Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 564. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 870  —  564. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.


     1.      Hvaða heilbrigðisstofnanir er ráðgert að sameina á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi, sbr. tilkynningu ráðuneytisins frá 7. mars sl.?
     2.      Hvaða breytingar eru áformaðar á núverandi starfsemi einstakra stofnana sem eiga í hlut og hver verða áhrifin á fjárveitingar ríkisins til þeirra?
     3.      Eru einhver sérstök vandkvæði í rekstri þeirra stofnana sem sameina á varðandi fjárhag eða þjónustu sem sameiningunni er ætlað að bæta úr?