Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 541. máls.

Þskj. 842  —  541. mál.



Frumvarp til laga

um breytingu á lögum nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja,
neysluveitna og raffanga.

(Lagt fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)




1. gr.

    Á eftir 13. gr. laganna koma fjórar nýjar greinar sem orðast svo:

    a. (13. gr. a.)
    Sá sem vill öðlast A-löggildingu, sem er löggilding til rafvirkjunarstarfa við háspennuvirki, verður að:
     1.      hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja; eða
     2.      hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja; eða
     3.      hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Háskólanum í Reykjavík eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja; eða
     4.      hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi rafiðna (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja.

    b. (13. gr. b.)
    Sá sem vill öðlast B-löggildingu, sem er löggilding til rafvirkjunarstarfa við lágspennuvirki, verður að:
     1.      hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja; eða
     2.      hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja; eða
     3.      hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Háskólanum í Reykjavík eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja; eða
     4.      hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi rafiðna (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja.

    c. (13. gr. c.)
    Sá sem vill öðlast CA-löggildingu, sem er takmörkuð löggilding til rafvirkjunarstarfa við háspennuvirki, verður að:
     1.      hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja; eða
     2.      hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja; eða
     3.      hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Háskólanum í Reykjavík eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja; eða
     4.      hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi rafiðna (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja.
    Sá sem öðlast hefur CA-löggildingu má einungis starfa við þau raforkuvirki sem heyra undir fyrirtækið sem hann starfar hjá. Fyrirtækið sér honum fyrir búnaði og aðstöðu.

    d. (13. gr. d.)
    Sá sem vill öðlast CB-löggildingu, sem er takmörkuð löggilding til rafvirkjunarstarfa við lágspennuvirki, verður að:
     1.      hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja; eða
     2.      hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja; eða
     3.      hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Háskólanum í Reykjavík eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja; eða
     4.      hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi rafiðna (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu háspennuvirkja.
    Sá sem öðlast hefur CB-löggildingu má einungis starfa við þau raforkuvirki sem heyra undir fyrirtækið sem hann starfar hjá. Fyrirtækið sér honum fyrir búnaði og aðstöðu.
    Þeir aðilar sem áður hafa gegnt störfum ábyrgðarmanna, eða störfum fulltrúa þeirra, eða hlotið önnur réttindi samkvæmt reglugerð, skulu halda þeim réttindum áfram.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta, sem samið er í viðskiptaráðuneytinu, er lagt fram til að taka af tvímæli um fullnægjandi lagastoð varðandi hæfniskröfur við löggildingu Neytendastofu á rafverktökum, m.a. í kjölfar umfjöllunar umboðsmanns Alþingis um mál á sviði rafmagnsöryggis. Er byggt á ákvæðum reglugerðar nr. 285/1998, um breytingu á reglugerð nr. 264 31. desember 1971, um raforkuvirki, með áorðnum breytingum, nánar tiltekið ákvæðum 1.4.7–9.



Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 146/1996,
um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.

    Markmið frumvarpsins er að taka af tvímæli um fullnægjandi lagastoð varðandi hæfniskröfur við löggildingu Neytendastofu á rafverktökum.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það muni hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.