Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 260. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 527  —  260. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um störf hjá ráðuneytinu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mikið hefur störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgað eða fækkað það sem af er þessu ári á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og utan þess hins vegar?
     2.      Hversu mikið er áætlað að störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgi utan höfuðborgarsvæðisins á næsta ári?


    Heildarfjölgun starfa hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess á árinu er rúmlega 13 stöðugildi á höfuðborgarsvæðinu og rúmlega 29 stöðugildi utan höfuðborgarsvæðisins.
    Gert er ráð fyrir að stöðugildum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgi utan höfuðborgarsvæðisins um rúmlega 11 á næsta ári. Sú áætlun er háð fyrirvara um samþykkt fjárlaga og frumvarps til nýrra jafnréttislaga.