Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 586. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 868  —  586. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um fóðurkostnað í loðdýrabúum.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



    Hve mikið fé hefur hið opinbera veitt til þess að ná niður fóðurkostnaði í loðdýrabúum frá og með árinu 2004? Óskað er eftir upplýsingum um hvaða opinberu aðilar veittu féð, sundurgreint eftir árum, verkefnum, aðilum sem hlutu stuðning og fjárhæð.


Skriflegt svar óskast.