Fylgiskjal.
frá 3. júní 2003
um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri
EVRÓPUÞINGIÐ OG RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HAFA,
með hliðsjón af stofnsáttmála Evrópubandalagsins,
einkum 47. gr. (2. mgr.), 55. gr. og 95. gr. (1. mgr.),
með hliðsjón af tillögu framkvæmdastjórnarinnar (1),
með hliðsjón af áliti efnahags- og félagsmálanefndar
Evrópubandalaganna (2),
í samræmi við málsmeðferðina sem mælt er fyrir um
í 251. gr. sáttmálans (3),
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Einn heill og óskiptur markaður fyrir fjármálaþjónustu hefur mikla þýðingu fyrir hagvöxt og
atvinnusköpun í Bandalaginu.
2) Gríðarlegur árangur hefur þegar náðst í að
stofna innri markaðinn sem gerir fjármálastofnunum kleift að starfa í öðrum aðildarríkjum og
tryggir víðtæka vernd fyrir neytendur fjármálaþjónustu.
3) Í orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar „Að
setja ramma um starfsemi fjármálamarkaða:
aðgerðaáætlun“ er gerð grein fyrir röð aðgerða
sem nauðsynlegar eru til að gera innri markað
fyrir fjármálaþjónustu að veruleika og á fundi
leiðtogaráðsins í Lissabon 23. og 24. mars
2000 var kallað eftir framkvæmd þeirrar aðgerðaáætlunar eigi síðar en 2005.
4) Í aðgerðaáætluninni fyrir fjármálaþjónustu er
lögð rík áhersla á brýna nauðsyn þess forgangsverkefnis að semja drög að tilskipun um
varfærniseftirlit með stofnunum um starfstengdan lífeyri í ljósi þess að þessar stofnanir
eru mikilvægar fjármálastofnanir og gegna
lykilhlutverki í því að tryggja samþættingu,
skilvirkni og lausafjárstöðu fjármálamarkaða,
en falla ekki undir samfelldan lagaramma
Bandalagsins en það gerir þeim kleift að nýta
sér til fulls gagnlega kosti innri markaðarins.
5) Almannatryggingakerfi verða fyrir sífellt meiri
þrýstingi og þess vegna verður í framtíðinni
enn frekar treyst á starfstengdar lífeyrisgreiðslur sem viðbótartryggingavernd. Af þeim sökum skal þróa starfstengdar lífeyrisgreiðslur, án
þess þó að dregið sé í efa mikilvægi lífeyristryggingar almannatryggingakerfa sem veita
örugga, varanlega og árangursríka, félagslega
vernd, sem skulu tryggja sanngjörn lífskjör á
efri árum og skulu því vera kjarninn í því að
stuðla að styrkari félagsgerð Evrópu.
6) Með þessari tilskipun er þannig tekið fyrsta
skrefið í átt að innri markaði fyrir starfstengdan
lífeyri sem er skipulagður um alla Evrópu. Með
því að beita varfærnisreglunni (prudent person
rule) sem meginreglunni að baki fjárfestingum
og með því að stofnunum er gert kleift að
stunda rekstur yfir landamæri er hvatt til þess
að sparifé sé aftur beint í geirann fyrir starfstengdan lífeyri og þannig stuðlað að efnahagslegum og félagslegum framförum.
7) Varfærnisreglunum, sem mælt er fyrir um þessari tilskipun, er ætlað hvort tveggja, að tryggja
víðtækt öryggi lífeyrisþega í framtíðinni með
setningu strangra eftirlitsstaðla og að auðvelda
skilvirka stjórnun starfstengdra lífeyriskerfa.
8) Stofnanir, sem eru algjörlega aðskildar frá aðildarfyrirtækjum og eru reknar á grundvelli
fjármögnunar með það eitt að markmiði að
annast eftirlaunagreiðslur, skal veitt frelsi til að
veita þjónustu og frelsi til fjárfestinga, þó með
fyrirvara um samræmdar varfærniskröfur, óháð
því hvort litið er á þessar stofnanir sem lögaðila.
9) Aðildarríkin skulu, í samræmi við dreifræðisregluna, bera áfram fulla ábyrgð á uppbyggingu lífeyriskerfa sinna og á því hvernig þau
ákveða hvaða hlutverki hver og ein stoðanna þriggja í lífeyriskerfum einstakra aðildarríkja
gegnir. Innan ramma annarrar stoðarinnar
skulu þau einnig bera fulla ábyrgð á hlutverki
og starfsemi hinna ýmsu stofnana sem greiða út
starfstengd lífeyrisréttindi, s.s. lífeyrissjóða atvinnugreina, lífeyrissjóða félaga og líftryggingafélaga. Tilskipuninni er ekki ætlað að
draga þetta fyrirkomulag í efa.
10) Innlendar reglur um þátttöku sjálfstætt starfandi einstaklinga í stofnunum um starfstengdan
lífeyri eru mismunandi. Í sumum aðildarríkjum
geta stofnanir um starfstengdan lífeyri ýmist
starfað á grundvelli samninga við atvinnugrein
eða atvinnugreinasamtök þar sem sjóðfélagarnir koma fram sem sjálfstætt starfandi eða með
beinum samningum við sjálfstætt starfandi og
launaða einstaklinga. Í sumum aðildarríkjum
getur sjálfstætt starfandi einstaklingur einnig
orðið aðili að stofnun ef sjálfstætt starfandi einstaklingurinn starfar sem vinnuveitandi eða
veitir fyrirtæki faglega þjónustu sína. Í sumum
aðildarríkjum geta sjálfstætt starfandi einstaklingar ekki orðið aðilar að stofnun um starfstengdan lífeyri nema að uppfylltum tilteknum
skilyrðum, þ.m.t. eru skilyrði sem eru lögbundin með félagsmála- og vinnulöggjöf.
11) Stofnanir, sem hafa umsjón með almannatryggingakerfum sem hafa þegar verið samræmd á
vettvangi Bandalagsins, skulu undanskildar
gildissviði þessarar tilskipunar. Þó skal taka tillit til sérstöðu stofnana sem bæði stýra almannatryggingakerfum og starfstengdum lífeyriskerfum í einu og sama aðildarríkinu.
12) Fjármálastofnanir, sem nýta sér nú þegar lagaramma Bandalagsins, skulu að öllu jöfnu falla
utan gildissviðs þessarar tilskipunar. Þó er
mikilvægt að tryggja að þessi tilskipun leiði
ekki til röskunar á samkeppni vegna þess að í
sumum tilvikum bjóða þessar stofnanir einnig
þjónustu innan starfstengdra lífeyriskerfa.
Komast má hjá slíkri röskun með því að beita
varfærniskröfum þessarar tilskipunar gagnvart
rekstri starfstengds lífeyris hjá líftryggingafélögum. Framkvæmdastjórnin skal einnig hafa
vökult eftirlit með aðstæðum á markaðinum
fyrir starfstengdan lífeyri og meta hvort unnt sé
að rýmka valfrjálsa beitingu þessarar tilskipunar þannig að hún nái einnig til annarra fjármálastofnana sem starfa samkvæmt lögum.
13) Þegar stefnt er að því að tryggja fjárhagslegt
öryggi á eftirlaunaárum skulu réttindagreiðslur
frá stofnunum um starfstengdan lífeyri að öllu
jöfnu vera lífeyrir til æviloka. Einnig skal vera
möguleiki á tímabundnum greiðslum eða eingreiðslu.
14) Mikilvægt er að tryggja að eldra fólk og fatlaðir lendi ekki í þeim aðstæðum að þurfa að búa
við fátækt og að það geti notið mannsæmandi
lífskjara. Viðeigandi trygging fyrir áhættu er
tengist ævilíkum manna í starfstengdum lífeyriskerfum er mikilvægur þáttur í baráttunni
gegn fátækt og óöryggi meðal aldraðra. Þegar
lífeyriskerfi er komið á skulu vinnuveitendur
og launamenn, eða fulltrúar þessara tveggja
hópa, skoða þann möguleika að í lífeyriskerfinu felist einnig trygging sem nær yfir áhættu
vegna langlífis og skertrar starfsgetu auk lífeyris til eftirlifenda sem voru á framfæri hins
látna.
