Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 536. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 805  —  536. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hve margir hafa óskað eftir réttaraðstoð samkvæmt lögum um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga, nr. 65/1996, frá því að lögin voru sett, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu oft hefur slík réttaraðstoð verið veitt á framangreindu tímabili, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.