Reglugerð um gjafsókn

Fimmtudaginn 15. maí 2008, kl. 10:51:39 (7389)


135. löggjafarþing — 103. fundur,  15. maí 2008.

reglugerð um gjafsókn.

[10:51]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Herra forseti. Reglugerðin hefur verið sett, það er rétt hjá hv. þingmanni. Ráðuneytið telur að hún falli að lögum enda hefði hún ekki verið sett nema vegna þess að ráðuneytið telur að hún falli að lögum. Spurningar hv. þingmanns voru þess eðlis að frekar en að bera þær fram í óundirbúnum fyrirspurnatíma hefði verið eðlilegra að leggja fram fyrirspurn, jafnvel skriflega þannig að hægt væri að svara einstökum þáttum. Reglugerðin var ekki lögð fyrir ríkisstjórn. Þetta er reglugerð sem gefin er út af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og hefur verið lengi í undirbúningi í samráði við fjármálaráðuneytið og gjafsóknarnefnd. Það hefur lengi verið gagnrýnt að það séu of há útgjöld úr ríkissjóði til þessara þátta og þetta er viðleitni af hálfu ráðuneytisins til að taka utan um þann málaflokk þannig að það samrýmist þeim heimildum sem samþykktar eru hér í þingi um fjárútlát. Ég tel því að reglugerðin svari líka mörgum athugasemdum sem hafa komið fram hjá umboðsmanni Alþingis varðandi framkvæmd gjafsóknarmála. Að sjálfsögðu er eðlilegt að þessi mál séu rædd hér á þingi og menn fari yfir þetta og skoði.

Eins og hv. þingmaður nefndi var fyrir nokkrum árum flutt frumvarp og samþykkt lög um breytingu á gjafsóknarreglum. Þetta er viðfangsefni sem sífellt þarf að ræða og sjálfsagt er að ræða en ég tel að þessi reglugerð standist þær kröfur sem á að gera til reglugerða.