15) Það getur auðveldað eftirlit í sumum aðildarríkjum ef þeim er gefinn sá kostur að undanskilja stofnanir, sem sjá um kerfi þar sem sjóðfélagar eru samtals innan við 100, frá gildissviði innlendra framkvæmdarlöggjafar stofnanir, án þess þó að slíkt grafi undan eðlilegri
starfsemi innri markaðarins í þessum geira.
Þetta ætti þó ekki að draga úr rétti þessara
stofnana til að tilnefna forstöðumenn fjárfestinga og vörsluaðila með staðfestu í öðru aðildarríki og tilhlýðilegt umboð til að stýra fjárfestingasamvali þeirra og vörslu á eignum
þeirra.
16) Stofnanir eins og „Unterstützungskassen“ í
Þýskalandi, þar sem sjóðfélagar hafa engin
lagaleg réttindi til tiltekinnar fjárhæðar réttindagreiðslna og hagsmunir þeirra eru varðir
með lögboðinni skyldutryggingu gegn gjaldþroti, skulu ekki falla undir gildissvið þessarar
tilskipunar.
17) Í því skyni að vernda félaga og lífeyrisþega
skulu stofnanir um starfstengdan lífeyri takmarka starfsemi sína þannig að hún nái aðeins
til þeirrar starfsemi sem um getur í þessari
tilskipun og starfsemi sem af henni leiðir.
18) Ef til þess kemur að aðildarfyrirtæki verður
gjaldþrota stendur félagi andspænis þeirri
hættu að missa bæði starf sitt og áunnin lífeyrisréttindi sín. Þetta skapar þá nauðsyn að
tryggja að skýr skil séu á milli fyrirtækisins og
stofnunarinnar og að mælt sé fyrir um lágmarksvarfærnisviðmiðanir í því skyni að
vernda félaga.
19) Umtalsverður munur er á því í aðildarríkjunum
hvernig stofnanir um starfstengdan lífeyri
starfa og hvernig eftirliti með þeim er háttað. Í
sumum aðildarríkjum getur eftirlit verið haft
bæði með stofnuninni sjálfri og einnig einingum eða félögum sem heimilað er að stýra þessum stofnunum. Aðildarríki skulu vera fær um
að taka tillit til slíkrar sérstöðu svo fremi sem
allar kröfur, sem mælt er fyrir um í þessari tilskipun, séu uppfylltar. Aðildarríkin skulu
einnig vera fær um að heimila vátryggingafyrirtækjum og öðrum fjármálafyrirtækjum að
stýra stofnunum um starfstengdan lífeyri.
20) Stofnanir um starfstengdan lífeyri eru veitendur fjármálaþjónustu en þeir bera ríka ábyrgð
við greiðslu starfstengdra eftirlaunaréttinda og
af þeim sökum skulu þeir uppfylla tiltekin lágmarksviðmið um varfærni að því er varðar
starfsemi sína og rekstrarskilyrði.
21) Vegna feikilegs fjölda stofnana í tilteknum aðildarríkjum er nauðsynlegt að finna hagnýta
lausn á því hvernig hægt er að veita stofnunum
starfsleyfi fyrir fram.. Ef, á hinn bóginn, stofnun æskir þess að stýra kerfi í öðru aðildarríki
skal krefjast þess að lögbært yfirvald í heimaaðildarríkinu hafa veitt starfsleyfi fyrir fram.
22) Sérhvert aðildarríki skal krefjast þess að sérhver stofnun á yfirráðasvæði þess geri ársreikninga og ársskýrslur þar sem fram kemur sérhvert lífeyriskerfi sem stofnunin rekur og, þar
sem við á, ársreikningar og ársskýrslur fyrir
hvert þeirra. Ársreikningarnir og ársskýrslurnar, sem gefa glögga mynd af eignum, skuldum
og fjárhagsstöðu stofnunarinnar, þar sem tekið
er tillit til allra lífeyriskerfa sem stofnunin
stýrir og viðurkenndir aðilar hafa samþykkt,
eru mikilvæg upplýsingaheimild fyrir félaga og
lífeyrisþega kerfa sem og lögbær yfirvöld. Sér
í lagi gera þær lögbærum yfirvöldum kleift að
fylgjast með fjárhagslegum styrkleika stofnunar og að þau geti metið hvort stofnunin hafi
getu til að standa við allar samningsbundnar
skuldbindingar sínar.
23) Það er höfuðatriði að sjóðfélagar og lífeyrisþegar lífeyriskerfis fái réttar upplýsingar. Einkum skiptir þetta máli vegna beiðna um upplýsingar varðandi fjárhagslegan styrkleika stofnunarinnar, samningsreglurnar, réttindin og
raunfjármögnun áunninna lífeyrisréttinda, fjárfestingastefnu og áhættu- og kostnaðarstýringu.
24) Fjárfestingastefna stofnunar er ákvarðandi þáttur bæði fyrir öryggi og hagkvæmni starfstengdra lífeyrisgreiðslna. Stofnanirnar skulu
því setja fram og endurskoða að lágmarki á
þriggja ára fresti greinargerð um meginreglur
við fjárfestingar. Hún skal vera aðgengileg lögbærum yfirvöldum og einnig sjóðfélögum og
lífeyrisþegum í hverju lífeyriskerfi, sé þess
óskað.
25) Til að lögbær yfirvöld geti sinnt lögboðnu hlutverki sínu skulu þau hafa fullnægjandi réttindi
til að fá upplýsingar og heimildir til íhlutunar
að því er varðar stofnanir og aðilana sem
stjórna þeim í reynd. Í því tilviki að stofnun um
starfstengdan lífeyri hefur yfirfært verulega
mikilvæg verkefni til annarra félaga (utankaup), s.s. stýringu fjárfestinga, upplýsingatækni eða bókhald, skal vera unnt að útvíkka
réttindi til að fá upplýsingar og heimildir til
íhlutunar þannig að þau ná yfir þessi utanaðkeyptu verkefni til þess að unnt sé að hafa
eftirlit með því hvort þessari starfsemi sé sinnt
í samræmi við eftirlitsreglur.
26) Það er grundvallarskilyrði að reikna tryggingaskuld með varfærni til að tryggja að unnt sé að
standa við skuldbindingar um greiðslu eftirlauna. Reikna skal tryggingaskuld á grundvelli
viðurkenndra tryggingafræðilegra aðferða og
hún skal vottuð af hæfum aðilum. Velja skal
hámarksvexti með varfærni í samræmi við viðeigandi innlendar reglur. Lágmarksfjárhæð
tryggingaskuldar skal nægja bæði fyrir réttindagreiðslum sem þegar eru greiddar til lífeyrisþega og verða greiddar áfram sem og fyrir
skuldbindingum sem myndast vegna áunninna
lífeyrisréttinda sjóðfélaga.
27) Verulegur munur er í aðildarríkjunum á því til
hvers konar áhættu tryggingar taka hjá stofnunum. Heimaaðildarríki skulu því eiga þess kost
að setja viðbótarreglur sem eru ítarlegri en þær
sem mælt er fyrir um í þessari tilskipun um útreikning á tryggingaskuld.
28) Nægar og viðeigandi eignir, sem standa undir
tryggingaskuld, vernda hagsmuni sjóðfélaga og
lífeyrisþega lífeyriskerfisins ef aðildarfyrirtækið verður gjaldþrota. Einkum á það við þegar
starfsemi fer fram yfir landamæri en þá er
nauðsynlegt, samkvæmt gagnkvæmri viðurkenningu á eftirlitsreglum sem beitt er í aðildarríkjum, að tryggingaskuld sé ævinlega
fjármögnuð að fullu.
29) Ef starfsemi stofnunar fer ekki fram yfir landamæri skal aðildarríkjum unnt að heimila vanfjármögnun að því tilskildu að gerð sé viðeigandi áætlun um að koma aftur á fullri fjármögnun og með fyrirvara um kröfur sem gerðar eru í tilskipun ráðsins 80/987/EBE frá 20.
október 1980 um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vernd til handa launþegum verði
vinnuveitandi gjaldþrota (4).
