Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 582. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1210  —  582. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um styrki úr Framkvæmdasjóði aldraðra.

     1.      Hefur ráðherra fengið styrki úr Framkvæmdasjóði aldraðra til eigin verkefna? Ef svo er, hversu háar fjárhæðir og til hvaða verkefna? Sundurliðun óskast fyrir sl. fimm ár.
    Ráðherra hefur ekki fengið styrki úr Framkvæmdasjóði aldraðra til eigin verka enda slíkt ekki heimilt.

     2.      Eru heimildir til slíkra styrkja og hvar er þær að finna?
    Heimildir fyrir slíkum styrkjum er að finna í 2. mgr. 9. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, en þar segir:
    „Fjármagni úr Framkvæmdasjóði aldraðra skal varið til:
     1.      Byggingar þjónustumiðstöðva og dagvista, sbr. 2. og 3. tölul. 13. gr., og byggingar stofnana fyrir aldraða, sbr. 14. gr., en þó ekki til byggingar íbúða í eigu einstaklinga, félagasamtaka og sveitarfélaga.
     2.      Að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar og endurbætur á húsnæði sem notað er til þjónustu fyrir aldraða, sbr. 2. og 3. tölul. 13. gr. og 14. gr., að frátöldum íbúðum í eigu einstaklinga, félagasamtaka og sveitarfélaga.
     3.      Viðhalds húsnæðis dagvistar-, dvalar- og hjúkrunarheimila.
     4.      Reksturs stofnanaþjónustu fyrir aldraða í sérstökum tilvikum, sbr. 14. gr.
     5.      Annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.“
    Einnig segir í 2. mgr. 11 gr. sömu laga: „Samstarfsnefnd um málefni aldraðra gerir árlega tillögur til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um úthlutun.“

     3.      Hefur ráðherra veitt styrki úr sjóðnum til þriðja aðila, annarra en öldrunarstofnana? Ef svo er, til hverra og í hvaða tilgangi? Sundurliðun óskast fyrir sl. fimm ár.

    Í töflu sem fylgir svari þessu er listi yfir greidda styrki á árunum 2002–2006 (sjá 6. tölul. fyrirspurnarinnar). Hér er um að ræða framlög og styrki sem hvorki teljast til rekstrar- og stofnkostnaðar né til endurbóta.

     4.      Í hvað hafa styrkir farið sem flokkast undir liðinn „ráðherra og aðrir styrkir “ í yfirliti yfir greiðslur úr sjóðnum frá 2006? Svar óskast sundurliðað eftir fjárhæðum, verkefnum og styrkþegum.
    Umbeðnar upplýsingar koma fram í eftirfarandi töflu.


Styrkþegi Verkefni Upphæð
Berglind Magnúsdóttir Gerð fræðslumyndar um heilabilaða 200.000
Haukur Guðlaugsson og Gunnar Kvaran Tónleikahald á öldrunarstofnunum 669.751
Morgunblaðið og Lögbirtingablað Auglýsing um styrki 40.795
Samráðshópur um stöðu aldraðra Ráðstefnuhald 365.000
Rósa Jónsdóttir, starfsmaður TM Bókhald Framkvæmdasjóðs aldraðra 200.000
Landlæknisembættið Gagnagrunnur á öldrunarsviði 1.270.198
HTR Upplýsingarit, Ný sýn, prentun. 447.558
Landsamband eldri borgara
Upplýsingarit, Ný sýn. Til dreifingar með blaðinu Listin að lifa. 876.900

     5.      Hafa styrkþegar, sem fengið hafa greiðslur úr sjóðnum af liðnum „aðrir styrkir “ , verið upplýstir um að greiðslurnar væru úr Framkvæmdasjóðnum?

    Flestallir styrkir sem veittir eru úr sjóðnum eru tilkomnir vegna umsóknar um framlag úr sjóðnum.

     6.      Í hvað er sú upphæð ætluð sem í yfirliti um áætlaðar greiðslur úr sjóðnum á þessu ári er á liðnum „aðrir styrkir – verkefni, kynningarefni og ýmis minni verkefni “ og nemur 15 millj.?

    Sú upphæð sem spurt er um er áætluð í upplýsinga- og ráðgjafarþjónustu fyrir aldraða, gagnagrunn á öldrunarsviði (heildarlýsingar um þjónustu fyrir aldraða um allt land hjá landlæknisembættinu), starfsnefnd um framtíðarstaðsetningu öldrunarmála, m.a. könnun á flutningi málaflokksins til sveitarfélaga. Framangreind verkefni kosta um 10,6 millj. kr. Því sem eftir stendur, eða 4,4 millj. kr., verður ráðstafað í önnur verkefni sem stuðla að uppbyggingu í öldrunarþjónustu.
    Í eftirfarandi töflu er listi yfir greidda styrki á árunum 2002–2006. Hér er um að ræða framlög og styrki sem hvorki teljast til rekstrar- og stofnkostnaðar né til endurbóta.

Greiddir styrkir 2002–2006 .


Styrkþegar Verkefni

Fjárhæð, kr.

