Ráðstöfun á söluandvirði Landssímans hf.

Þriðjudaginn 04. desember 2007, kl. 20:41:24 (2605)


135. löggjafarþing — 36. fundur,  4. des. 2007.

ráðstöfun á söluandvirði Landssímans hf.

304. mál
[20:41]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil bara þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir mjög greinargóð svör við þeim vangaveltum og spurningum sem ég hafði uppi og ég tel að sú yfirlýsing sem hann gaf hér varðandi Landspítalann, uppbyggingu hans og þau áform sem eru um að reisa nýtt háskólasjúkrahús í Vatnsmýri, hafi verið afdráttarlaus, og mikilvægt innlegg í þá umræðu sem hér hefur farið fram um þetta mál.