30) Oft getur það verið aðildarfyrirtækið en ekki
stofnunin sjálf sem sér annaðhvort fyrir nægum
tryggingum vegna hvers kyns áhættu sem tengist ævilíkum manna eða ábyrgist tiltekin réttindi eða árangur af fjárfestingum. Í sumum tilvikum er það þó stofnunin sjálf sem sér um
þessa tryggingu eða ábyrgðir og skuldbindingar þess aðila sem greiðir til hennar eru einungis bundnar til greiðslu nauðsynlegra framlaga. Við slíkar aðstæður eru þær tryggingar,
sem í boði eru, sambærilegar þeim sem líftryggingafélög bjóða og hlutaðeigandi stofnanir skulu að lágmarki eiga jafnmikið viðbótar
eigið fé og líftryggingafélög.
31) Stofnanir eru fjárfestar sem fjárfesta til mjög
langs tíma. Að öllu jöfnu er ekki unnt að innleysa eignir þessara stofnana í neinum öðrum
tilgangi en að sjá fyrir eftirlaunum. Í því skyni
að verja réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega á
fullnægjandi hátt skulu stofnanir enn fremur
vera færar um að velja eignaskiptingu sem fellur nákvæmlega að eðli og gildistíma skuldbindinga þeirra. Þessir þættir kalla á skilvirkt
eftirlit og nálgun við fjárfestingarreglur sem
veita stofnunum nægilegan sveigjanleika til að
ákveða öruggustu og skilvirkustu fjárfestingastefnuna og skyldar þær til að sýna varfærni.
Sé farið að varfærnisreglunni (prudent person
rule) krefst það fjárfestingarstefnu sem er sniðin að samsetningu sjóðfélaga sérhverrar stofnunar um starfstengdan lífeyri.
32) Eftirlitsaðferðir og -venjur eru mismunandi í
aðildarríkjunum. Þess vegna skulu aðildarríkin
hafa nokkuð valfrelsi um nákvæmar fjárfestingareglur sem þau æskja að setja um stofnanir
sem eru á þeirra yfirráðasvæði. Þessar reglur
skulu þó ekki takmarka frjálsa fjármagnsflutninga nema slíkt sé réttlætanlegt út frá varfærnissjónarmiði.
33) Vegna þess að stofnanir um starfstengdan lífeyri eru langtímafjárfestar með litla lausafjáráhættu er þeim fært að fjárfesta í bundnum
eignum, s.s. hlutabréfum og einnig í áhættufjármagnsmörkuðum innan varfærnismarka.
Þær geta einnig nýtt sér kosti alþjóðlegrar fjölbreytni. Af þeim sökum skal ekki takmarka
fjárfestingu í hlutabréfum, áhættufjármagnsmörkuðum og gjaldmiðlum, öðrum en þeim
sem skuldirnar eru í, að öðru leyti en út frá varfærni.
34) Ef starfsemi stofnunarinnar fer fram yfir landamæri getur þó verið að lögbær yfirvöld gistiaðildarríkisins æski þess að það virði mörk um
fjárfestingar í hlutabréfum og sambærilegum
eignum, sem eru ekki skráð á skipulegan markað, í hlutabréfum og öðrum gerningum sem
gefin eru út af sama fyrirtæki eða í eignum,
sem eru ekki í samstæðum gjaldmiðlum, að því
tilskildu að þessar reglur eigi einnig við um
stofnanir í gistiaðildarríkinu.
35) Takmarkanir varðandi frjálst val stofnana á
viðurkenndum forstöðumönnum eigna og
vörsluaðilum takmarka samkeppni á innri
markaðinum og skal því fella þær niður.
36) Með fyrirvara um innlenda félagsmála- og
vinnulöggjöf um skipulag lífeyriskerfa, þ.m.t.
skylduaðild og niðurstöður almennra kjarasamninga, skulu stofnanir hafa möguleika á að
veita þjónustu sína í öðrum aðildarríkjum.
Þeim skal heimilað að taka við greiðslum frá
fyrirtækjum í öðrum aðildarríkjum og að starfrækja lífeyriskerfi þar sem sjóðfélagarnir eru í
fleiri en einu aðildarríki. Þetta gæti hugsanlega
leitt til töluverðrar stærðarhagkvæmni fyrir
þessar stofnanir, bætt samkeppnishæfni atvinnulífsins í Bandalaginu og ýtt undir hreyfanleika vinnuafls. Þetta krefst gagnkvæmrar
viðurkenningar varfærnisviðmiða. Lögbær yfirvöld í heimaaðildarríkinu skulu hafa eftirlit
með því að þessum varfærnisviðmiðunum sé
framfylgt á réttan hátt.
37) Ef stofnun í aðildarríki nýtir sér réttinn til að
starfrækja starfstengt lífeyriskerfi, sem samið
er um í öðru aðildarríki, skal hún fara að öllu
leyti að ákvæðum gildandi félagsmála- og
vinnulöggjafar í gistiaðildarríkinu að svo miklu
leyti sem það varðar starfstengdan lífeyri, t.d.
skilgreiningu og greiðslu eftirlauna og skilyrði
varðandi yfirfærslu lífeyrisréttinda.
38) Þegar kerfi er haldið aðgreindu skulu ákvæði þessarar tilskipunar gilda sérstaklega um það
kerfi.
39) Mikilvægt er að kveða á um samstarf um eftirlit milli lögbærra yfirvalda aðildarríkjanna og
samstarf í öðru skyni milli þessara yfirvalda og
framkvæmdastjórnarinnar. Lögbær yfirvöld
skulu, í því skyni að sinna skyldum sínum og
stuðla að samkvæmni og tímanlegri framkvæmd þessarar tilskipunar, veita hvert öðru
upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að unnt
sé að beita ákvæðum tilskipunarinnar. Framkvæmdastjórnin hefur látið í ljós ætlun sína að
koma á fót nefnd eftirlitsmanna til þess að
hvetja til samvinnu, samræmingar og skoðanaskipta milli innlendra lögbærra yfirvalda og til
þess að stuðla að samræmdri framkvæmd þessarar tilskipunar.
40) Þar sem aðildarríkin geta ekki með fullnægjandi hætti náð því markmiði sem fyrirhuguð
aðgerð felur í sér, þ.e. að koma á lagaramma í
Bandalaginu sem nær yfir stofnanir um starfstengdan lífeyri, og auðveldara er fyrir Bandalagið að ná markmiðinu vegna þess hve aðgerðin er umfangsmikil og hefur víðtæk áhrif,
getur Bandalagið samþykkt ráðstafanir í samræmi við dreifræðisregluna, eins og segir í 5.
gr. sáttmálans. Í samræmi við meðalhófsregluna, eins og kveðið er á um í þeirri grein, er
ekki gengið lengra en nauðsyn krefur í þessari
tilskipun til að ná þessu markmiði.
SAMÞYKKT TILSKIPUN ÞESSA:
Viðfangsefni
Gildissvið
2. Tilskipun þessi gildir ekki um:
a) stofnanir sem stýra almannatryggingakerfi og
falla undir reglugerð (EBE) nr. 1408/71 (5) og
reglugerð (EBE) nr. 574/72 (6),
b) stofnanir sem falla undir tilskipun 73/239/EBE
(7), tilskipun 85/611/EBE (8), tilskipun 93/22/
EBE (9), tilskipun 2000/12/EB (10) og tilskipun
2002/83/EB (11),
c) stofnanir sem reknar eru með gegnumstreymiskerfi,
d) stofnanir þar sem starfsmenn aðildarfyrirtækjanna hafa engan lagalegan rétt til réttinda og aðildarfyrirtækið getur innleyst eignirnar hvenær
sem er og þarf ekki endilega að fullnægja skuldbindingum sínum um greiðslu eftirlauna,
e) félög með sjóði sem ekki byggja á sjóðsöfnun í
því skyni að greiða starfsmönnum sínum eftirlaun.
