálaflokka á Alþingi til að endurskoða lög þessi og framkvæmd þeirra.