Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 128. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 388  —  128. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Valdimar Kristjánsson frá ELEA- network, Halldór Árnason frá forsætisráðuneyti, Hallgrím Snorrason, Hrafnhildi Arnkelsdóttur og Magnús S. Magnússon frá Hagstofu Íslands, Braga Axelsson og Þórð Sveinsson frá Persónuvernd og Guðrúnu Jennýju Jónsdóttur, Ingvar J. Rögnvaldsson og Skúla Eggert Þórðarson frá ríkisskattstjóra. Nefndinni bárust einnig umsagnir um málið.
    Með lögum nr. 109/2007, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, var meðal annars gerð sú breyting að Hagstofa Íslands verður lögð niður sem sérstakt ráðuneyti frá og með árslokum 2007. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um breytingu á lögunum kom fram að ætlunin væri að Hagstofunni yrði breytt í sjálfstæða ríkisstofnun og tæki sú breyting gildi í ársbyrjun 2008.
    Frumvarpi þessu er ætlað að búa Hagstofu Íslands og opinberri hagskýrslugerð viðhlítandi lagagrundvöll. Í I. kafla frumvarpsins er fjallað um hlutverk og skipulag stofnunarinnar. Gert er ráð fyrir, sbr. 1. gr. frumvarpsins, að Hagstofa Íslands sé sjálfstæð stofnun sem heyri undir forsætisráðherra. Stofnunin er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar en með því er átt við starfsemi sem lýtur að söfnun gagna til tölfræðilegrar úrvinnslu um landshagi Íslands og þjóðfélagsleg málefni, úrvinnslu gagnanna og miðlun tölfræðilegra upplýsinga til almennings, fyrirtækja, stofnana og stjórnvalda á grundvelli laga og fyrirmæla sem eru sett samkvæmt lögum. II. kafli frumvarpsins fjallar um gagnaöflun Hagstofunnar. Samkvæmt frumvarpinu skal Hagstofunni heimilt að afla gagna frá stjórnvöldum, stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum en þó er lögð áhersla á notkun stjórnsýslugagna og upplýsinga sem til eru í opinberum skrám. Þá er í kaflanum mælt fyrir um heimild Hagstofunnar til samtengingar skráa við tölfræðilega úrvinnslu og hagskýrslugerð. Í III. kafla er fjallað um trúnaðarskyldur við gerð hagskýrslna. Slík ákvæði er ekki að finna í þeirri löggjöf sem nú gildir um Hagstofuna og hefur Hagstofan hingað til stuðst við venjur og alþjóðareglur og sett sínar eigin reglur um meðferð trúnaðargagna.
    Nefndin leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Lagt er til að við 2. gr. bætist „aðilar vinnumarkaðarins“ við upptalningu þeirra sem Hagstofunni ber einkum að líta til hvað snertir þarfir fyrir upplýsingar og henni ber að hafa samráð við. Þetta er til áréttingar og fyllingar en Hagstofan hefur um árabil haft margþætt samráð og samstarf við samtök á vinnumarkaði og er engin breyting áformuð í því efni.
    Í umsögnum ríkisskattstjóra og Fasteignamats ríkisins komu fram áhyggjur af því að ekki væri skýrt hvernig fara skyldi með kostnað af hugsanlegri öflun viðbótarupplýsinga og breytingum á skrám skv. 2. og 3. mgr. 6 gr. frumvarpsins. Í umræðum fyrir nefndinni hafa fulltrúar Hagstofunnar lagt áherslu á að stofnunin verði að sjálfsögðu að gæta meðalhófs í óskum sínum um gögn og notkun opinberra skráa til hagskýrslugerðar. Lögð er áhersla á þessi sjónarmið í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. frumvarpsins þar sem fram kemur að haga skuli gagnaöflun á þann hátt að fyrirhöfn upplýsingagjafa við að láta í té gögn sé hóflegt. Hagstofan verði einnig að taka tillit til þess kostnaðar sem öflun viðbótarupplýsinga og breyting skráa geti haft í för með sér. Til þess að styrkja þessi sjónarmið leggur nefndin til að bætt verði við niðurlag 2. og 3. mgr. 6. gr. að tekið skuli tillit til eðlilegra sjónarmiða um kostnað.