Beiting að því er varðar stofnanir sem
starfrækja almannatryggingakerfi
Valfrjáls beiting að því er varðar stofnanir sem
falla undir tilskipun 2002/83/EB
Vátryggingafélög skulu, í því tilviki og aðeins að því
er varðar rekstur varðandi starfstengdan lífeyri, ekki
falla undir 20.–26. gr., 31. gr. og 36. gr. tilskipunar
2002/83/EB.
Heimaaðildarríkið skal tryggja að annaðhvort lögbær
yfirvöld eða þau yfirvöld, sem bera ábyrgð á eftirliti
með vátryggingafélögum, sem falla undir tilskipun
2002/83/EB, og það sé hluti af eftirlitsverkefnum
þeirra, sannreyni að rekstur varðandi starfstengdan
lífeyri sé algerlega aðskilinn öðrum rekstri.
Litlar lífeyrisstofnanir og
almannatryggingakerfi
Aðildarríki geta valið að beita ekki 9.–17. gr. gagnvart stofnunum sem annast lögboðinn starfstengdan
lífeyri sem opinber yfirvöld ábyrgjast. Einungis er
heimilt að beita 20. gr. ef öll önnur ákvæði þessarar
tilskipunar gilda.
Skilgreiningar
a) „stofnun um starfstengdan lífeyri“ eða „stofnun“:
stofnun, án tillits til rekstrarforms að lögum, sem
rekin er með fjármögnun og er stofnuð aðskilin
frá aðildarfyrirtæki eða atvinnugrein í þeim tilgangi að annast atvinnutengdar eftirlaunagreiðslur á grundvelli samkomulags eða samnings:
– sem er gerður fyrir hvern og einn eða í heild
milli vinnuveitanda eða vinnuveitenda og
starfsmanns eða starfsmanna eða fulltrúa
þeirra hvors eða hvorra um sig eða
– sem er gerður við sjálfstætt starfandi aðila í
samræmi við löggjöf heima- og gistiaðildarríkja,
og annast starfsemi sem rekja má beint til þess,
b) „lífeyriskerfi“: samningur, samkomulag, vörslusjóðsskjal eða reglur sem kveða á um greiðslu
eftirlauna og þá með hvaða skilyrðum,
c) „aðildarfyrirtæki“: fyrirtæki eða annar aðili,
hvort sem til þess teljast eða það samanstendur af
einum eða fleiri lögaðilum eða einstaklingum,
sem starfar sem vinnuveitandi eða er sjálfstætt
starfandi eða með einhverri slíkri samsetningu og
greiðir framlög til stofnunar um starfstengdan
lífeyri,
d) „eftirlaun“: réttindi sem eru greidd út þegar eftirlaunaaldri er náð eða þegar þess er vænst að honum verði náð eða þegar þau eru greidd sem viðbótarframlag, í formi greiðslna við andlát, örorku
eða starfslok, eða í formi stuðningsgreiðslna eða
þjónustu vegna sjúkdóms, fátæktar eða andláts.
Í því skyni að stuðla að fjárhagslegu öryggi á eftirlaunaárum eru þessi réttindi yfirleitt í formi
ævilangra greiðslna. Þetta geta þó einnig verið
tímabundnar greiðslur eða eingreiðslur,
e) „sjóðfélagi“: einstaklingur sem á rétt á eða mun
eiga rétt á eftirlaunum í krafti atvinnu sinnar í
samræmi við ákvæði lífeyriskerfis,
f) „lífeyrisþegi“: aðili sem fær greidd eftirlaun,
g) „lögbær yfirvöld“: innlend yfirvöld sem eru tilnefnd til að inna af hendi þær skyldur sem
kveðið er á um í þessari tilskipun,
h) „áhætta sem tengist ævilíkum manna“: áhætta
tengd andláti, örorku og langlífi,
i) „heimaaðildarríki“: aðildarríkið þar sem stofnunin er með skráða skrifstofu sína og aðalskrifstofu
eða aðalskrifstofu ef hún er ekki með skráða
skrifstofu,
j) „gistiaðildarríki“: aðildarríkið þar sem félagsmála- og vinnulöggjöf sem tengist starfstengdum
lífeyriskerfum á við um tengslin milli aðildarfyrirtækisins og sjóðfélaga.
Starfsemi stofnunar
Þegar vátryggingafyrirtæki stýrir rekstri sínum varðandi starfstengdan lífeyri með því að halda eignum
sínum og skuldum aðgreindum, í samræmi við 4. gr.,
skulu aðgreindu eignirnar og skuldirnar takmarkast
við rekstur, tengdan eftirlaunum og starfsemi sem
leiðir beint af þeim.
Lögformlegur aðskilnaður milli aðildarfyrirtækja og stofnana um starfstengdan lífeyri
Skilyrði varðandi rekstur
a) að lögbært eftirlitsyfirvald skrái stofnunina í innlenda skrá eða veiti henni leyfi; ef um er að ræða
starfsemi yfir landamæri, sem um getur í 20. gr.,
skal einnig koma fram í skránni í hvaða aðildarríkjum stofnunin er með rekstur,
b) að stofnunin sé rekin á hagkvæman hátt af einstaklingum með óflekkað mannorð og þeir verði
að hafa viðeigandi starfsmenntun og hæfi eða
hafi í vinnu sinni ráðgjafa með viðeigandi starfsmenntun og hæfi og reynslu,
c) að komið hafi verið til framkvæmda reglum um
starfrækslu lífeyriskerfa sem stofnunin rekur og
þær hafi verið settar á viðeigandi hátt og sjóðfélögum hafi verið kynntar þessar reglur nægilega vel,
d) að allar tryggingaskuldir séu reiknaðar og vottaðar af tryggingafræðingi eða, ef tryggingafræðingur sér ekki um það, af öðrum sérfræðingi á þessu
sviði, m.a., í samræmi við innlenda löggjöf, af
endurskoðanda á grundvelli tryggingafræðilegra
aðferða sem viðurkenndar eru af lögbærum yfirvöldum í heimaaðildarríkinu,
e) að aðildarfyrirtækið ábyrgist greiðslu eftirlauna
í því tilviki að það hafi skuldbundið sig til reglulegrar fjármögnunar,
f) sjóðfélagarnir séu nægilega vel upplýstir um skilyrði lífeyriskerfisins, einkum varðandi:
i) réttindi og skyldur þeirra aðila sem eiga aðild
að lífeyriskerfinu,
ii) fjárhagslega, tæknilega og aðra áhættu,
tengda lífeyriskerfinu,
iii) eðli og dreifingu þessarar áhættu.
2. Í samræmi við dreifræðisregluna og að teknu tilhlýðilegu tilliti til umfangs lífeyrisgreiðslna sem almannatryggingakerfi bjóða geta aðildarríki kveðið á
um að sjóðfélögum standi til boða trygging sem nær
yfir langlífi og örorku, greiðslur til eftirlifandi aðstandenda og trygging fyrir endurgreiðslu framlaga
í formi viðbótarréttinda ef vinnuveitendur og starfsmenn eða fulltrúar þeirra hvorra um sig koma sér
saman um það.
3. Aðildarríki getur sett skilyrði um rekstur stofnunar á yfirráðasvæði þess sem eru háð öðrum kröfum
í því skyni að tryggja að hagsmunir sjóðfélaga og lífeyrisþega séu varðir með fullnægjandi hætti.
4. Aðildarríki getur heimilað eða krafist þess að
stofnanir á yfirráðasvæði þess feli rekstur þessara stofnana, að öllu leyti eða að hluta, öðrum einingum
sem starfa fyrir hönd þessara stofnana.
5. Í því tilviki að starfsemin nái yfir landamæri, eins
og um getur í 20. gr., skulu skilyrði fyrir rekstri
stofnunarinnar vera með fyrirvara um að lögbær yfirvöld heimaaðildarríkisins hafi veitt henni starfsleyfi
fyrir fram.