2006
Rannsóknastofa HÍ og LSH Rannsóknir í öldrunarfræðum 1.712.108
Háskóli Íslands Lektorsstaða, félagsvísindadeild HÍ 5.052.745
Berglind Magnúsdóttir Gerð fræðslumyndar um heilabilaða 200.000
Samráðshópur um stöðu aldraðra Ráðstefna un stöðu aldraðra á vinnumarkaði 365.000
Gunnar Kvaran, Haukur Guðlaugsson Tónleikahald á öldrunarstofnunum 669.751
Landlæknisembættið
Gagnagrunnur á öldrunarsviði. Upplýsingar á interneti um þjónustu við aldraða 1.270.198
Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneyti Prentun bæklingsins Ný sýn 447.558
Landsamband eldri borgara Vegna sendingar Listin að lifa og Ný sýn 876.900
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra Nefndarlaun og kostnaður 577.977
Landlæknisembættið Könnun á vistunarþörf 250.000
Landlæknisembættið Framkvæmdir á vistunarmati 3.851.213
Assessment & Intelligence system Kennsluforrit fyrir notendur RAI 656.455
Pálmi Jónsson læknir Þróun og aðlögun á RAI-mælitæki 1.713.090
Samtals: 17.642.995
2005
Rannsóknastofa HÍ og LSH Rannsóknir í öldrunarfræðum 1.612.720
Háskóli Íslands Lektorsstaða félagsvísindadeild HÍ 4.759.434
Ellimálaráð Þjóðkirkjunnar Sumardvöl eldri borgara 300.000
Assessment & Intelligence system Kennsluforrit fyrir notendur RAI 280.863
Fjölskyldu- og skólaskrifstofa Ísafjarðar Ferðastyrkur á ráðstefnu 14.734
Halldór S. Guðmundsson og Marta G. Bergmann Sjálfsmat eldri borgara, verkefni 1.077.320
Landspítali Vinna við skýrslugerð 18.600
Hanna Lára Steinsson Demensomsorg i Norden, ráðstefna 82.018 kr
Jón Snædal Demensomsorg i Norden, ráðstefna 71.678
Oddný Vestmann Vegna vinnu við vistunarmat 132.592
Pálmi Jónsson læknir Þróun og aðlögun á RAI-mælitæki 1.505.198
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra Nefndarþóknun og kostnaður 308.800
Samtals: 10.793.594
2004
Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili Kópavogi Tónleikar fyrir vistmenn 50.000
Blaðið Málefni aldraðra Styrkur vegna útgáfunnar 30.000
Höfn í Hafnarfirði Verkefni varðandi heimaþjónustu 500.000
Gunnar Kvaran og Haukur Guðlaugson Tónleikahald á öldrunarstofnunum 450.000
Óperukórinn í Reykjavík Tónleikahald á öldrunarstofnunum 500.000
Félag eldri borgara, Vopnafirði Vegna þjónustumiðstöðvar og félagsstarfs 500.000
Ellimálaráð Þjóðkirkjunnar Vegna sumardvalar eldri borgara 300.000
Boði, Svavar Sigurðsson Forvarnarstarf 100.000
Hrafn Pálsson Útgáfa á hljómdisknum 100.000
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Silfurtún Neyðarhjúkrun 75.000
Bryndís Erlingsdóttir, sjúkraþjálfari Ráðstefna í Noregi 135.000
Rannsóknastofa HÍ og LSH Kaup á kennslubúnaði 1.000.000
Háskóli Íslands Lektorsstaða, félagsvísindadeild HÍ 4.485.800
Margrét Sigurðardóttir Ritgerð um MS 7.000
LHS rannsóknastofa Rannsóknir í öldrunarfræðum 1.550.200
Djúpivogur Rekstrarúttekt á hjúkrunarheimili 500.000
Samtals: 10.283.000
2003
Dr. Milkman Rannsókna á neyslu lyfja á hjúkrunarheimilum 103.450
Margrét Sigurðardóttir Rannsóknir á MS 100.000
Berglind Magnúsdóttir, Guðrún Ragnarsdóttir og Þórunn Björnsdóttir Gerð myndbands um samskipti við heilabilaða 300.000
Lovísa Einarsdóttir Vegna reksturs hjúkrunarheimilis í Danmörku 45.000
Helga Björk Haraldsdóttir Verkefni í sálfræði hjá Hrafnistu 336.000
Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar Hugbúnaðarþróun 160.000
Tónaljón Tónlistarverkefni 30.000
Háskóli Íslands Lektorsstaða, félagsvísindadeild HÍ 4.222.000
Jón Hermannsson, Tefra Film
Útbúa fræðsluefni fyrir útlendinga sem starfa við umönnun á sjúkrahúsum 1.000.000
Haukur Guðlaugsson og Gunnar Kvaran Tónleikahald á öldrunarstofnunum 1.000.000
Heilbrigðisstofnun Austurlands Vegna heilsueflingar og verndar aldraðra 2.000.000
LHS rannsóknastofa Rannsóknir í öldrunarfræðum 1.500.000
Samtals: 10.796.450
2002
Utanríkisráðuneytið Alþjóðaþing um málefni aldraðra 500.000
Þórunn Sveinbjörnsdóttir Styrkur til ráðstefnuferðar 150.000
Helgi Hjálmsson Styrkur til ráðstefnuferðar 150.000
Markarholt
Til undirbúningsrannsókna vegna áforma um byggingu athvarfa fyrir aldraðra 1.000.000
Landsamband eldri borgara Styrkur til að sækja ráðstefnu í Berlín 180.000
Þórir Guðbergsson Styrkur vegna bókarinnar „Lífsorka“ 150.000
Háskóli Íslands Lektorsstaða, félagsvísindadeild HÍ 4.222.000
Nefnd um breytta ímynd Verkefni, fá starfsmenn í öldrunarþjónustu 3.000.000
Landspítali – háskólasjúkrahús Styrkur til geðsviðs LHS 400.000
Haukur Guðlaugsson og Gunnar Kvaran Tónleikahald á öldrunarstofnunum 300.000
Söngskólinn í Reykjavík Tónleikahald á heilbrigðisstofnunum 150.000
Svavar Sigurðsson Forvarnarstarf á meðal aldraðra 10.000
Samtals: 10.212.000