Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 488. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 740  —  488. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um afnot af Ráðherrabústaðnum.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvaða ráðherra voru heimiluð afnot af Ráðherrabústaðnum að kvöldi föstudagsins 29. september 2006?
     2.      Telur forsætisráðherra eðlilegt að ráðherra útvegi Ráðherrabústaðinn til boðs á vegum aðila utan Stjórnarráðsins, t.d. þingflokks?