Ársreikningar og ársskýrsla
Upplýsingar sem ber að veita sjóðfélögum og
lífeyrisþegum
2. Sjóðfélagar og lífeyrisþegar og/eða, þar sem við
á, fulltrúar þeirra skulu fá:
a) að fenginni beiðni, ársreikningana og ársskýrslurnar, sem um getur í 10. gr., og, þegar stofnun
ber ábyrgð á fleiri en einu kerfi, þá ársreikninga
og þær ársskýrslur sem tengjast tilteknu lífeyriskerfi,
b) allar viðeigandi upplýsingar um breytingar á
reglum lífeyriskerfis innan hæfilegs tímaramma.
3. Yfirlýsing um meginreglur um fjárfestingastefnu,
sem um getur í 12. gr., skal vera aðgengileg sjóðfélögum og lífeyrisþegum og/eða, þar sem við á,
fulltrúum þeirra að fenginni beiðni.
4. Sérhver sjóðfélagi skal einnig fá, að fenginni
beiðni, ítarlegar og greinagóðar upplýsingar um:
a) fyrirhugað stig eftirlauna, ef við á,
b) fjárhæð réttindagreiðslna ef um er að ræða starfslok,
c) í því tilviki að sjóðfélagi beri fjárfestingaáhættuna, hverjir fjárfestingarmöguleikar eru, ef við á,
og raunverulegt fjárfestingasamval, auk upplýsinga um áhættu og kostnað tengdan fjárfestingunum,
d) fyrirkomulag sem tengist yfirfærslu lífeyrisréttinda til annarrar stofnunar um starfstengdan lífeyri ef um er að ræða lok ráðningarsambands.
Sjóðfélagar skulu árlega fá stutt yfirlit yfir stöðu
stofnunarinnar og einnig hvert núverandi fjármögnunarstig áunninna réttinda hvers og eins er.
5. Við lífeyrisaldur eða þegar réttur til útgreiðslu
annarra réttinda skapast skal sérhver lífeyrisþegi fá
viðeigandi upplýsingar um réttindi sem koma eiga til
útgreiðslu og valmöguleika um útgreiðslu þeirra.
Yfirlýsing um meginreglur um
fjárfestingastefnu
Upplýsingar sem ber að veita lögbærum
yfirvöldum
a) til að krefjast þess að stofnunin, stjórn og
stjórnarmenn eða aðilar sem stýra stofnuninni
veiti upplýsingar um öll viðskiptaleg málefni eða
framsendi öll viðskiptaskjöl,
b) til að hafa eftirlit með tengslum milli stofnunarinnar og annarra félaga eða milli stofnana þegar
þær flytja starfssvið til þessara félaga eða stofnana (utankaup) og hafi þannig áhrif á fjárhagsstöðu stofnunarinnar eða skipti verulegu máli
vegna skilvirks eftirlits,
c) til að fá reglubundið yfirlýsingu um meginreglur
um fjárfestingastefnu, ársreikninga og ársskýrslur og öll skjöl sem nauðsynleg eru vegna eftirlits
með starfseminni. Þetta geta m.a. verið skjöl á
borð við:
i) innri árshlutaskýrslur,
ii) tryggingafræðilegt virðismat og ítarlegar forsendur þess,
iii) kannanir á eignum og skuldbindingum
iv) staðfesting á því að stofnunin fylgi meginreglum um fjárfestingastefnu,
v) staðfesting á því að framlög hafi verið greidd
samkvæmt áætlun,
vi) skýrslur þeirra einstaklinga sem bera ábyrgð
á endurskoðun ársreikninganna sem um getur
í 10. gr.,
d) til að annast vettvangsskoðun á athafnasvæði
stofnunarinnar og, þar sem við á, þar sem starfssvið hafa verið utankeypt til að ganga úr skugga
um hvort starfsemin fari fram í samræmi við
eftirlitsreglur.
Vald lögbærra yfirvalda til íhlutunar og
skyldur þeirra
2. Lögbær yfirvöld skulu hafa vald til þess að gera
hvaða ráðstafanir sem er annaðhvort beint gagnvart
stofnun á yfirráðasvæðum þeirra eða aðilunum sem
reka stofnunina, m.a., þar sem við á, viðeigandi og
nauðsynlegar ráðstafanir sem eru stjórnunar- eða
fjárhagslegs eðlis til að koma í veg fyrir eða ráða bót
á vanrækslu sem skaðar hagsmuni sjóðfélaga og lífeyrisþega.
Þau geta einnig takmarkað eða bannað frjálsa ráðstöfun stofnunarinnar á eignum sínum, einkum þegar
a) stofnunin hefur ekki getað myndað fullnægjandi
tryggingaskuld vegna starfseminnar í heild eða á
ekki nógar eignir til að standa undir tryggingaskuldinni,
b) stofnunin á ekki skyldubundinn viðbótarsjóð.
3. Í því skyni að verja hagsmuni sjóðfélaga og lífeyrisþega er lögbærum yfirvöldum heimilt að flytja
það vald, sem aðilar sem reka stofnun sem er á yfirráðasvæðum þeirra hafa í samræmi við lög heimaaðildarríkisins, að öllu leyti eða að hluta, til sérstaks
fulltrúa sem er hæfur til að fara með þetta vald.
4. Lögbæru yfirvöldin geta bannað eða takmarkað
starfsemi stofnunar sem er á yfirráðasvæðum þeirra,
einkum ef:
a) stofnunin stendur ekki nægilega vel vörð um
hagsmuni sjóðfélaga og lífeyrisþega,
b) stofnunin uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir
rekstri,
c) stofnunin bregst alvarlega skyldum sem á henni
hvíla samkvæmt gildandi reglum,
d) í því tilviki að starfsemi fari fram yfir landamæri,
stofnunin virðir ekki kröfur samkvæmt félagsmála- og vinnulöggjöf í gistiaðildarríkinu sem
eiga við um starfstengdan lífeyri.
Ákvörðun um að banna starfsemi stofnunar skal ítarlega rökstudd og tilkynnt hlutaðeigandi stofnun.
5. Aðildarríkin skulu tryggja að hægt sé að leita til
dómstóla með allar ákvarðanir sem teknar eru um
stofnanir samkvæmt lögum og stjórnsýslufyrirmælum sem eru samþykkt samkvæmt þessari tilskipun.
Tryggingaskuld
2. Heimaaðildarríkið skal tryggja að stofnanir, sem
starfrækja starfstengd lífeyriskerfi þar sem boðnar
eru tryggingar gegn áhættu sem tengist ævilíkum
manna og/eða ábyrgjast annaðhvort fjárfestingarárangur eða tiltekin réttindi, ákvarði nægilega tryggingaskuld að því er varðar öll þessi kerfi.
3. Útreikningur á tryggingaskuld skal gerður ár
hvert. Heimaaðildarríki getur þó heimilað að útreikningur sé gerður einu sinni á þriggja ára fresti ef
stofnunin lætur sjóðfélögum og/eða lögbærum yfirvöldum í té vottun eða skýrslu með jöfnun fyrir hvert
ár sem líður á milli. Staðfestingin eða skýrslan skal
endurspegla leiðrétta þróun tryggingaskuldar og
breytingar á þeirri áhættu sem tryggð er.
