Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 555. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 856  —  555. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um Þríhnjúkahelli.

Flm.: Árni Johnsen, Jón Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson,
Lúðvík Bergvinsson, Guðni Ágústsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir,
Guðbjartur Hannesson, Grétar Mar Jónsson, Illugi Gunnarsson,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Guðfinna S. Bjarnadóttir, Bjarni Harðarson,
Herdís Þórðardóttir, Kristján Þór Júlíusson, Alma Lísa Jóhannsdóttir.


    Alþingi ályktar að skora á menntamálaráðherra að hefja nú þegar skipulagða vinnu til þess að fylgja eftir hugmyndum um að gera Þríhnjúkahelli í Bláfjöllum, stærsta hraunhelli í heimi, aðgengilegan fyrir ferðamenn.

Greinargerð.


    Þríhnjúkagígur var ókannaður þar til á Jónsmessu 1974 er Árni B. Stefánsson augnlæknir og hellakönnuður seig niður á botn gígsins. Það var hins vegar ekki gert opinskátt fyrr en eftir að Daði Garðarsson úr Hjálparsveit skáta í Vestmannaeyjum seig niður á botn hellisins í leiðangri Eyjaskáta 17. júní 1977 en frá því var greint í Morgunblaðinu. Hellirinn er einstakur að gerð, tröllaukið gímald, um 175 m á dýpt og á við fótboltavöll að flatarmáli í botni, stærsta þekkta hraunhvelfing í heimi og eitt merkasta náttúruundur á Íslandi, falinn neðanjarðar við bæjardyr höfuðborgarinnar í landi Kópavogs.
    Þríhnjúkahellir er einstakt náttúruundur á heimsmælikvarða en víða um heim er gert út á heimsóknir í sérstæða hella og þeir skipta miklu máli í ferðaþjónustu og landkynningu. Stóru íbúðablokkirnar þrjár efst á Laugarásnum sem eru tólf hæðir eru þekkt stærð. Botn Þríhnjúkahellis mundi rúma blokkirnar þrjár hlið við hlið og ef Hallgrímskirkja væri síðan sett ofan á tólf hæða blokkirnar mundi vanta 15 metra upp á að krossinn á kirkjunni stæði upp úr gígopinu.
    Þríhnjúkar ehf. heitir félag áhugamanna undir forustu Árna B. Stefánssonar og hefur félagið hafið undirbúning að því að gera Þríhnjúkahelli aðgengilegan. VSÓ-ráðgjöf hefur m.a. unnið að verkefninu og er að vænta upplýsinga um næstu skref á komandi hausti, en þær hugmyndir sem nú er unnið að byggjast á því að gera 200 m löng göng inn í Þríhnjúkahellinn sem mundu opnast inn í hellishvelfinguna á 64 m dýpi að stórum svölum og síðan yrði jafnvel hringstigi niður á botn hellisins. Ef ráðist verður í verkið á annað borð verður auðvitað ekki hjá því komist að opna leið fyrir ferðamenn niður á botn hellisins. Það er hreinlega ekki hægt að gera fólki það að geta ekki stigið fæti á botn stærsta hellis í heimi, það er ekki mannlegt. Þríhnjúkar ehf. hafa gert samning við Kópavogsbæ um framgang verkefnisins, en Þríhnjúkar í Bláfjöllum eru í landi Kópavogs. Verkefnið er firnamikið og reikna má með að það kosti um milljarð króna að gera göng, svalir, hringstiga, lýsingu og annað sem þarf til þess að fulls metnaðar sé gætt og nærgætni við náttúruundrið sjálft. Aðgengi að Þríhnjúkahelli er einn af mörgum möguleikum í markaðssetningu Íslands á alþjóðavettvangi, enn ein fjólan í íslenska náttúruvöndinn.
    Þríhnjúkar eru í hálendisbrúninni ofan við Heiðmörk, 5 km vestur af skíðasvæðinu í Bláfjöllum og 20 km suðaustan Reykjavíkur. Hnjúkarnir eru nánast beint fram undan sé ekið eftir Langholtsvegi eða meðfram Rauðavatni. Undir norðaustasta gígnum er þessi firnadjúpi gígur, ótrúlega stór flöskulaga gíghvelfing. Botn gígketilsins er 120 m undir yfirborði jarðar og gímaldið sjálft um 150 þúsund rúmmetrar. Botninn er 75–48 m söðullaga hraunbingur á við fótboltavöll að stærð.
    Á Íslandi er enginn aðgengilegur sýningarhellir með göngustígum og raflýsingu. Tveir fegurstu hellar landsins, Jörundur og Árnahellir, hafa verið friðlýstir sérstaklega og lokaðir fyrir nánast allri umferð.
    Þríhnjúkahellir er ein merkilegasta náttúrumyndun Íslands og gígurinn er með afbrigðum óaðgengilegur og hrollvekjandi, en hann er stærsti hellir í heimi og túlkar með sjálfum sér þau reginöfl sem búa í iðrum jarðar. Í ógn sinni er hann aðlaðandi, en til þess að hann verði hluti af daglegum möguleikum innlendra sem erlendra ferðamanna þurfa margir að leggja hönd á plóginn, Alþingi, ráðuneyti og margir fleiri, því hér er um svo einstæðan og metnaðarfullan möguleika að ræða að ekkert má til spara að opna þennan helli eins smekklega og kostur er.