    Við samningu frumvarpsins var leitað álits hjá Persónuvernd um efni frumvarpsins er varðar meðferð trúnaðargagna og persónubundinna gagna. Við nánari athugun á efni frumvarpsins taldi Persónuvernd að skerpa mætti á orðalagi ákvæða um skilyrði sem gæta þarf við veitingu aðgangs að gagnasafni með persónubundnum gögnum í rannsóknarskyni eða afhendingu slíkra gagna til rannsóknaraðila. Hefur Persónuvernd sent nefndinni ábendingar um tvenns konar orðalagsbreytingar á 2. mgr. 13. gr. og leggur nefndin til að frumvarpinu verði breytt á þann veg. Leggur nefndin annars vegar til að í stað þess að vísað sé til 1. mgr. 9. gr. laga um persónuvernd verði vísað til „einhvers skilyrða 9. gr. laga um persónuvernd“. Hins vegar leggur nefndin til viðbót við 2. mgr. 13. gr. í þá veru að rannsóknaraðila beri að skila gögnum eða eyða persónuauðkennum í síðasta lagi að liðnum tilteknum tíma og ef hann hyggst varðveita persónuauðkenni lengur skuli hann tilkynna Hagstofunni það og óska eftir samþykki hennar.
    Á síðari stigum kom einnig fram ábending frá Persónuvernd um að setja bæri sérstök ákvæði um meðferð og öryggi upplýsinga sem aflað væri með samtengingu skráa skv. 9. gr. Nefndin telur rétt að taka af tvímæli í þessum efnum með því að taka upp í 10. gr. frumvarpsins ákvæði um að þær trúnaðarkvaðir sem kveðið er á um í 1. og 2. málsl. 1. mgr. 10. gr. gildi einnig um þær upplýsingar sem verða til við samtengingu skráa skv. 9. gr. Hins vegar telur nefndin ekki þörf á að bæta við sérstöku ákvæði um öryggi þessara gagna þar sem ljóst sé að ákvæði 12. gr. frumvarpsins um öryggi gagna, eyðingu eða dulkóðun eigi jafnt við um öll hagskýrslugögn sem snerta tilgreinda einstaklinga og lögaðila.
    Loks hefur komið í ljós að það kann að orka tvímælis að fella úr gildi lög um launavísitölu, nr. 89/1989, eins og gert er ráð fyrir í 17. gr. frumvarpsins um gildistöku og niðurfellingu eldri laga. Þetta stafar af því að enn eru útistandandi skuldabréf Byggingarsjóðs ríkisins með ákvæðum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána samkvæmt lögum frá árinu 1983. Hér er um að ræða almenn lán til einstaklinga veitt á árunum 1983–1989, lán vegna sérþarfa veitt 1983–2004 og viðbótarlán veitt á árunum 1999–2004. Þessi greiðslujöfnun styðst meðal annars við mánaðarlega launavísitölu samkvæmt fyrrnefndum lögum. Að höfðu samráði við Íbúðalánasjóð er niðurstaðan að verði lagaákvæði um launavísitölu felld úr gildi kunni að skapast óvissa um framkvæmd fyrrnefndrar greiðslujöfnunar ef til hennar kemur. Af þessum ástæðum er lagt til að horfið verði frá afnámi laga um launavísitölu.
    Jón Magnússon og Karl V. Matthíasson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 28. nóv. 2007.



Birgir Ármannsson,


form., frsm.


Ágúst Ólafur Ágústsson.


Atli Gíslason.



Sigurður Kári Kristjánsson.


Ellert B. Schram.


Siv Friðleifsdóttir.



Ólöf Nordal.