4. Útreikningur á tryggingaskuld skal framkvæmdur
og staðfestur af tryggingafræðingi eða, ef tryggingafræðingur sér ekki um það, af öðrum sérfræðingi á þessu sviði, m.a., í samræmi við innlenda löggjöf, af
endurskoðanda á grundvelli tryggingafræðilegra aðferða, sem eru viðurkenndar af lögbærum yfirvöldum í heimaaðildarríkinu, í samræmi við eftirfarandi
meginreglur:
a) lágmarksfjárhæð tryggingaskuldar skal reiknuð
út samkvæmt nægilega varfærnu tryggingafræðilegu mati, að teknu tilliti til allra skuldbindinga
vegna réttinda og vegna framlaga í samræmi við
lífeyrisfyrirkomulag stofnunarinnar. Hún skal
nægja bæði fyrir lífeyri og áframhaldandi útgreiðslum réttinda sem komið hafa til útgreiðslu
til lífeyrisþega og jafnframt endurspegla skuldbindingar vegna áunninna lífeyrisréttinda lífeyrisþega. Efnahagslegar og tryggingafræðilegar
forsendur, sem valdar eru fyrir mat á skuldbindingum, skulu einnig valdar með varfærni og tillit
skal tekið til, ef við á, viðeigandi svigrúms vegna
óhagstæðs fráviks,
b) hámarksvextir skulu valdir með varfærni og
ákvarðaðir í samræmi við allar viðeigandi reglur
í heimaaðildarríkinu. Þessir varfærnu vextir
skulu ákvarðaðir með hliðsjón af:
– ávöxtun samsvarandi eigna sem stofnunin á
og með hliðsjón af framtíðarfjárfestingatekjum og/eða
– markaðsávöxtun hágæðaskuldabréfa eða
ríkisskuldabréfa,
c) töflurnar um áhættu sem tengist ævilíkum
manna, sem notaðar eru til útreiknings á tryggingaskuld, skulu byggðar á varfærnisreglum með
hliðsjón af megineinkennum sjóðfélagahópsins
og lífeyriskerfanna, einkum væntra breytinga á
þeirri áhættu sem um er að ræða,
d) aðferðin og grunnurinn við útreikning á tryggingaskuld skulu að öllu jöfnu vera óbreytt milli
fjárhagsára. Þeim má þó breyta með því að færa
rök fyrir því að breyting hafi orðið á lagalegum,
lýðfræðilegum eða efnahagslegum aðstæðum
sem liggja til grundvallar forsendunum.
5. Aðildarríkið getur sett aukin og ítarlegri skilyrði
um útreikning á tryggingaskuld í því skyni að
tryggja að hagsmunir sjóðfélaganna og lífeyrisþeganna séu varðir með fullnægjandi hætti.
6. Í því skyni að samræma betur reglur um útreikning á tryggingaskuld sem unnt er að færa rök fyrir,
einkum um vaxtastig og aðrar forsendur sem hafa
áhrif á fjárhæð tryggingaskuldar, skal framkvæmdastjórnin gefa út skýrslu á tveggja ára fresti eða að
beiðni aðildarríkis um það með hvaða hætti starfsemi
yfir landamæri þróast.
Framkvæmdastjórnin skal gera tillögu um nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir hugsanlega
röskun vegna mismunandi vaxtastigs og til að verja
hagsmuni lífeyrisþega og sjóðfélaga að kerfum.
Fjármögnun tryggingaskuldar
2. Heimaaðildarríkið getur heimilað að stofnun hafi
ekki nægar eignir til að standa undir tryggingaskuld
í takmarkaðan tíma. Í slíku tilviki skulu lögbær yfirvöld krefjast þess að stofnunin samþykki raunhæfa
og framkvæmanlega endurreisnaráætlun til þess að
tryggja að farið sé aftur að kröfunum sem gerðar eru
í 1. mgr. Eftirfarandi reglur skulu gilda um áætlunina:
a) stofnunin skal gera raunhæfa og framkvæmanlega áætlun um það hvernig eignir munu ná tilskilinni fjárhæð til að standa undir tryggingaskuld innan tilskilins tíma. Áætlunin skal vera tiltæk sjóðfélögum eða, þegar við á, fulltrúum
þeirra og/eða vera með fyrirvara um samþykki
lögbærra yfirvalda í heimaaðildarríkinu,
b) þegar áætlunin er gerð skal tekið til tillit til sérstakra aðstæðna stofnunarinnar, einkum samsetningu eigna/skulda, áhættustefnu, lausafjáráætlunar, aldursdreifingar sjóðfélaga sem eiga rétt á
eftirlaunum, nýstofnaðra kerfa og kerfa sem færast frá því að vera ekki fjármögnuð eða fjármögnuð að hluta yfir í það að vera fjármögnuð
að fullu,
c) ef til þess kemur að hætt er með lífeyriskerfi á
tímabilinu sem um getur framar í þessari málsgrein skal stofnunin tilkynna það lögbærum yfirvöldum í heimaaðildarríkinu. Stofnunin skal fastsetja málsmeðferð til þess að flytja eignir og
samsvarandi skuldir til annarrar fjármálastofnunar eða sambærilegs aðila. Lögbær yfirvöld
heimaaðildarríkisins skulu upplýst um þessa
málsmeðferð og almennt ágrip hennar skal vera
aðgengilegt sjóðfélögum eða, þar sem við á, fulltrúum þeirra í samræmi við meginregluna um
trúnaðarskyldu.
3. Ef um er að ræða starfsemi yfir landamæri, sem
um getur í 20. gr., skal tryggingaskuld ávallt fjármögnuð að fullu í öllum lífeyriskerfum sem starfrækt eru. Ef þessi skilyrði eru ekki uppfyllt skulu
lögbær yfirvöld heimaaðildarríkisins hlutast til í
samræmi við 14. gr. Til þess að fara að þessari kröfu
getur heimaaðildarríkið krafist þess að eignum og
skuldum sé haldið aðgreindum.
Lögboðið eigið fé
2. Við útreikning á lágmarksfjárhæð viðbótareignanna skulu reglur, sem mælt er fyrir um í 27. og 28.
gr. tilskipunar 2002/83/EB, gilda.
3. Ákvæði 1. mgr. skulu þó ekki koma í veg fyrir að
aðildarríki krefjist þess af stofnunum á yfirráðasvæði
þeirra að þær hafi yfir að ráða lögboðnu eigin fé eða
setji ítarlegri reglur að því tilskildu að þær sé rökstuddar út frá varfærnissjónarmiði.
Fjárfestingareglur
a) við fjárfestingar í eignum skal hafa hagsmuni
sjóðfélaga og lífeyrisþega að leiðarljósi. Ef um er
að ræða hugsanlegan hagsmunaárekstur skal
stofnunin eða einingin sem stýrir safni hennar sjá
til þess að fjárfestingin sé eingöngu í þágu sjóðfélaga og lífeyrisþega,
b) fjárfest skal í eignum með þeim hætti að öryggi,
gæði, lausafjárstaða og arðsemi safnsins í heild
sé tryggt.
Við fjárfestingar í eignum til jöfnunar á móti
tryggingaskuld skal hafa hliðsjón af eðli og tímalengd væntanlegra eftirlauna í framtíðinni,
c) fyrst og fremst skal fjárfest með eignunum á
skipulegum mörkuðum. Fjárfesting í eignum,
sem eru ekki skráðar á skipulegum fjármálamarkaði, verður ávallt að vera innan varfærnismarka,
d) fjárfesting í afleiddum gerningum skal möguleg
að því marki sem þeir geta dregið úr fjárfestingaáhættu eða stuðlað að skilvirkri stýringu eignasafnsins. Þá skal meta á varfærnisgrundvelli, með
hliðsjón af eigninni sem liggur til grundvallar, og
fella inn í matið á eignum stofnunarinnar. Stofnunin skal einnig forðast óþarfa áhættu gagnvart
einum mótaðila og gagnvart annarri notkun afleiðna,
e) eignirnar skulu vera nægilega fjölbreytilegar
þannig að komast megi hjá því að treyst sé óþarflega mikið á tiltekna eign, útgefanda eða fyrirtækjasamstæðu og uppsöfnun áhættu í eignasafninu í heild.
Fjárfestingar í eignum, sem eru gefnar út af sama
útgefanda eða af útgefendum sem tilheyra sömu
samstæðu, skulu ekki leiða til þess að stofnunin
lendi í óhóflegri áhættusamþjöppun,
f) fjárfesting í aðildarfyrirtækinu skal ekki vera
meiri en 5% eignasafnsins í heild og, þegar aðildarfyrirtækið er hluti af samstæðu, skal fjárfesting í fyrirtækjum í sömu samstæðu og aðildarfyrirtækið tilheyrir ekki vera yfir 10% eignasafnsins.
