Ráðstöfun á söluandvirði Landssímans hf.

Föstudaginn 14. desember 2007, kl. 14:20:35 (3415)


135. löggjafarþing — 45. fundur,  14. des. 2007.

ráðstöfun á söluandvirði Landssímans hf.

304. mál
[14:20]
Hlusta

Frsm. minni hluta efh.- og skattn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður var að ræða um fjárlög. Mig minnir að umræðu um fjárlög sé lokið og að þau séu meira að segja orðin að lögum. Ég skil því ekki hvers vegna hv. þingmaður er að ræða hér um fjárlög og eiginlega ætti forseti að gera athugasemd við það því að umræðu um fjárlög er lokið. Hún var löng og ítarleg, mjög löng, og fjárlagafrumvarpið er orðið að lögum. Frumvarpið sem við ræðum nú er til að aðlaga þessi lög að fjárlögum.