varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá Guðjóni A. Kristjánssyni, 6. þm. Norðvest., um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum. Fyrsti varamaður flokksins í Norðvesturkjördæmi, Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir menntunarfræðingur, Akranesi, tekur sæti hans í dag.
Kjörbréf Þórunnar Kolbeins Matthíasdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni skv. 2. gr. þingskapa.
[Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, 6. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]