Þegar nokkur fyrirtæki greiða til stofnunarinnar
skal fjárfesting í þessum aðildarfyrirtækjum vera
varfærin og með hliðsjón af nauðsyn þess að
dreifingin sé nægjanlega mikil.
Aðildarríkin geta ákveðið að framfylgja ekki
kröfunum, sem um getur í e- og f-lið, gagnvart
fjárfestingum í ríkisskuldabréfum.
2. Heimaaðildarríkið skal banna stofnuninni að taka
lán eða taka á sig ábyrgð fyrir hönd þriðju aðila. Aðildarríki geta hins vegar heimilað stofnunum að
stunda lántökur að nokkru marki, þó einungis til að
afla lausafjár og til skamms tíma.
3. Aðildarríkin skulu ekki gera kröfu um að stofnanir á yfirráðasvæði þeirra fjárfesti í tilteknum
eignaflokkum.
4. Aðildarríkin skulu ekki skilyrða fjárfestingarákvarðanir stofnunar á yfirráðasvæði þeirra eða forstöðumann fjárfestinga við neins konar fyrirframsamþykki eða kerfisbundna tilkynningarskyldu, sbr.
þó 12. gr.
5. Aðildarríkjunum er heimilt, í samræmi við
ákvæði 1.–4. mgr., að mæla fyrir um ítarlegri reglur
um stofnanir á yfirráðasvæðum þeirra, þar á meðal
reglur um magn, að því tilskildu að þær séu rökstuddar út frá varfærnissjónarmiði, til að endurspegla
öll lífeyriskerfi sem þessar stofnanir starfrækja.
Aðildarríkjunum er einkum heimilt að beita ákvæðum um fjárfestingar sem eru sambærilegar við
ákvæðin í tilskipun 2002/83/EB.
Aðildarríkin skulu þó ekki hindra stofnanir í eftirfarandi atriðum:
a) að fjárfesta fyrir allt að 70% eignanna sem eru til
jöfnunar tryggingaskuldar eða alls stofnsins í
kerfum þar sem sjóðfélagarnir bera fjárfestingaáhættuna í hlutabréfum, framseljanlegum verðbréfum sem farið er með eins og hlutabréf og
fyrirtækjaskuldabréfum, skráðum á skipulegum
mörkuðum og að ákveða hlutfallslegt vægi þessara verðbréfa í fjárfestingasamvali þeirra. Aðildarríkjum er þó heimilt, að því tilskildu að slíkt
sé rökstutt út frá varfærnissjónarmiði, að nota
lægri mörk gagnvart stofnunum sem bjóða lífeyriskjör með langtímavaxtaábyrgð, bera fjárfestingaáhættuna og gangast sjálf í ábyrgðir,
b) að fjárfesta fyrir allt að 30% eignanna sem eru til
jöfnunar tryggingaskuldar í eignum sem tilgreindar eru í öðrum gjaldmiðlum en þeim sem
skuldbindingarnar eru tilgreindar í,
c) að fjárfesta í áhættufjármagnsmörkuðum.
6. Ákvæði 5. mgr. skulu ekki koma í veg fyrir að
aðildarríkin geti krafist þess að stofnanir á yfirráðasvæði þeirra beiti strangari reglum um fjárfestingar,
einnig gagnvart einstökum stofnunum, að því tilskildu að þær séu rökstuddar út frá varfærnissjónarmiði, einkum með hliðsjón af þeim skuldbindingum
sem stofnunin gengst undir.
7. Þegar um er að ræða starfsemi yfir landamæri,
eins og getur um í 20. gr., geta lögbær yfirvöld í sérhverju gistiaðildarríki krafist þess að reglurnar, sem
settar eru fram í annarri undirgrein, gildi um stofnunina í heimaaðildarríkinu. Í því tilviki gilda þessar
reglur einungis um þann hluta eigna stofnunarinnar
sem er sambærilegur starfseminni sem fer fram í tilteknu gistiaðildarríki. Þær skulu enn fremur einungis
gilda ef sömu eða strangari reglur gilda einnig um
stofnanir í gistiaðildarríkinu.
Reglurnar, sem um getur í fyrstu undirgrein, eru sem
hér segir:
a) stofnunin skal ekki fjárfesta fyrir meira en 30%
af þessum eignum í hlutabréfum, öðrum verðbréfum sem farið er með sem hlutabréf og
skuldabréfum sem eru ekki skráð á skipulegan
markað eða fjárfesta fyrir a.m.k. 70% af þessum
eignum í hlutabréfum, öðrum verðbréfum sem
farið er með sem hlutabréf og skuldabréfum sem
eru skráð á skipulegan markað,
b) stofnunin skal ekki fjárfesta fyrir meira en 5% af
þessum eignum í hlutabréfum og öðrum verðbréfum sem farið er með eins og hlutabréf,
skuldabréf og aðra peninga- og fjármagnsmarkaðsgerninga sem sama fyrirtæki gefur úti,
og ekki fyrir meira en 10% af þessum eignum í
hlutabréfum og öðrum verðbréfum sem farið er
með eins og hlutabréf, skuldabréfum og skuldabréfum sem ekki er verslað með á almennum
markaði og öðrum peninga- og fjármagnsmarkaðargerningum sem fyrirtæki sem tilheyra sömu
samstæðu gefa út,
c) stofnunin skal ekki fjárfesta fyrir meira en 30%
af þessum eignum í eignum sem tilgreindar eru í
öðrum gjaldmiðlum en þeim sem skuldbindingarnar eru tilgreindar í.
Til þess að fara að þessum kröfum getur heimaaðildarríkið krafist þess að eignunum sé haldið aðgreindum.
Stjórnun og varsla
2. Aðildarríki skulu ekki standa gegn því að stofnanir tilnefni aðila til vörslu á eignum sínum, vörsluaðila, sem hafa staðfestu í öðru aðildarríki og tilhlýðilegt umboð í samræmi við tilskipun 93/22/EBE
eða tilskipun 2000/12/EB eða eru viðurkennd fjárvörslufyrirtæki í skilningi tilskipunar 85/611/EBE.
Ákvæðið sem um getur í þessari málsgrein skal ekki
koma í veg fyrir að heimaaðildarríkið geri tilnefningu vörsluaðila eða fjárvörslufyrirtækis lögboðna.
3. Sérhvert aðildarríki skal gera þær ráðstafanir sem
nauðsynlegar eru til að það geti bannað samkvæmt
landslögum, í samræmi við 14. gr., að eignum í umsjón vörsluaðila eða fjárvörslufyrirtækis á yfirráðasvæði þess sé ráðstafað að vild ef heimaðildarríki
stofnunarinnar fer fram á slíkt.
Starfsemi yfir landamæri
2. Um stofnun, sem óskar eftir því að samþykkja
greiðslur frá aðildarfyrirtæki á yfirráðasvæði annars
aðildarríkis, gildir að lögbær yfirvöld í heimaaðildarríki hennar hafi veitt til þess heimild áður, eins og
um getur í 5. mgr. 9. gr. Hún skal tilkynna lögbærum
yfirvöldum heimaaðildarríkisins, þar sem henni
hefur verið veitt leyfi, að hún hyggist samþykkja
greiðslur frá aðildarfyrirtæki á yfirráðasvæði annars
aðildarríkis.
3. Aðildarríki skulu krefjast þess að stofnanir á yfirráðasvæði þeirra, sem áforma að fá greiðslur frá
fyrirtæki á yfirráðasvæði annars aðildarríkis, leggi
fram eftirfarandi upplýsingar þegar þau gefa út tilkynningu skv. 2. mgr.:
a) gistiaðildarríkið eða gistiaðildarríkin,
b) heiti aðildarfyrirtækisins,
c) aðaleinkenni lífeyriskerfisins sem starfrækja skal
fyrir aðildarfyrirtækið.
4. Í því tilviki að lögbært yfirvald í heimaðildarríki
fær tilkynningu skv. 2. mgr., og ef það hefur ekki
ástæðu til að efast um að stjórnskipulag eða fjárhagsstaða stofnunarinnar eða orðstír og fagþekking eða
reynsla þeirra aðila sem reka stofnunina séu samrýmanleg rekstrinum sem áformaður er í gistiaðildarríkinu, skal það, innan þriggja mánaða frá því að það
fær allar upplýsingar, sem um getur í 3. mgr., senda
þessar upplýsingar til lögbærra yfirvalda gistiaðildarríkisins og láta stofnunina vita.
5. Lögbær yfirvöld í gistiaðildarríki skulu, áður en
stofnunin hefur rekstur lífeyriskerfis fyrir aðildarfyrirtæki í öðru aðildarríki, og eigi síðar en tveimur
mánuðum eftir að þau fá upplýsingarnar sem um
getur í 3. mgr., tilkynna lögbærum yfirvöldum í
heimaðaðildarríkinu, ef við á, um þær kröfur í félagsmála- og vinnulöggjöf sem eiga við um starfstengdan lífeyri og segir til um hvernig lífeyriskerfi,
sem fyrirtæki í gistiaðildarríki greiðir til, skuli starfrækt og aðrar reglur sem beita skal í samræmi við 7.
mgr. 18. gr. og 7. mgr. þessarar greinar. Lögbær
yfirvöld í heimaaðildarríkinu skulu láta stofnuninni
í té þessar upplýsingar.
6. Þegar stofnun berst tilkynning, sem um getur í 5.
mgr., eða ef engin tilkynning hefur borist frá lögbærum yfirvöldum í heimaaðildarríki þegar sá frestur
rennur út, sem kveðið er á um í 5. mgr., er stofnuninni heimilt að hefja rekstur lífeyriskerfisins sem
fyrirtæki í gistiaðildarríkinu greiðir til, í samræmi
við kröfur félagsmála- og vinnulöggjafar gistiaðildarríkisins sem eiga við um starfstengdan lífeyri
og allar reglur sem beita skal í samræmi við 7. mgr.
18. gr. og 7. mgr. þessarar greinar.
7. Um stofnun, sem fyrirtæki í öðru aðildarríki
greiðir til, skulu einnig gilda, að því er varðar sambærilega sjóðfélaga allar upplýsingakröfur sem settar
eru af lögbærum yfirvöldum í gistiaðildarríkinu um
stofnanir í því aðildarríki, í samræmi við 11. gr.
8. Lögbær yfirvöld í gistiaðildarríkinu skulu tilkynna lögbærum yfirvöldum í heimaaðildarríkinu
um allar verulegar breytingar á kröfum í félagsmála-
og vinnulöggjöf heimaaðildarríkisins sem eiga við
um starfstengd lífeyriskerfi sem kunna að hafa áhrif
á eiginleika lífeyriskerfisins að því marki sem það
snertir rekstur lífeyriskerfisins sem fyrirtæki í gistiaðildarríkinu greiðir til og breytingar á öllum reglum
sem verður að beita í samræmi við 7. mgr. 18. gr. og
7. mgr. þessarar greinar.
9. Stofnunin skal sæta stöðugu eftirliti lögbærra
yfirvalda í gistiaðildarríkinu þar sem fylgst er með
því að starfsemin fari fram í samræmi við kröfur í
vinnu- og félagsmálalöggjöf gistiaðildarríkisins sem
eiga við um starfstengd lífeyriskerfi, sem um getur
í 5. mgr., og upplýsingakröfur sem um getur í 7.
mgr. Ef þetta eftirlit leiðir í ljós brot á reglum ber
lögbærum yfirvöldum í gistiaðildarríkinu að tilkynna
lögbærum yfirvöldum í heimaaðildarríkinu um það
tafarlaust. Lögbær yfirvöld í heimaaðildarríkinu
skulu, með samhæfingu við lögbær yfirvöld í gistiaðildarríkinu, gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar
eru til að tryggja að stofnunin láti af hinu uppgötvaða broti á félagsmála- og vinnulöggjöf.
10. Ef stofnunin heldur áfram að brjóta viðeigandi
ákvæði í félagsmála- og vinnulöggjöf gistiaðildarríkisins, sem eiga við um svið starfstengdra lífeyriskerfa, þrátt fyrir ráðstafanir sem lögbær yfirvöld í
heimaaðildarríkinu hafa gert eða vegna þess að viðeigandi ráðstafanir eru ekki gerðar í heimaaðildarríkinu, er lögbærum yfirvöldum í gistiaðildarríkinu
heimilt, eftir að hafa tilkynnt lögbærum yfirvöldum
í heimaðildarríkinu um það, að gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir eða refsa fyrir frekari
brot, þ.m.t. að koma í veg fyrir rekstur stofnunarinnar í gistiaðildarríkinu fyrir aðildarfyrirtækið að
því marki sem ýtrustu nauðsyn ber til.
Samvinna milli aðildarríkjanna og
framkvæmdastjórnarinnar
2. Framkvæmdastjórnin og lögbær yfirvöld í aðildarríkjunum skulu hafa nána samvinnu í því skyni
að auðvelda eftirlit með rekstri stofnana um starfstengdan lífeyri.
3. Hvert aðildarríki skal skýra framkvæmdastjórninni frá öllum meiri háttar vandkvæðum sem upp
kunna að koma við framkvæmd þessarar tilskipunar.
Framkvæmdastjórnin og lögbær yfirvöld þeirra aðildarríkja sem hlut eiga að máli skulu skoða slík
vandkvæði svo fljótt sem unnt er til þess að finna
viðeigandi lausn.
4. Fjórum árum eftir gildistöku þessarar tilskipunar
skal framkvæmdastjórnin leggja fram skýrslu þar
sem eftirfarandi atriði hafa verið endurskoðuð:
a) beiting 18. gr. og framfarir sem hafa orðið í aðlögun innlendra eftirlitskerfa og
b) beiting annarrar undirgreinar 2. mgr. 19. gr.,
einkum aðstæður sem fyrir hendi eru í aðildarríkjum varðandi notkun fjárvörslufyrirtækja og
hvaða hlutverki þau gegna þar sem við á.
5. Lögbærum yfirvöldum í gistiaðildarríkinu er
heimilt að fara fram á það við lögbær yfirvöld í
heimaaðildarríkinu að þau ákveði að halda eignum
og skuldum stofnunarinnar aðgreindum, eins og
kveðið er á um í 3. mgr. 16. gr. og 7. mgr. 18. gr.
Framkvæmd
Þegar aðildarríkin samþykkja þessar ráðstafanir skal
vera í þeim tilvísun í þessa tilskipun eða þeim fylgja
slík tilvísun þegar þær verða birtar opinberlega. Aðildarríkin skulu setja nánari reglur um slíka tilvísun.
2. Aðildarríkin skulu senda framkvæmdastjórninni
helstu ákvæði úr landslögum sem þau samþykkja um
málefni sem tilskipun þessi nær til.
3. Aðildarríkjunum er heimilt að fresta til 23.
september 2010 beitingu 1. og 2. mgr. 17. gr. gagnvart stofnunum á yfirráðasvæði þeirra sem ekki ná
lágmarksmörkum um eigið fé sem krafist er skv. 1.
og 2. mgr. 17. gr. á þeim degi sem tiltekinn er í 1.
mgr. þessarar greinar. Hins vegar er stofnunum, sem
æskja þess að starfrækja lífeyriskerfi yfir landamæri
í skilningi 20. gr., ekki heimilt að gera það fyrr en
þær uppfylla reglur þessarar tilskipunar.
4. Aðildarríkjum er heimilt að fresta til 23. september 2010 að beita f-lið 1. mgr. 18. gr. gagnvart stofnunum á yfirráðasvæði þeirra. Hins vegar er stofnunum, sem æskja þess að starfrækja lífeyriskerfi yfir
landamæri í skilningi 20. gr., ekki heimilt að gera
það fyrr en þær hlíta reglum þessarar tilskipunar.
Gildistaka
Viðtakendur
Gjört í Lúxemborg 3. júní 2003.
Fyrir hönd
Evrópuþingsins,
Fyrir hönd ráðsins,
P. COX
N. CHRISTODOULAKIS
forseti.
forseti.